Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Er Guð til eða ekki?????

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En er Móðir Náttúra “æðra afl”? Æðra en hvað? Ég er ekki alveg að skilja þetta. Hún er t.d. varla æðri náttúrulögmálunum, því hún er náttúrulögmálin. Og það er varla hægt að tala um þau sem einhvern æðri mátt - þau bara eru.

Þorsteinn.

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Eins og bent hefur verið á, þá eiga Palestínumenn landið eiginlega ekki heldur og hafa aldrei gert - a.m.k. ekki nema það sem þeim var úthlutað ‘47/’48. Þar áður áttu Bretar það (þeir réðu því, og þá má eiginlega um leið segja að þeir hafi átt það), þar áður Tyrkir, þar áður Arabar (sem stjórnuðu frá Bagdad en hvergi í Palestínu), um tíma evrópskir krossfarar og á undan þeim voru líka Arabar, þar áður Býsansríkið, þar áður Rómarveldi … nú höfum við rakið okkur um tvö þúsund ár aftur á bak -...

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Kannske finnst þér hún vond og ógeðsleg og allt það, en það er ekki neitt nema þinn smekkur (og einhverra annarra). Lykt er í sjálfri sér hvorki góð né vond, alveg eins og kona er eiginlega hvorki falleg eða ljót. Hún verður það ekki fyrr en einhver sér hana og fellir dóm - eins og sagt er: “Fegurð er í auga sjáandans”, og sama gildir um lykt (nema þá er hún í nefi lyktarans, býst ég við).

Þorsteinn.

Re: Kio Briggs er FRJÁLS

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ha? Er hann ekki í jeilinu í Danmörku?

Þorsteinn.

Re: Fíkniefnaheilaþvottur

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
click: Til að byrja með: Hvenær sagði ég eitthvað um það að margir kynnist kannabisi eftir að hafa byrjað að drekka? Ég er nokkuð viss um að ég hafi ekki sagt neitt slíkt. Og þú mátt alveg halda að þetta sölumennirnir eigi engan þátt í þessu. Auðvitað er ábyrgðin að þó nokkru leyti hjá neytandanum sjálfum - það má t.d. vel vera að hasshausar verði veikari fyrir en aðrir, og mér þykir það raunar alls ekki ólíklegt. Engu að síður, þá er t.d. ljóst að menn fara ekkert frekar að reykja...

Re: Bandaríkin

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
tactik: Orðin “sími” og “taug” voru upphaflega “fundin upp” til að tala um þræði eða línur. Núna notum við þau líka til að tala um tæki og líffæri (ég myndi halda að taugar væru líffæri - er það ekki nokkurn veginn rétt?). “Æðislegt” þýddi eitt sinn eitthvað sem einkenndi æði - og “æði” þýddi geðveiki eða bilun - alls ekki jákvætt orð. En núna er þetta afskaplega jákvætt og gott orð. Og núna hefur heimskur líka bætt við sig merkingu - það er ekki lengur bara einhver heimahangandi lúser sem...

Re: Er Guð til eða ekki?????

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er bara einn guð sem skapað manninn í sinni mynd, og það er guð gyðinga, kristinna og múslima. Jafnvel þótt hann hafi gert eitthvað í sinni mynd, þá er ekki þarmeð sagt að maðurinn sé alveg eins og guð. Gínur eru í mannsmynd, en þær eru ekki eins og menn að öllu leyti. Og hvernig veistu annars að þetta æðra afl sé til?

Þorsteinn.

Re: Fíkniefnaheilaþvottur

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
click: Eftirspurn eftir hassi og öðrum kannabisefnum kemur ekki fyrst og fremst frá einhverjum “fársjúkum fíklum”, nema þá ef fíkill er sá sem reykti nokkrar jónur í Köben fyrir tólf árum, og langar nú að fá sér eins og eina með vinum sínum, en enginn þeirra kærir sig um að verða glæpamaður. Ég þekki engan hassreykingamann sem hefur farið út í harðari neyslu, og ég þekki nú nokkra. En hvarflar ekki einu sinni að þér að hassreykingafólk leiðist lengra vegna þess að það er oftar en ekki sami...

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ekki allt, en sumt. Eins og t.d. skiltið hérna einhvers staðar nálægt Hringbrautar-Miklubrautarskiptingunni: “Reykingar - ógeðsleg fýla”. Þetta kemst næst því að leggja reykingamenn í “einelti” (á nú að fara að skemma þetta með óhóflegri ofnotkun, eins og “rasismi”, “fasismi” og “mannréttindi” hafa þegar verið skemmd?).

Þorsteinn.

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Kommon … það má nú vara við svona löguðu. Hér sat ég í mestu makindum að borða morgunmat, þegar púff! Mér svelgdist á… Svo eru börn líka að skoða þetta.

Þorsteinn.

Re: Bandaríkin

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Pipppi (og aðrir): Þó svo að meðal-menn í BNA séu illa að sér í sögu og landafræði, þá er ekki þarmeð sagt að þetta sé eitthvað sérstaklega heimskt fólk. Það er ekkert heimskara en Íslendingarnir sem benda á styttuna af Jóni Sigurðssyni og segja krökkunum sínum að þetta sé fyrsti forseti Íslands og svo framvegis. Hins vegar virðist fólk þar almennt vera fáfrótt. En það er allt annað en að vera heimskur, þar sem heimskt fólk er frekar fólk sem á erfitt með að hugsa, auka við þekkingu sína og...

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Gullbert: Í fljótu bragði detta mér í hug aðeins nokkrar eyjar og eyjaklasar í Evrópu sem ég held að hafi ekki verið tekin með vopnavaldi. Þetta eru Færeyjar, Orkneyjar og Ísland (tja, fyrir utan nokkra munka/einsetumenn sem áttu ekki neitt - munkar eru almennt ekkert fyrir að eigna sér lönd, og þaðan af síður einsetumenn). En restin hefur haft a.m.k. tvo eigendur, og skiptin hafa alltaf verið blóðug. Ekki að það komi þessu eitthvað við…

Re: Bandaríkin

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
ramax: Annars er ég ekki viss um að þetta gyðingahatur sé almennt og útbreitt eitthvað sérstaklega á meðal vinstri manna. Ég er eiginlega farinn að hallast að því að gyðinga- og/eða útlendingahatur sé næstum því eðlilegur hluti í uppreisnarferli unglinga, þegar menn gera uppreisn gegn öllu í kringum sig, nema auðvitað eigin hóp (eða “hjörð”, kjósi menn það frekar). Ef gyðingahatur er almennt talið rangt í samfélaginu, þá munu unglingar - a.m.k. sumir þeirra - taka það upp sem einhvers konar...

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þegar þú teygir þig svona langt aftur í söguna, og segir það hafa verið óréttlátt af Rómverjum að reka gyðinga á brott, þá máttu líka taka tillit til þess, að samkvæmt einu heimildinni sem við höfum um þetta (eftir því sem ég best veit), Biblíunni, þá tóku gyðingar landið af enn öðrum. Þeir ráku aðra af þeirra (þ.e. þessa aðra, hverjir sem það voru nú aftur) landi, sem hafa væntanlega líka gert það. Þannig að í rauninni áttu gyðingar landið ekkert frekar en Rómverjar og svo framvegis. Hvað...

Re: Tryggingarsaga - framhald

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Já, það er spurning hvort að menn séu e.t.v. betur settir með því að leggja á bankareikning frekar en að skipta við þessi tryggingafyrirtæki? En þetta er nú dálítið merkilegt. Hvað næst - fólk á jarðhæð fær ekki bætur fyrir öðru en glugganum sem var brotinn í innbrotinu? Það er jú algert gáleysi að múra ekki fyrir alla glugga eða setja rimla í þá…

Re: Atriði sem þú ættir að vita um Kárahnjúkavirkjun

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Nokkur atriði í þessarri grein eiga ekki annað skilið en “Og hvað með það?”-svar. Það hefði verið betra ef þú hefðir númerað punktana, þá væri auðveldara að benda á hvern og einn (og þá slyppi ég við að telja…): 1, 6, 11, 12, 13. Og ég myndi gjarna vilja fá að vita hvers vegna raforkuverð eða vextir ættu að hækka, hver hafi komist að þeirri niðurstöðu að tap náttúrugæða muni nema tugum milljarða (annars fróðleg fullyrðing miðað við þessa: “Ómetanlegum víðernum og jarðsögumenjum verður eytt”...

Re: Bandaríkin

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
“ … það nær ekki nokkurri átt hvernig menn vaða hér uppi með alhæfingar og illa grundaðar fullyrðingar um heila þjóð.” Það er bara óumflýjanlegt. Andinn virðist sá að maður eigi að hafa skoðanir (sem einmitt eiga oftast að heita jafngildar) á öllu mögulegu milli himins og jarðar, frá kvótakerfinu að hvalveiðum til Kárahnjúka og svo framvegis. Hins vegar er ekki nokkur leið fyrir venjulegt fólk að setja sig almennilega inn í öll þau mál sem það á að hafa skoðun á (ef það væri hægt, til hvers...

Re: Kjósið nýtt fólk í stjórnmálin.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
gmaria: Hver er að segja að launafólk sé ekki manneskjur með sín mannréttindi? Hverjum dettur slík firra í hug? Hins vegar er, eða a.m.k. ætti að vera, augljóst mál að þau réttindi og skyldur sem fólk hefur sem launafólk þurfa alls ekki að vera þau sömu og það hefur sem manneskjur. Til dæmis er öllum ljóst að hermenn hafa allt aðrar skyldur og allt önnur réttindi sem hermenn heldur en sem menn, eða að læknar hafi önnur réttindi og aðrar skyldur sem læknar heldur en sem menn - og svo...

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Æ, stundum hvarflar að manni að best væri bara að reisa einn stóran múr í kringum þetta svæði, láta þá útkljá sín mál með sínum hætti, kíkja aftur ef 50 ár og kæra þá sem eftir lifa fyrir þjóðarmorð…

Re: Kjósið nýtt fólk í stjórnmálin.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
gmaria: Höldum okkur þá aðeins við líkinguna um málfrelsið. “Allir menn eiga að hafa tækifæri til að koma skoðun sinni á framfæri.” Ætli það hljómi ekki nokkurn veginn svona, ákvæðið. Þetta fer a.m.k. nógu nærri því, býst ég við. Nú, í þessu felst ekki að ríkisstjórnir þeirra landa sem hafa samþykkt sáttmálann eigi að sjá til þess að allir tjái skoðanir sínar. Í þessu felst ekki heldur, að ríkisstjórnin eigi að tryggja að allir geti tjáð sig, heldur frekar að það sé ekki komið í veg fyrir að...

Re: Er fátækt á Íslandi: Nei

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Eins og ég sagði áður (mig minnir að það hafi verið sem svar við Apache), þá skiptir engu máli hvort það séu fáir eða margir sem eru fátækir, og ekki heldur hvort að fátæktin sé sjálfsköpuð eða eitthvert þjóðfélagsmein. Sé fólk fátækt - og styðjumst við þinn mælikvarða: Að það svelti og viti ekki hvenær það muni borða næst, búi á götunni og ef það fær að hafa börnin í friði fyrir Barnaverndarstofnun (eða hvað sem batteríið heitir nú), þá fara þau börn ekki í neinn skóla - nú, þá er það...

Re: Hvaða rétt hefur maður gagnvart lögreglu???

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það er rétt, löggan má ekki leita án þíns leyfis eða einhvers opinbers plaggs. Ekki heldur á þér sjálfum. Hins vegar er afar grunsamlegt að neita: “Hvað skyldi þessum ganga til? Hvers vegna vill hann ekki lofa okkur að athuga bílinn sinn? Ætl'ann sé að fela eitthvað?” - og þetta getur leitt til bölvaðs vesens. Oftast er best að segja bara já,já og ekki vera með neina stæla. Það borgar sig sjaldnast að vera með stæla við lögguna, nema ef manni liggur ekkert á.

Þorsteinn.

Re: Jólin...

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
“hvað kemur snjórinn jólunum við?” Ég hefði haldið að þetta væri augljóst. Hér hafa verið haldin jól lengur en kristni hefur verið í landinu. Nær væri að spyrja hvað kristni komi jólunum við. Og tengsl snjós og jóla eru augljós: Þegar það eru jól er oftar en ekki snjór. Og þegar maður er lítill, þá tengir maður svo margt við jólin, og þ.á.m. snjóinn. Það eru tengsl sem endast. “fæddist Jesú ekki í landi þar sem hitin fer ekki niður fyrir 25°C á nóttinni þar sem vaxa pálma tré!” Ég er nú ekki...

Re: Virkar ?

í Dulspeki fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég er ekki að halda því fram að galdrar séu til, né heldur draugar né nokkuð annað. Ég er hins vegar að benda á, að það er engin skynsamleg ástæða til þess að afneita því með öllu. Það er ekki nóg að það bendi ekkert til að svo sé; það sem við þurfum er eitthvað sem bendir til að svo sé ekki (saklaus uns sekt er sönnuð, og það allt - hinn ákærði þarf ekki að sanna að hann sé saklaus, sé sé hann ákærður fyrir morð, heldur þarf ákærandinn að sanna að við séum sek).

Þorsteinn.

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
–“….geðsjúklinga kristna hyski…”– (droopy) Hvernig eru þetta fordómar gegn kristnum? Þarna er verið að dæma einn hóp kristinna manna - manna eins og þeirra sem birtast stundum á Ómega og jarma eitthvað um að gyðingar séu Guðs útvalda þjóð, að þetta sé land sem Guð hafi gefið þeim og eigi því fullan rétt á að reka alla þaðan sem þá lystir - en ekki kristna eins og það leggur sig. Og “fordómur” er ekki það sama og að hafa lítið álit á einhverjum, eða að telja einhvern vera fífl. Ég t.d. svo...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok