Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: [40K] Það sem fyndið er að segja.............

í Borðaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En nú þýðir Lucifer ekki “ljósfari”, heldur “ljósberi”. Og það er munur þar á. Og mig grunar að annað hvort séu mínar latnesk-ensku og ensk-ensku orðabækur rangar, eða þá þínar djöflafræðibækur. Svo má líka nefna, að Lucifer var alls ekki neinn djöfull til að byrja með, og ekki engill heldur. Hann var einfaldlega guð, rómverskur guð. Hann var Morgunstjarnan (Venus að morgni til), boðberi dögunar. Það er svo ekki fyrr en þó nokkru síðar sem kristnir menn gera hann (og fleiri forn goð) að...

Re: Samsemdarvandi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Takk, takk. Það kom reyndar eitt í greininni þinni (man ekki hvort það var á síðunni eða á huga, en a.m.k. önnur hvor þeirra) sem ég hafði ekki leitt hugann að: Hvernig eitthvað geti verið sami hluturinn á tíma 1 og 2 ef hluti þess er fjarlægður í millitíðinni. Enn meiri höfuðverkur fyrir helgina. En ég hef annars takmarkaðan áhuga á hlutunum, hins vegar mun meiri á manneskjunum (sem ég held að séu eitthvað aðeins meiri en hlutir) og mennskum/manngerðum stofnunum eins og...

Re: Leggjum niður fangelsin ! (um erfðasyndina)

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Færð ekki verðlaun nema þú labbir … hins vegar ertu góður maður að skvetta ekki.

Re: [40K] Það sem fyndið er að segja.............

í Borðaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er ekkert að því að taka eina af frægari sögum kristindóms og færa í örlítið nýjan búning. En hvaðan færu þessa “Lux Fare”-stafsetningu? Ég hef aldrei rekist á aðra en “Lucifer” (þegar orðinu “lux” er bætt við orð, þá verður það gjarnan “luc(i)-”, alveg eins og þegar orðið “maður” er notað í samsetningum verður það “mann(a)-”, á meðan að “-fer” er almenn ending þegar talað er um það sem ber, hvort sem er ljós, vatn, eða eitthvað annað, og er leitt af sögninni “fero”(“ég ber/held á”)) og...

Re: Leggjum niður fangelsin ! (um erfðasyndina)

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það væri náttúrulega fáránlegt að flúra ennið á smáglæpamönnum, enda vona ég að þú hafir verið að gera að gamni þínu. Hins vegar mætti alveg auðkenna margfalda barnaníðinga á einn eða annan hátt. Verst er að það myndi sennilega þýða að einhverjir misvitrir menn myndu ákveða að fá útrás fyrir sína eigin gríðarmiklu minnimáttarkennd (dulbúin sem sterk réttlætiskennd, auðvitað) og tækju sig fimm-sex saman og færu að berja þá sem væru svo auðkenndir. Og það væri ekki gott mál. Hins vegar mætti...

Re: Fíkniefnaheilaþvottur

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er einmitt ógeðslega fyndið (og ég nota “ógeðslega” sjaldan, en mér þykir það eiga rétt á sér hér) hvað margir halda að venjulegar sjálfsrúllaðar sígarettur séu jónur. Ég var t.d. stundum spurður hvernig ég þyrði þessu á almannafæri, hérna í den. Og ég hef bæði hér og erlendis lent í því að einhver bláókunnugur og skuggalegur gaur hafi læðupokast upp að mér og boðið mér efni - hass, kók, hvað sem er (það hefur reyndar oftar gerst í sóðalegum útlenskum borgum eins og Amsterdam heldur en...

Re: Samsemdarvandi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það skiptist um efni í þeim, eins og öðrum frumum. Hins vegar skipta þær sér ekki, eða a.m.k. mun sjaldnar. Þannig að nei, þær endurnýjast ekki, en þær halda sér við eins og aðrar. Eins og líkaminn í heild gerir; hann endurnýjast ekki, heldur heldur hann sér við. Til þeirra berst líka súrefni, næringarefni og svo framvegis, og ég held að þær geti gert við minniháttar skemmdir, bara ekki stærri eins og af alls kyns eiturefnum, og svo þegar ellin færist yfir og skemmdirnar verða meiri og...

Re: Fíkniefnaheilaþvottur

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Ég held að enginn selji svo krökkum yngri en 16 ára, það er alltaf ráðgáta hvernig sumir krakkar virðast geta komist í efni … ” Er sú staðreynd, að krakkar yngri en sextán ára séu með dóp ekki sönnun þess að einhverjir selji krökkum dóp? Það er svo auðvitað ágætt út af fyrir sig ef menn setja sér strangar siðareglur, en ég á bágt með að trúa því að það sé algilt að menn geri það.

Re: Brittania D20

í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég hef ekki kynnt mér Jarðaflakerfið svo neinu nemi, hins vegar eru þessir dimmu- og birtupunktar alveg prýðishugmynd. Og já, þetta dygðadæmi myndi þá virka einhvern veginn í þá átt, nema í staðinn fyrir svona einfalt kerfi, bara dimma og birta, þá væri hver dygð með sitt “bókhald”, og menn gætu þá jafnvel einblínt sérstaklega á einhverja eina dygð, t.d. verið réttlátir ofar öllu. Hins vegar tengjast allar dygðirnar, og líka í Ultimaleikjunum. Þar voru dyðgirnar alls átta: Réttlæti...

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Uberman: En hvað áttu þá við með þessu: “Þessar aðferðir eru afar ríkjandi, plús tilgangslausar sjálfsmorösárásir Ísraela sem ættu að vara ábyrgari aðilinn og reyna að koma á friði frekar en að halda þessu stríði gangandi.”?

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
jmh: ““Takið ekki mark á því, sem ég segi í fjölmiðlum, í sjónvarpi eða á opinberum vettvangi. Takið aðeins mark á skriflegum fyrirmælum frá mér.” Yasser Arafat, úr ávarpi við opinbert tækifæri í júlí 2001” Hvaðan hefuru þessar upplýsingar? Og finnst þér líklegt að maður segi að ekki skuli taka mark á sér á opinberum vettvangi við opinbert tækifæri? Þetta er afar ótrúlegt, og hljómar eins og gamla lygaraþverstæðan (“Allt sem ég segi er lygi” eða “'Allir menn frá Eleu ljúga,' sagði...

Re: svikulir vinir

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta er raunar ósköp einfalt: Svona fólk er ekki vinir manns. Og í slíkum tilfellum er langbest að skera á öll tengsl. En þá þarf maður líka að vera alveg handviss um að þetta sé í raun tilfellið: Að maður sé sjálfur að gefa og gefa, en fái ekkert á móti. Og ein ábending: Þeir sem baktala aðra þegar þú ert nálægt baktala þig þegar þú ert fjarri.

Þorsteinn.

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Uberman: “Sjálfsmorðsárásir Ísraela”? Hafa þeir verið að stunda mikið af árásum þar sem sá sem framkvæmir lætur pottþétt lífið í leiðinni?

Re: af hverju X-mas

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“X” er raunar bara stytting á “Kristur” eins og það er skrifað uppá gríska mátann - XPICTOC (nokkurn veginn, og er framborið “kristos”). Það kæmi mér ekki á óvart þótt þetta væri gamall munkasiður, en þeir voru jú alltaf að finna nýjar og nýjar leiðir til að spara og þá líka blek, skinn og pappír. Svo virðist sem fólki þyki þetta ekki eins kristið og “christmas” (sem þýðir jú “kristsmessa”). En hvers vegna það noti ekki bara gamla góða “yule” skil ég ekki.

Þorsteinn.

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þér tekst alltaf jafn vel að koma fyrir þig orði, Rebel. Varstu að skoða orðabók? Þá gæti verið gott fyrir þig að kíkja á orðið “óbeinn” og athuga hvað það merkir. Ég er ekki viss um að þú hafir skilið það sem ég sagði (en það er nú ekkert nýtt að það skorti skilning hjá þér). Ég var nefnilega að segja að Sharon bæri ábyrgð á þessum fjöldamorðum, sem er sama niðurstaða og ísraelska nefndin komst að. Maðurinn ber óbeina ábyrgð þar sem að hann fyrirskipaði ekki sjálfur að þessir kristnu myndu...

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Er einhver sérstök ástæða til þess að þú lést mig vita af því að þú þú værir að svara mér? Og já, góður brandari, þetta með www.americanarmy.com.

Re: Brittania D20

í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Dupre væri pottþétt Paladin (fighterinn var Geoffrey). En eins og Vargur bendir á, þá eru “trúarbrögðin” aðeins öðruvísi, og Jaana var, eins og margoft kom fram, druid en ekki cleric. Og paladins í U-leikjunum komu frá Trinsic og þeirra aðalhugðarefni var heiðurinn (Honor - það var dygð Trinsic). Og raunar voru leikirnir upphaflega a.m.k. hálf-byggðir á leikjum eins og D&D og AD&D. Hins vegar væri gaman að vita hvaða klass fjárhirðirinn ætti að vera (Katrina á New Maginica) í leikjunum), þar...

Re: Role Playing og Satanisti!

í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og þess má til gamans geta að þessi bók sem óði Arabinn á að hafa skrifað með mannablóði á mannaskinn er engin önnur en . . da-daa… Necronomicon.

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ísraelar frömdu ekki morðin, en þeir voru ábyrgir fyrir þeim. Það var a.m.k. niðurstaða ísraelskar nefndar - hún komst að þeirri niðurstöðu að varnarmálaráðherrann bæri “óbeina ábyrgð” á þessum verkum. “Óbein ábyrgð” er þó nokkuð meiri en “engin ábyrgð”, ekki satt? Sjá t.d. fréttirnar sem ættu að finnast hér: http://newssearch.bbc.co.uk/cgi-bin/results.pl? scope=news&tab=news&q=shatila

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þín reynsla, en ekki mín. Mér þótti reykingalykt ekki vond áður en ég byrjaði, ekki á meðan ég reykti og ekki eftir að ég hætti. Þetta er bara smekkur, en ekki staðreynd.

Þorsteinn.

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og þar fyrir utan skipta tölur ekki svo miklu máli þegar upp er staðið. Þótt Ísraelar og Palestínumenn hefðu aðeins myrt einn mann hvor, þá breytir það eiginlega engu um það að þá eru báðir aðilar morðingjar. Og það versta er glæpurinn, ekki fjöldinn. Eða: “Gæði frekar en magn”.

Re: Fíkniefnaheilaþvottur

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Eru einhverjar aðgengilegar rannsóknir (helst á netinu, ef nokkur kostur er) eða eitthvað annað sem þú gætir bent á sem sýna að sú staðreynd að dópsalar séu oftar en ekki að bjóða upp á meira en bara eitt efni hafi engin áhrif á það hvaða efni hasshausar fara að nota? Ég vona að þú sért ekki að halda að þeir séu allt og sumt - félagsskapur sem hasshausar eru stundum í hefur líka áhrif, og auðvitað sú staðreynd að hassararnir eru, sumir hverjir, veikir fyrir hefur líka sín áhrif. En mér...

Re: Bandaríkin

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það væri sennilega þess virði að benda á að Nasser hefur ólíklega sagt eitt eða neitt við Palestínumenn í stríðinu '48 - hann komst ekki til valda í Egyptalandi fyrr en um miðjan sjötta áratuginn. Hann varð aldrei neitt sérlega hátt settur innan hersins, mig minnir að hann hafi ekki einusinni náð að verða hershöfðingi, og hafi hann tjáð sig eitthvað um þetta, þá yrði sennilega ekkert mark tekið á honum. Og ég er ekki svo viss um að æviminningar fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels - og eins...

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Takk, takk… Þetta fer allt upp og niður, e.t.v.: Við förum upp og þeir fara niður, við förum niður og þá fara þeir upp. Þetta vilja sumir tengja háskólunum, og það held ég að sé ekki vitlaust; þegar háskólar eru sterkir, þá er allt annað sterkt. En það var víst einhvers konar málfundur eða eitthvað álíka í Hátíðarsal HÍ í dag í kringum 5 eða 6 um tengsl íslam og Vesturlanda. Ekki skyldi einhver hafa farið á það? Og kannske, ef eitthvað er endurtekið nógu oft, þá síast það inn?

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Auðvitað er ekki gaman að vera svona farinn. Hins vegar er auðvitað spurning hvort þetta sé kannske meik þarsem þetta er nú auglýsing? Og mig grunar raunar að fólk sem er svona farið geri eitthvað til að hylja sig til að láta ekki stöðugt glápa á sig og benda - nema þá það taki því eins og lögfræðingurinn í þættinum með honum John Cleese og Liz Hurley sem fékk krabba í andlitið, missti annað augað og svo framvegis. Hann var ekkert að fela það og sagði jafnvel að hann hefði bara gaman af því...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok