Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Með eða á móti lögleiðingu kannabiss ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Plantan er leyfð og notuð. Við notuðum oft hamp þegar við vorum að vinna í klóaki í sumar.

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Annars er eitt áhugavert við þetta, sérstaklega kaflann um þá sem hafa mök við eigin börn: Það stendur ekkert um það hvort að um þvingun eða neitt slíkt sé að ræða. Það má vel vera að barnið (orðið sautján ára, skulum við segja) vilji hafa mök við foreldri sitt - samt skal foreldrið í fangelsi.

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Neibb, virkar ekki þannig. Fælingarmáttur dauðarefsinga er lítill. Alveg eins og þungir fangelsisdómar fæla menn yfirleitt ekki frá því að fremja glæpina samt. Ég þukla ekki á börnum eða neitt slíkt - en ég geri það ekki vegna þess að ég sé hræddur við að fara í fangelsi, þótt það skelfi mig meira en margt annað. Ég geri það ekki vegna þess að það er rangt að gera það. Og sama er að segja um alla aðra glæpi - ég stilli mig ekki um að fremja þá vegna þess hve hræddur ég sé við að fara í...

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvers vegna er hún aumingi, og hvað ætti hún að gera?

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er ekkert vit í því að taka fólk af lífi, þótt ekki sé vegna annars en þess eins að það er rangt að drepa fólk. Hins vegar er ekkert vit í því að setja það inn í smá tíma, heldur. Og þessi “tengsl” geta ekki með nokkru móti verið sönnuð, frekar en önnur orsakatengsl. Öll orsakatengsl eru tilbúningur - okkar tilbúningur. En þetta er aukaatriði. Enn fremur, ef þetta væri rétt, þá væri meirihluti þjóðarinnar misnotaður. Einföld stærðfræði: Einhvern tímann, væntanlega fyrir all-löngu síðan,...

Re: Með eða á móti lögleiðingu kannabiss ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Fyrst við leyfum á annað borð einn slæman hlut, hvaða mögulegu rök getum við þá haft fyrir því að leyfa þann hlut en banna annan? Nema þá að þú styðjir bann við sölu á áfengi og sért alfarið á móti neyslu þess, þá hef ég ekkert við þinn málflutning að athuga. Og endilega svaraðu fyrri spurningunni líka. Hvað um þá sem fá sér hass eða marijúana einstaka sinnum - segjum álíka oft og ég fer á fyllirí, sem er u.þ.b. einu sinni á tveggja mánaða fresti. Er það fólk líka sljótt og metnaðarlaust?

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Af http://www.althingi.is/lagas/127b/1940019.html: XXII . kafli. [Kynferðisbrot.]1) 1)L. 40/1992, 1. gr. 194. gr. [Hver sem með ofbeldi eða hótun um ofbeldi þröngvar manni til holdlegs samræðis eða annarra kynferðismaka skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.]1) 1)L. 40/1992, 2. gr. 195. gr. [Hver sem með annars konar ólögmætri nauðung þröngvar manni til samræðis eða annarra...

Re: Með eða á móti lögleiðingu kannabiss ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og hvað um þá sem nota það ekki að staðaldri (ég býst við að með “að staðaldri” eigiru við eins og eitt gramm á dag eða svo, þ.e. fara a.m.k. einu sinni á dag í vímu)? Eru þeir líka sljóir og metnaðarlausir? Alveg hið sama má segja um fólk sem notar áfengi að staðaldri (og með að staðaldri á ég við að fólk drekki sig fullt daglega, eða því sem næst). Það mætir illa í vinnu, ef það hefur hana þá, er gjarnan sljótt og leiðinlegt - og ef ég mætti velja, þá myndi ég frekar vilja vera innan um...

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það sem mér finnst fáránlegt er að litið sé á fangelsi sem annað hvort refsingar- eða betrunarstofnanir, þegar þau eru, og ættu að vera, hvorugt. Fangelsi ættu fyrst og fremst að vera álitin sem einhvers konar “sjálfsvörn þjóðfélagsins”. Það er engin ástæða til að stinga þjófum inn - bara láta þá skila því sem þeir stálu eða, ef þeir hafa selt það, greiða skaðabætur sem nema verði þýfisins. Það gæti hins vegar reynst nauðsynlegt að þeir séu í einhvers konar fangelsi á meðan - þar sem þeir...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég hef spurt þig áður, held ég, en ég man ekki eftir að hafa fengið svar. Þannig að ég spyr aftur: “'Takið ekki mark á því, sem ég segi í fjölmiðlum, í sjónvarpi eða á opinberum vettvangi.' -Yasser Arafat, úr ávarpi við opinbert tækifæri … ” Hvernig stenst þetta? Hvaðan hefur þú þær upplýsingar að hann hafi sagt þetta? Og hvers vegna ætti nokkur maður sem á hlýddi að taka mark á þessu, eða nokkru öðru sem hann sagði í þessu ávarpi, ef þeir eiga einungis að taka mark á skriflegum fyrirmælum...

Re: Tölvu umræða

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ekki einu sinni vélmaurarnir og vélkakkalakkarnir hegða sér alveg eins og maurar og kakkalakkar í náttúrunni. Það hefur ekki einusinni tekist að herma eftir þessum einföldu verum - hvað fær menn til að halda að flóknari verur eigi eftir að koma fram á næstunni?

Re: Role Playing og Satanisti!

í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég held að það hafi fyrst verið minnst á hann hjá Lovecraft. En það voru alltaf bara bútar úr henni, ein og ein setning og jafnvel sama setningin í ýmsum sögum, og oft ekkert nema nafnið - hún var einn þessara hluta sem rithöfundar nota gjarnan í mörgum sögum sínum, til að mynda einhvers konar heild. En ég held að Lovecraft hafi aldrei skrifað heila bók sem hét/heitir Necronomicon. Hins vegar sá ég úti í búð (Mál&menning, ef ég man rétt) bók sem hét “The Necronomicon”. En það var fyrir mörgum árum.

Re: Lausnin er minna rikisvald

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“enda allar akvardanir stjornmalamanna jafnrettar og thaer eru rangar og ofugt” geirag: Langar þig kannske að útskýra þetta aðeins nánar? Eins og þetta lítur út þarna, þá er þetta algert rugl. Ef ákvörðun manns - hvort sem að hann er nú stjórnmálamaður eða ekki - er rétt, þá er hún það, og einungis það: Rétt. Hún er ekki röng. Og hún er alls ekki “jafn rétt og hún er röng”.

Re: Náttúru steinar

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nú er ég ekki að tala um steina eins og þá sem hér hafa verið nefndir - ætli ég sé ekki frekar að tala um kristalla. En semsagt; hvað ef maður væri að reisa sér hús, og hefði efni á að blanda ótal slíkum kristöllum/orkusteinum í steypuna sem húsið væri úr? Væri það bara peningasóun eða gæti það gert manni gott? Yrði það kannske “overdose”?

Re: Viðtal við Jennifer Aniston

í Gamanþættir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Flott, flott. Þó nokkuð afrek, er ég viss um. En hvernig er það, máttu þetta? Þarftu ekki leyfi frá blaðinu/vefsíðunni/þeim sem tók viðtalið til að gera þetta?

Re: Um fyrirmyndir

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og svo það sé á hreinu að ég er ekki að gera lítið úr B.C., þykja mér Evil Dead myndirnar hreinasta afbragð.

Re: Um fyrirmyndir

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Bruce Campbell, hetjulegur eins og hann er, hefur þó aldrei risið hærra en í Evil Dead-myndunum í gamla daga. Þannig að frægur leikari … tja … frægari en margir aðrir, en samt ekki sá eini sem fór bara til Hollívúdd og lét drauma sína um frægð og frama rætast.

Re: Samsemdarvandi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það var mikið vit í kallinum, svona þegar honum tókst vel. Verð að fara að líta betur á hann við tækifæri.

Re: Nauðganir

í Djammið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er örugglega sá fimmti eða sjötti sem spyr, en … BLÁsýru? Ertu alveg viss um að þú meinir ekki t.d. smjörsýru? Blásýra er banvæn, og vinsælt morð“vopn” í sögum eftir menn eins og Raymond (eða Rey…) Chandler um menn eins og Philip Marlowe, einkaspæjara með meiru.

Re: Samsemdarvandi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
EkztaC: Má þá ekki líta svo á, að “form” sé annað heiti á sálinni? Mig minnir endilega að það hafi verið nokkurn veginn það sem Ari gamli sagði.

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég hef fundið marga lykt sem mér þykir vond, en hún er ekki vond í sjálfri sér. Ég er ekki beint að segja að lykt sé ekki vond, en hún er það ekki upp á eigin spýtur. Prik hefur tiltekna lengd og þyngd, svo dæmi sé tekið, án þess að nokkur maður sjái það, en lykt er hvorki góð né vond nema einhver finni hana. Ef enginn finnur lyktina, þá er hún hvorugt. Þetta er dálítið svipað og með tréð sem fellur í skóginum, nema spurningin er ekki hvort það myndist hljóð (sem það gerir annars, nema það...

Re: Samsemdarvandi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Popcorn: Ég held að ég þurfi ekki endilega að þekkja hamar frá t.d. skrúfjárni til að hamar sé hamar og skrúfjárn sé skrúfjárn. Þetta sýnist mér einmitt vera sú leið sem ég kærði mig alls ekki um: Að segja hlut eins og á vera sama hlutinn þegar það skiptist um allt í henni vegna einhverra félagslegra ástæðna. Og sama með hamarinn: Þótt við myndum grafa hamar í jörð þar sem enginn gæti náð honum, enginn gæti séð hann, þá væri það samt hamar. Það væri áfram hamar þótt allt líf á Jörðinni, og...

Re: Samsemdarvandi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
gthth: Auðvitað þurfum við að taka tillit til tímans í svona pælingum. Ég gerði það reyndar ekki, aðallega vegna þess að ég hef ekki velt honum mikið fyrir mér. En maður þarf að gera það. Í bili held ég mér þyki þægilegast að hugsa um tímann sem þessa fjórðu vídd. Það væri svo jafnvel hægt að ganga enn lengra, held ég, og velta því fyrir sér hvernig geti staðið á því að hluturinn á borðinu sé sami hlutur og hluturinn á gólfinu. Það er jú tvennt óíkt, að vera á borði og á gólfi. Það mætti...

Re: [40K] Það sem fyndið er að segja.............

í Borðaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þessi með hornin og klaufirnar, og sennilega halann líka, það var guðinn Pan. Svo voru til satýrar (sem flestir ættu að þekkja úr Herkúles - Disney-útgáfunni).

Re: Samsemdarvandi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
hvurslags: Það má auðvitað líka velta fyrir sér hvort að eyra sem er búið að sneiða af manni sé ennþá hluti af honum. Og ég held að til að eitthvað geti talist hluti af manni verði það í.þ.m. að vera áfast. Þá er væntanlega það sem við skilum af okkur ekki hluti af okkur þegar það er ekki lengur áfast við okkur. Alveg eins og einhver steypuhlunkur er ekki lengur hluti af húsi þegar búið að brjóta hann úr því. Norska ríkið takmarkast einungis við landamæri þess, sem er svo ekkert nema lína á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok