Við þurfum að fá almennilega byltingu hér á Íslandi!
Núna!
Við getum byrjað á því að allir “vinstrimenn” gerist alvöru vinstrimenn og lífsstíll sem hafnar kapítalisma verði almennur.
Skref í þessa átt eru til dæmis:
-Selja húsið sitt, búa í leiguhúsnæði, helst kommúnu, og endilega gefa kommúnistum það sem eftir verður svo byltingin gangi betur.

-Taka strætó og hætta að styðja kapítalistana sem framleiða bílana og menga allan heiminn meir en þarf með því að búa til gerfiþörf hjá manninum, þörfina fyrir einkabíl.

-Selja drasl eins og dvd spilara og vídeótæki sem við höfum ekkert með að gera og gefa einhverjum góðum flokki sem við treystum til að gera góða byltingu.

-Biðja herinn að fara einu sinni enn.

-Hafa sem flest fyrirtæki ríkisrekin.

-Hætta að kaupa kapítalísk föt og snyrtivörur (fyrir stelpurnar) og styðja með því blekkinguna.

Við þurfum líka að breyta ímynd okkar!
Hver trúir “vinstrimanni” í jakkafötum eins og japanskur bisnessmaður eða í gallabuxum sem kosta 10.000 eins og fucking kani?!

Við ættum að sýna hugsjónir okkar utan á okkur, til dæmis með Che Guevara bolum og slíku, eða gömlu hippafötunum.
Strákar safnið hári!
Sýnum að gömlu hugsjónirnar eru ekki dauðar!

Og stelpur, burt með brjóstahöldin sem vestrænir kapítalistar græða á og burt með snyrtivörurnar og alla skartgripi sem ýta undir kapítalisma eins og perlur og demanta!

Lengi lifi frálsir kommar!

PS: Nafnið mitt er grín, ekki greinin.