Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Góðgerðastarfsemi

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Jú, reyndar gæti ég alveg hugsað mér að búa í heimi án refsinga en þar sem væru áfram glæpir: Þar sem þjófum er einfaldlega gert að skila því sem þeir stálu og greiða fyrir allan skaða sem þeir hafa valdið, og svo framvegis. Og fólk færi í fangelsi, ekki til að taka út neins konar refsingu, heldur til þess eins að vera ekki hættulegt öðrum og koma í veg fyrir að það brjóti frekar af sér. En það ætti ekki að líta svo á að það sé verið að refsa því, heldur bara að samfélagið sé að verja sig....

Re: Herveldið Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þegar menn lýsa yfir hlutleysi í stríði eru þeir að taka afstöðu - með friði. Svipað og að skila auðum seðli í kosningum - óháð því að þeir eru flokkaðir með ógildum. En það er efni í aðra ræðu, sem er raunar, eða var a.m.k., í gangi á Alþingi (áhugamálinu). Og raunar, þá er hlutleysi afstaða út af fyrir sig. Auk þess, þá býr höfundur væntanlega í veruleika þar sem Íslendingar taka eitthvað mark á sinni stjórnarskrá. Sem er að vísu veruleiki langt fyrir utan þennan sem við hin búum í - þar...

Re: Decode að hækka

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Spurning DrCrappets ætti frekar að hljóma svo: Hvers vegna geriru mun á mönnum og konum? Veistu ekki að “maður” er bara tegundarheiti, og segir ekkert um kyn, frekar en fíll, steypireyður eða köttur?

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
jmh: Ég veit það alveg - hvers vegna ertu að segja mér það, og hvers vegna svararu ekki einhverju þeirra svara minna sem gætu gefið þér ástæðu til að halda að ég haldi annað um Ísraela? Ef þú gerðir það, þá gætiru líka merkt við “Láta höfund vita … ”, sem er alltaf sniðugt að gera, ef maður kærir sig á annað borð um að vera svarað.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hernumin þjóð hefur að sjálfsögðu fullan rétt - þjóðernissinnar geta sett “skylda” í staðinn fyrir “rétt” - til að berjast gegn hernámsöflunum. Hins vegar segir ekkert um það að menn megi beita öllum tiltækum ráðum. Ef menn ætla að taka þátt í slíkum skærum (eða vopnuðum átökum, ef menn kjósa heldur slík orðasambönd), þá gilda ákveðnar reglur - Genfarsáttmálinn. Þó svo að andstæðingurinn fari ekki eftir þeim reglum, þá verða menn sjálfir samt að gera það, eða var brotlegir líka. Alveg eins...

Re: Hvað er guð og hvað er Jesú?

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Sorrý; “alheimsandinn Kristur”? Kristur er ekki sérnafn; það er titill af sama tagi og “konungur”. Það er tekið beint úr latínu “christus”, sem er svo fengið út grísku “kristos”. “Kristos” er svo bara þýðing á hebreska orðinu “Messias” (eða “Messia”, ég er ekki alveg með það á hreinu), sem þýðir “hinn smurði” - þ.e. “frelsari”. Þannig að Jesús heitir ekki “Kristur” - í augum kristinna ER hann kristur. Það má annars vel vera að til sé einhver “alheimsandi” sem heitir eða kallar sig “Krist”,...

Re: Dómarar ættu að skammast sín!

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Augustus: Mig minnir endilega að þessi maður hafi raunar aðeins fengið 105 daga fyrir þetta - en hann var á skilorði, og því féll það allt, eða um 260 dagar, á hann. Það er þannig aðeins villandi að segja hann hafa fengið ár fyrir að hafa stolið tveim bílum, geislaspilara og fimm lærum, þ.e. ef þetta er sama dæmi og ég held það vera.

Re: Er Y-takkinn á lyklaborðinu þínu bilaður?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En það er bara sitt hvað, að segja misnotkun leiða til þess að maður muni sjálfur misnota og ætti því að vera undir stöðugu eftirliti annars vegar; og að segja flesta barnaníðinga hafa lent í einum slíkum sjálfir. Þótt flestir barnaníðingar hafa lent í slíkum, þá segir það ekkert um það hvað meirihluti fórnarlambanna gerir síðar meir.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Point taken … :) En já, varðandi upphaflegu ummælin. Þau eru bæði rétt og röng. Það sem er rétt, að Ísrael fór ekki af stað alveg jafn “aggressíft” og t.d. Evrópumenn í Ameríku eða Ástralíu. Ég man ekki eftir stríði sem var farið í með því hugarfari einu saman að leggja undir sig land til að búa á - mig minnir að það hafi alltaf verið einhverjar fleiri, “taktískar” ástæður. Hins vegar hafa Ísraelar ekki beint farið með þessi svæði, sem tekin voru af “taktískum” ástæðum, sem sérlega...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta eru hártoganir, það er satt. Þær geta verið ansi skemmtilegar. En ef þér leiðist - nú, láttu mig þá vita og ég hætti. En ef þú leggur undir þig hluta af ríki, þá ertu ekki að leggja undir þig ríki. Ef maður leggur undir sig ríki, þá leggur maður undir sig allt ríkið. Þannig að þetta er ansi ólíkt því að tala við fjóra stráka, eða borða pylsu (ég get tekið einn bita, fleygt rest og sagst hafa verið að borða pylsu). Þetta er miklu nær því að segja sögu af Mallhvíti og dvergunum sjö, en...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Svo er eitt sem ég vona að þú fattir: Ef það er í lagi að Palestínumenn drepi ísraelsk börn fyrst Ísraelar drepa palestínsk börn, þá er í lagi að Ísraelar drepi palestínsk börn þar sem Palestínumenn drepa ísraelsk börn. Hins vegar er aldrei í lagi, ásættanlegt eða neitt slíkt að drepa barn. Ef ísraelskur almenningur er réttmætt skotmark fyrir að styðja sína stjórn sem gerir allt þetta við Palestínumenn, þá hlýtur palestínskur almenningur líka að vera réttmætt skotmark fyrir að styðja...

Re: Tölvu umræða

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Heilinn hefur einmitt ekki allt það sem þarf til að hugsa sjálfstætt, hann er bara hluti af heild (og heildin er maðurinn, með eins mörgum af þessum fimm skynfærum og kostur er + meltingakerfi og svo framvegis). Til að hann geti hugsað, þá þarf meira en það eitt að hann sé, það þarf líka eitthvað að komast inn í hann svo það sé eitthvað til að hugsa um. Og það hvort sem um er að ræða “sjálfstæða” eða “ósjálfstæða” hugsun.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er í sjálfu sér ekkert gott mál að menn séu að taka land af öðrum. Það sem ég var aðallega að benda á var, að fullyrðingin “en að halda því fram að ísraelar hafi ekki lagt undir sig ríki annara…… rýrir nokkuð mikið trúverðugleika” stenst ekki. Það rýrir ekki trúverðugleika manns að segja Ísrael ekki hafa lagt undir sig ríki, þar sem þeir hafa ekki gert það.

Re: Með eða á móti lögleiðingu kannabiss ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Reglur/lög eru til þess að samfélag virki, já - meira að segja til þess að samfélag virki vel eða a.m.k. betur en ef reglurnar væru ekki til staðar. Og sumar reglur þjóna ekki því hlutverki. Er ekki kjörið að afmá slíkar reglur - alveg óháð því hvort það eigi við um þetta tilfelli. En t.d. reglur sem banna fóstureyðingar eru ekki til þess fallnar að láta samfélagið virka betur - og því er ekkert að því að afnema þær. Svo þarf líka að athuga eitt: Hvað græðist með að halda í einhverjar...

Re: þrefallt til baka :O

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það eru tvær megin pælingar í gangi um það sem ég veit um. Annars vegar þessir svokölluðu “hvítagaldurs”galdrakarlar (og -kerlingar, væntanlega - ekki illa meint, kvenþjóð), sem vilja meina að að “eigingjarnir” galdrar - þ.e. álög og bölvanir og annað eins - komi þrefalt til baka. Síðan eru það fylgismenn hins spaka(?) Antons LaVey, sem segja þetta bara vera kjaftæði í hysterískum kellingum (eða þannig, sko). “Þetta er bara sektarkennd aumingja að koma í ljós,” segja þeir. Og hvað segi ég?...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Æ, hættu þessu. Þú hefur greinilega ekki hundsvit á þessu. Það er a.m.k. afar ólíklegt að þú getir vitað hvaða skoðun þeir sem voru í WTC höfðu á Ísraels-Palestínumálinu. Þú getur ekki vitað nema allir sem fórust þar hafi verið á móti landnámi Ísraela. Svo er það einfaldlega alrangt að allir Ísraelar eða allir Bandaríkjamenn styðji Ísrael - fullyrðingar þínar í þá átt eru jafn gáfulegar og fullyrðingar um að allir (eða bara flestir) svertingjar séu heimskir eða hneigist frekar til glæpa...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hey! Sagðistu ekki ætla að ganga á röðina? Þá ættiru að nefna MIG fyrstan, þar sem það var ég, en ekki droopy sem spurði fyrst um “múfta”. Og vegna þess að ég var einfaldlega fyrstur til að svara - þó svo að um gildi svarsins megi deila, ef menn kæra sig um.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Jebb, það verður vart þverfótað fyrir rökum hér: “Gasklefarnir hafa ekki verið notaðir lengi, tími til kominn að troða nokkrum Ísraelum í gasklefa, byrja á ríkisstjórninni. Taka svo Bush og félaga strax á eftir !” Nú, eða þá hér: “Djöfull er ég ánægður með þig. Einn af ÖRFÁUM hér sem ert með eitthvað vit. Steindrepa alla þessa helvítis Ísraela. Snilld þessi sjálfsmorðsárás í gær. Vonandi drepa þeir fleiri næst ! Og vonandi dælir Hussain sprengjum á helvítis Ísraelana ef heimskasta þjóð heims...

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Æ, ert þú ennþá hérna? Og alltaf sem sama vanhugsaða ruglið?

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Menn hafa synt frá Vestmannaeyjum til meginlandsins. Ég held að enginn sé svo skyni skroppinn að reyna það frá Grímsey. Það verður alltaf að færa einhverjar fórnir …

Re: Lausnin er minna rikisvald

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er alveg rétt. En ákvarðanirnar eru samt ekki jafn réttar og þær eru rangar. Þetta er eins og ef einhver kristinn maður segði “Guð er til, og Jesús var sonur hans”, einhver múslimi segði “Guð er til, Jesús var ekki sonur hans heldur aðeins spámaður, og Múhameð var mesti og síðasti spámaðurinn” og ég segði “Nei, strákar mínir, þið hafið báðir rangt fyrir ykkur”. Þessar fullyrðingar eru ekki allar jafn réttar. Og eins í stjórnmálum. Gunnar Birgisson var/er á því að hnefaleika, a.m.k....

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“en að halda því fram að ísraelar hafi ekki lagt undir sig ríki annara…… rýrir nokkuð mikið trúverðugleika” Það gerir það nefnilega ekki. Þeir lögðu ekki undir sig ríki; þeir lögðu undir sig hluta af ríkjum. Og það er örlítið skárra - en samt ekkert sérstaklega gott mál út af fyrir sig.

Re: Sannleikurinn um Arafat og heimastjórnina

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
idf: Droopy er, alveg eins og ég, einfaldlega að spyrja hvað orðið “múfti” merki - hann heldur að það sé einhvers konar niðrandi orð um araba eða múslima, ég held að það sé einhvers konar prestsígildi. Geturu svarað því hvað orðið merkir? Ef þú getur það, hvers vegna geriru það þá ekki einfaldlega og sleppir svona leiðindum? Og ef þú getur það ekki, hvers vegna sleppiru þá ekki að koma með einhver svona fáránleg svör, eða í það minnsta gerðir tilraun til að skilja spurninguna áður en þú...

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvorki þau, né önnur afbrot, verða dæmd réttilega fyrr en (a) það tekst að mæla þjáningu, og (b) veita slíka þjáningu. Þangað til er ekki um neitt réttlæti að ræða. Við ættum því að hætta öllu slíku rausi, og koma alvarlegum glæponum fyrir á Grímsey - til frambúðar.

Re: Er þjófnaður verri en að eyðileggja líf!!???

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Svo er líka alveg óvíst að menn séu að fá það sem þeir eiga skilið að fá. Því þeir eiga ekkert annað skilið en nákvæmlega jafn mikla þjáningu og þeir hafa valdið, og hvorki meira né minna. Það er að segja, það ætti að taka alla þjáningu sem allir sem tengjast fórnarlambinu hafa fundið til, og svo auðvitað sem fórnarlambið sjálft fann til (þó þurfum við að gæta okkur á því að drepa engan, og láta þjáninguna einungis ná fram að dauðastundinni), og láta gerandann finna til jafn mikillar...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok