Já, persónuleg loforð eru allt annað mál. Ef einhver segir „Ég mun EKKI gera X“, þá má ætlast til að fólk standi við það. En þegar flokkur segir „Við ætlum að gera Y“, þá þarf að taka tillit til þess hvað menn gera á þingi, hvernig atkvæði falla og svo framvegis. Það væri þannig ekkert mál fyrir Samfylkingu að segja, í næstu kosningum, að D-listinn hafi ekki efnt eitt einasta loforð, þar sem að Samf kaus á móti þeim öllum (og náði að fella).