Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það eru fáar umræður “á eftir sinni samtíð”, þar sem hérumbil ekkert verður endanlega útrætt. Umræður um hvort að morð séu réttlætanleg eða ekki voru ræddar í þaula í fornöld, á miðöldum og alla tíð síðan. Og verður sennilega aldrei útrætt mál. Og sömu sögu er að segja um þjófnað, dygðir, hvað teljist vera rétt breytni - og þetta efni hér. Þegar menn fara að halda því fram að eitthvert efni sé útrætt, þá er það gjarnan fyrsta merki þess að þeir nenni ekki að hugsa lengur.

Re: Pælingar um eðli engla

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta er einmitt það sem ég er að segja; englar eru *ekki beint* til. Alveg eins og t.d. fegurð eða vont bragð. Þetta er aðeins hluti af manni (sem er þó ekkert smáræði - þ.e. að vera hluti af manni).

Re: Miss World disaster

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þarf sú staðreynd, að múslimar séu tengdari sínum guði heldur en flestir kristnir eru tengdir sínum (er það annars staðreynd?), að benda til þess að þeir séu ekki komnir eins langt og “kristnir”? Hvers vegna væri ekki hægt að segja, að Vesturlönd hafi almennt og yfirleitt “úrkynjast”, séu mistök þróunar - svona eins og dúdúfuglinn? Þetta gæti allt eins verið satt - sé svo, þá er að vísu afar erfitt að horfast í augu við þann sannleika.

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Semsagt; það er meira heimilsofbeldi hér, þar sem allt samfélagið berst fyrir rétti manna til að njóta alls kyns kláms (samanber “Fyrir það fyrsta er það samþykki samfélagsins þess efnis að frelsi til þess að ” njóta kláms “ hvers konar sé algjört og án hafta og hér á huga hefi ég lent í margri orðræðunni við boðbera frelsisins í þessum efnum sem enga minnstu hugmynd virðast enn hafa myndað sér um tengsl, þess að ” frelsi án marka “ á þessu sviði kunni ekki að orsaka mildari afstöðu t.d...

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nei, einmitt. Þetta er eins og með krakka: Krakki sem fer og spilar “frog baseball” eftir að hafa séð Beavis og Butt-head gera það, hann hefði bara gert eitthvað annað og álíka slæmt ef hann hefði ekki séð þáttinn. Og hópnauðgun, sem ég held að sé frekar nýlegt fyrirbæri í klámmyndum (þó má vera að það sé rangt), er alls ekki neitt nýtt í sögunni. Það væri t.d. alveg nóg að hafa fylgst með fréttum daglega þegar borgarastríðið í Júgóslavíu var í gangi til að fá slíka hugmynd (en mig minnir að...

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þeir hafa sem betur fer breyst, og það til hins betra. En getum við kennt “klámvæðingunni” um það, að dómar í þessum málum séu frekar vægir, eins og mér sýnist gmaria vera að halda fram? Getum við kennt klámi um það, að nauðgunum hafi fjölgað (þ.e. hafi þeim fjölgað, þ.e. að prósentan hafi hækkað, ekki fjölda tilfella)?

Re: Miss World disaster

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Middle East”-hvað? Nígería er ekki í Mið-Austurlöndum. Hún er í Afríku, vestan við Kamerún, þ.e. þar sem “hnakkinn” mætir “kjálkanum”.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Reyndar, þá beittu gyðingar hryðjuverkaaðferðum áður en ríkið var stofnað (það var slatti af gyðingum á svæðinu áður en Ísrael var stofnað - t.d. er Sharon þar fæddur og uppalinn) - eins og til dæmis, ef ég man rétt, í þessu margfræga Deir Yassin-máli. Slíkt og slíkar aðgerðir - innan þess svæðis sem var ætlað Palestínu - gerði fólk eðlilega dálítið hrætt.

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
gmaria: Börn hafa verið misnotuð lengur en klám hefur verið til boða. Og það er ekki nema eðlilegt að tilfellum fjölgi eftir því sem á líður, þar sem að bæði kemur þetta oftar fram (vona ég), og fólki hefur fjölgað - og þá líka gerendum. Þetta er raunar svipað og með nauðganir: Fólk er oftar farið að kæra, auk þess sem það er meira af fólki, og því fleiri sem geta mögulega framið glæpina. Hvernig er hægt að tengja þetta við klám? Eru yfirhöfuð einhver tengsl sem sýnt hefur verið fram á (að...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er ekki alveg viss um að ég sé að skilja þig - en ætlaðiru að segja “Vagninum beitt fyrir hestana”? Mér sýnist það falla betur að restinni hjá þér.

Re: Right or wrong

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þú segir satt til þess eins að særa einhvern, þá geturu varla verið að gera neitt góðverk. Hins vegar ertu varla að gera mikið góðverk ef þú lýgur til að hlífa einhverjum - þá ertu bara að ýta undir falska sjálfsmynd og svo framvegis. Sem er ekki nógu gott mál. Og ef þú bjargar einhverjum frá drukknun til þess að geta farið með hann heim og myrt á hottalegan hátt, þá ertu að breyta réttilega (það er rétt að bjarga fólki frá drukknun, býst ég við), en af rangri hvöt (það er ekki rétt að...

Re: Góðgerðastarfsemi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er ekkert að því að bæta fórnarlambi skaðann, þegar hægt er (annars er ég á því að það sé alltaf fórnarlamb, a.m.k. þegar um “alvöru” glæp sé að ræða. Í hraðakstri eru aðrir ökumenn fórnarlömb, alveg eins og ef ég veld ótta og skelfingu með öðru gáleysi). En þegar ég var að tala um að geranda ætti að veita eins mikinn skaða og þeim sem hann veitti og sagði að það væri það eina sem kæmist nálægt því að kallast réttlát refsing, þá var ég síður en svo að mæla með dauðadómi. Ef við segjum að...

Re: Eins og litlar stelpur að leika sér

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það gerir það auðvitað ekki. Ef tveir menn eru í framboði, annar hefur þroska á við 15 ára og hinn á við 14 ára - nú, hvað skal til bragðs taka? Velja skárri kostinn, eða skila auðu? Og ég er ekki að segja eitt eða neitt um þroska þeirra Bushs og Gores - bara svo það sé á hreinu.

Re: Hvað er guð og hvað er Jesú?

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það sem ég átti þó fyrst&fremst við var það, að jafnvel þótt aldrei hefði neinn Jesús tekið til við að predika í gamla daga, þá myndum við samt halda upp á jólin. Það er að segja, ef við (í merkingunni ég og þú og allir aðrir sem eru til í dag) værum þá til, sem er efni í allt aðra grein - jafnvel bók.

Re: Eins og litlar stelpur að leika sér

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér sýnist punkturinn vera sá, að það var skipt um protocol - notast við frönsk heiti, frekar en ensk (hvort sem að það er nú protocol eða ekki að nota ensku heitin, sjálfur hélt ég raunar að franska væri ennþá hálfgert diplómatamál) - í þetta skipti til að Úkraína sæti fjarri Bretum (UK) og Bandaríkjamönnum (USA), þar sem Úkraína heitir, minnir mig, l'Ucraine á frönsku (hvernig sem það stafast - en ég er nokkuð viss um að l-ið komi fremst - La Ucraine stytta þeir í l'Ucraine). Annars er...

Re: Herveldið Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þótt menn séu hlutlausir, þá er engin trygging fyrir því að aðrir muni virða það hlutleysi. Þess vegna er betra að vera vel undirbúinn. Sömuleiðis Svíþjóð. Að minnsta kosti um skeið voru þeir með ansi góðan her, en mér skilst að bæði mórall og almenn gæði sænska hersins hafi hrakað á síðustu árum. Og, fyrst þetta er nú til umræðu, þá er eiginlega ekki á móti því að stofnaður verði her. Þar læra menn góða hluti, eins og að þrífa klósett með tannbursta (sem þýðir líka að menn læra að virkilega...

Re: Herveldið Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Grunaði þetta með “Nuff”, en var ekki viss … Það eru til alls konar sortir af friðarsinnum, eins og það eru margs konar sortir af þjóðernissinnum. Ég lít á mig sem friðarsinna, en ég viðurkenni alveg að stríð geti verið réttlát - en þá auðvitað sem síðasta úrræði, eða þá sem sjálfsvörn. Mér þykir það t.d. ekki ámælisvert af Chamberlain að hafa reynt að forðast stríð eftir megni - en að hann hafi ekki áttað sig á því, áður en það varð um seinan, að friði yrði ekki aflýst, það er ekki eins...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hann hefur náttúrulega ekki verið samviskulaus morðingi *allt* sitt líf - það er ekki fyrr en menn myrða sem þeir verða morðingjar. Hvað þá samviskulausir. Er svo ekki vel hugsanlegt, sé hann morðingi á annað borð, að hann hafi verið afar samviskusamur morðingi? Það er ekki alltaf gott að hafa samvisku…

Re: Herveldið Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Úbbs! Ég var alveg búinn að steingleyma að áhugamálið heitir alls ekki Alþingi lengur, heldur “Stjórnmál”. Biðst afsökunar. Bara enn ein ástæða til þess að breyta alveg um form - a.m.k. leyfa mönnum að leiðrétta villur í sínum póstum eftir á.

Re: Herveldið Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nú, eða Spánn eða Portúgal? Og var Tyrkland ekki hlutlaust líka? Kannske var Spánn ekki hlutlaus; kannske studdu þeir Þjóðverja. En sá stuðningur var þá afar takmarkaður og lítill. Mig minnir að eini herinn sem Spánverjar hafi sent til að hjálpa Þjóðverjum í Rússlandi hafi verið annað hvort meira og minna fangaher eða þá algerlega samansettur af sjálfboðaliðum.

Re: Hvað er guð og hvað er Jesú?

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Reyndar hét bróðir Jesúss Jakob, ekki Jóhannes. Að minnsta kosti er “James” alltaf þýtt sem “Jakob” þegar talað er um enska konunga. “John”, aftur á móti, er Jóhannes. Var Jesús rabbíni? Og hve mikið varðandi hefndina hefur *raunverulega* breyst á þessum tíma? Þá voru engin fangelsi og ekkert framkvæmdavald - eina valdið var dómsvald og löggjafavald. Núna höfum við lögreglu - og látum við lögguna og dómarana einmitt ekki sjá um að hefna þeirra ófara sem við höfum orðið fyrir? Það er a.m.k....

Re: Herveldið Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nuff: Já, það má (ætti að? Já, frekar …) deila um hvort þessi fullyrðing mín sé rétt. Ég er raunar ekki fyllilega sannfærður - en þótti þó bara rétt að einhver andmæli myndu heyrast. Þetta er vissulega breytilegt eftir aðstæðum. Þeir eru þó a.m.k. að taka afstöðu með friði hjá sjálfum sér, innan eigin landamæra, ef ekki meira. En Svíar voru þó a.m.k. nógu hlutlausir til að selja báðum, eða hvað? Kannske gætu menn sagt sem svo, að með því að selja báðum sem best vopn hafi þeir viljað flýta...

Re: Herveldið Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Harry: Að lýsa yfir hlutleysi er engin trygging fyrir því að ekki verði ráðist á mann - samanber Holland og Belgíu, a.m.k. í fyrri heimsstyrjöld (ég man ekki hvernig það var í þeirri síð(a)ri). Hins vegar lýstu Svisslendingar ekki yfir hlutleysi í seinni heimsstyrjöld - það er löng hefð fyrir því að Sviss taki ekki þátt í stríði, a.m.k. beint. Og menn geta vel verið friðarsinnar OG stutt stríð gegn Írak - á meðan að ljóst er að stríðið muni, til lengri tíma litið, færa meiri frið og...

Re: Góðgerðastarfsemi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En þetta gæti eftir sem áður verið spurning um hugarfar. Að minnsta kosti er ég á því að þeir sem kvarta yfir vægum dómum kynferðisafbrotamanna séu flestir að kvarta á (að mínu mati - þarf annars að taka það fram?) röngum forsendum; þeim finnst sem hann eigi skilið að vera lengur inni eða jafnvel tapa lífinu (eða svo sýnist mér, samanber umræður um þetta á Deiglunni).<br><br>Þorsteinn.

Re: Handklæðið

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mætti ekki jafnvel segja að bæði herrasiðferðið og þrælasiðferðið séu mannleg siðferði (er annars leyfilegt að setja “siðferði” í fleirtölu?); hins vegar sé ofurmennið meira en maður og því eigi hvorugt þeirra við það?<br><br>Þorsteinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok