Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Fólkið

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Jamms, Clerks er fín. Alveg eins og flestar aðrar myndir eftir hann. Svo er önnur ágæt leið til að fá fólk til að missa áhuga á fylliríum: Láta það hreinsa bæinn á morgnana. Ótrúlegur skríll sem er niðri í bæ um sex-leytið á morgnanna. Og svo það besta, að þrífa ælu af bekkjum, tína upp rusl, lenda í böggi og finna þúsundkall. Eftir tvö sumur af þessu hef ég alveg misst áhugan á því að djamma.

Re: Hugleiðingar - Hvernig ég varð norn

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég held reyndar að oftast þegar hlutum er snúið á hvolf, þá sé það a.m.k. ekki hugsað sem vanvirðing heldur sem afneitun. Þegar satanistar (a.m.k. þeir sem eru færir um að hugsa hálfa hugsun og ekki þessi dæmigerði bjálfi sem kveikir í köttum og neglir hunda við veggi) snúa honum á hvolf, þá eru þeir að afneita eða hafna kristninni og hennar siðakerfi. Auk þess; ef einhvern tímann hefði þróast trúfélag sem hefði öfugan kross sem tákn sitt en án þess að vita af því að kristnir menn hefðu...

Re: Soldið sem hefur legið mér á hjarta...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef til vill lítur hún svo á að þetta sé ekki til marks um uppbyggingu í borginni? Eðlilega er fólk ekki endilega sammála um hvað teljist æskileg þróun og hvað ekki, eða hvað sé uppbygging og hvað sé hnignun. Það er augljósast í listaheiminum. Þetta væri ekki hræsni nema hún segðist vera algerlega á móti strippi, en færi síðan sjálf að glápa á stripp og væri í fremstu röð. Hræsni er ekkert nema það að þykjast trúa einhverju sem maður trúir ekki í raun, eða að fordæma aðra fyrir eitthvað sem...

Re: Hugleiðingar - Hvernig ég varð norn

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
divaa: Fimmarma stjarna táknið ykkar? O nei, ekki aldeilis. Þeir fyrstu sem vitað er til (þ.e.a.s. vitað af mér) að hafi notað táknið eru pýþagóringar í forn-Grikklandi (öllu heldur í forn-gríska heiminum, sem náði yfir þó nokkuð stærra svæði en aðeins Grikkland), einhvers konar stærðfræðidulhyggjumenn. Vafalaust afar spennandi - átu t.d. ekki baunir og voru með alls konar furðulegar reglur. En þeir notuðu fimmarma stjörnuna, löngu áður en það var til einhvers konar skipuleg wicca-trú, og...

Re: af hverju fæðumst við

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Og úbbs! Ég ruglaði þeim víst saman, adddi og add1. Biðst afsökunar hérmeð.

Þorsteinn.

Re: af hverju fæðumst við

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Óki-dóki. Þannig að það er semsagt diva divu divu divu Ekki satt?

Þorsteinn.

Re: Biamark

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Nei, það er ekki rökrétt. Hins vegar er ekki rökrétt að fara í stríð við Rússland - augljóslega voru þessir guttar ekki að hugsa skýrt, svo hver veit? Kannske sökktu þeir Bismarck. Það væri ekkert heimskulegra en hvað annað.

Þorsteinn.

Re: Leonardo Da Vinci

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Svo má nefna að hann var grænmetisæta; einnig að hann og Machiavelli voru ágætis kunningjar.

Re: Soldið sem hefur legið mér á hjarta...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Nú verð ég að benda á, að það var ekki allur dans bannaður, aðeins einkadans, og það á þeim forsendum að fólk grunaði að þetta væri eitthvað aðeins meira - nefnilega vændi. Og það skiptir bara engu máli hver setti tillöguna fram. Það sem skiptir máli er að enginn í borgarráði mótmælti og Sólveig mótmælti ekki heldur - það samþykktu allir, og allir sem samþykktu bera nákvæmlega jafn mikla ábyrgð á banninu og Ingibjörg. Svipað og í fótboltaleik: Þjálfarinn segir liðinu kannske hvert planið sé,...

Re: Soldið sem hefur legið mér á hjarta...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Sjálfum þykir mér þetta bann alveg ótrúlega heimskulegt - jafn heimskulegt, raunar, og að kenna Ingibjörgu einni um það. Ég sé a.m.k. ekki hvernig almannahagsmunir komi nokkuð við sögu hér. Jafnvel, ef menn telja þetta vera brýnt mál - nú, þá er verið að beita kolvitlausum aðferðum til þess. Vilji menn losna við þetta, þá eiga þeir að losa sig við eftirspurnina, ekki framboðið. Það er auðvitað nokkuð sem enginn stjórnmálamaður á nokkru sinni eftir að reyna, þar sem áhrifin munu ekki sjást á...

Re: Lögregluáreiti!

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ætli ég hafi ekki sloppið svona vel vegna þess að (a) ég var útlendingur og (b) ég var vel kenndur?

Re: Fólkið

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er auðvitað skítt að lenda í pirrandi kúnnum - ruddalegum, frekum og með alls konar sérþarfir (mér skilst að sérþarfirnar séu sérlega algengar í bakaríum - fólk biður oft um furðulegustu hluti, eins og rúsínubollur með sérlega mikið af rúsínum). Þótt ég hafi aldrei unnið í afgreiðslu, þá hef ég þurft að skipta við alls konar leiðindaskríl með bjálfalegar spurningar. Manni finnst samt eitthvað svo leiðinlegt þegar kurteisi er svarað með hálfgerðum dónaskap. En, eins og ég sagði - hvers...

Re: Kjánaleg fíkniefnaumræða

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Að sjálfsögðu reynir hvaða hugsandi krakki sem er að fá sér almennilegt bús en ekki eitthvað glundur fyrir helgina (eða lok samræmdu prófana), og landi er lokaúrræða (eða næstsíðasta hálmstráið, fer eftir því hve lagt fólk nennir að ganga. Sjálfur nennti ég aldrei lengra en að reyna að fá frá ríkinu). Punkturinn hjá mér var þessi: Undirheimar og dópsalar munu ekki hverfa þótt allt dóp verði selt í apóteki, Vímuefnasölu ríkisins eða næstu sjoppu. Þetta mun minnka, vissulega - en ekki hverfa.

Re: Soldið sem hefur legið mér á hjarta...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
“allir vita blablabla” Og hvað í ósköpunum á innihaldslaus fullyrðing (og, eins og flestar aðrar fullyrðingar, röng) að rökstyðja? Hvað með það þótt helsti talsmaður bannsins hafi verið Ingibjörg? ALLIR í borgarráði studdu tillöguna og Sólveig Pétursdóttir samþykkti hana - sem verður að skiljast sem svo, að hún sé andvíg einkadansi. Það er einfaldlega út í hött og er raunar ekkert annað en barnaleg einföldun að segja hluti eins og “Ingibjörg Sólrún bannar dans” þegar allt annað blasir við....

Re: Lögregluáreiti!

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
“Ég hef búið í nokkrum löndum í Evrópu og Asíu og það virðist hvergi vera eins mikið af löggum á götu og alskonar eftirliti og í Reykjavík.” Í Mogganum í sumar eða haust var stutt úttekt á fjölda íbúa á löggu í nokkrum Evrópuborgum. Í París var eitthvað um 120 íbúar á hverja löggu, og annars fór þetta uppí svona 2-300 íbúar pr. lögga. Nema í Reykjavík - eitthvað um 400 íbúar pr. lögga. Ég hef verið í litlum bæ í Katalóníu. Smábær, kannske 20-30 000 manns. Þar sá ég oftar löggu ef ég leit út...

Re: Soldið sem hefur legið mér á hjarta...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
“Ingibjörg Sólrún” Stóð alls ekki ein í því að banna einkadansinn. Út í hött að kenna henni einni um - allir í borgarráði samþykktu þetta. Auk þess er ekki bannað að banna fólki að vinna ákveðna vinnu - það má með lagasetningum. Og dómsmálaráðherra samþykkti þessa samþykkt borgarráðs - hún ber alveg jafn mikla ábyrgð og Ingibjörg. “Þorgrímur Þórðarson” Þorgrímur Þráinsson, ekki satt? Ertu ekki að tala um manninn sem hefur skemmt fjöldann allan af fólki (þ.á.m. mig!) með bókum sínum?...

Re: Fólkið

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég hef enga reynslu af því að vera afgreiðslumaður, en þó nokkra reynslu af því að vera kúnni. Mér finnst óttalega leiðinlegt þegar maður er ekkert nema kurteisin og brosið, og býður góðan dag að fyrra bragði og afgreiðslumaðurinn suðar eitthvað á móti eins og geðillt skordýr. Maður segir takk fyrir - og það er aftur þetta suð. Nema þá þegar það er muldrað reiðilega og óskiljanlega. En hey - hver sagði að það ætti að vera gaman að versla?

Re: Hugleiðingar - Hvernig ég varð norn

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
“Þau hafa í gegnum tíðina ekkert skapað nema eymd og stríð fyrir mannkynið.” Án þess að kæra mig um frekari umræður um þetta, þá bara verð ég að benda þér á að þetta er alrangt. Hið rétta í málinu er að menn hafa ekki skapað neitt nema eymd og stríð fyrir menn. Þeir hafa stundum notað trúarbrögðin til að réttlæta sig, notað þau sem verkfæri til að klekkja á öðrum og halda völdum. En trúarbrögðin hafa ekki gert neitt af þessu, frekar en hamrar og sagir hafi smíðað kofan úti í garði - það voru...

Re: Ég hef séð þetta sjálf!!!

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég veit ekki mikið um þennan mun, nema mér skilst að ef maður hringir í SR og spyrji um einhvern hjá SÍ, þá er jafnvel sagt að sá sé bara drasl, geti ekkert og svo framvegis, eða a.m.k. hættur í bransanum. Skilst líka að SÍ sé betra, með betri miðla og svo framvegis - en það kann að vera áróður, þar sem ég þekki manneskju sem vinnur þarna - og eðlilega segir hún sína stofu vera betri. Og Hvala-Magnús sér víst um SR. Eða a.m.k. einhver Magnús Skarp' - giska að það sé sami maðurinn. En ég hef...

Re: af hverju fæðumst við

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég verð að játa að ég er hallari undir kenningu add1 heldur en þeirra icez og divau (hvernig beygir maður þetta?). Auðvitað má vel vera að við séum hér til að læra eða til að kenna - og það er alveg augljóst að við gerum hvort tveggja. Hins vegar held ég að það sé mest vit í því að líta svo á að svo sé ekki, heldur að maður hafi þennan eina séns til að gera hluti almennilega. Annað er of “easy” - sem er alls ekki æskilegt.

Þorsteinn.

Re: Ég hef séð þetta sjálf!!!

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Bara fyrir forvitni sakir: Hvort Sálarrannsóknarfélagið ertu að tala um? Þetta er tvö félög, Srf. Íslands og Srf. Reykjavíkur, og mér skilst að það sé um tvennt ólíkt að ræða þarna.

Re: Kjánaleg fíkniefnaumræða

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Morrison: Hætta menn að brugga og selja landa þegar áfengi fæst útí Ríki? Ætli þeir muni hætta því þegar/ef áfengi - allt áfengi - fáist útí Hagkaupum og Nóatúni? Mig grunar ekki. Og mig grunar þessvegna að menn muni ekki hætta að selja dóp þótt það fáist skyndilega úti í apóteki. Þeir eiga sennilega eftir að hafa það ódýrara (kannske lélegra), og eiga varla eftir að spyrja um skilríki. Enn fremur eiga þeir eftir að hafa áfram einhver efni - nema, auðvitað, að þú sért að berjast fyrir því að...

Re: Er Friður 2000 hryðjuverkasamtök?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Skoffín eru ekki “krúttleg”. Þau breyta manni í stein.

Re: Er framtíðin nördanna ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er dálítið vafasamt að fullyrða strax um 21. öldina - hún er rétt nýbyrjuð. Hver veit - eftir 15 ár gæti brotist út áratuga löng styrjöld. Enn fremur: Þó svo að við hér á Vesturlöndum höfum mörg hver jafnvel alltof mikinn frítíma en nóg af tækjum til að stytta okkur stundir, þá held ég nú að meirihluti jarðarbúa hafi ekki þetta mikinn frítíma. “Hvernig stendur á því að þeir sem eru betur gefnir en aðrir skuli líða fyrir það?” Líða þeir fyrir það? Hvernig?

Re: Hugsið hugsunina til enda

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Þið sem eruð fylgjandi frjálsri sölu á hassi, eru einungis að hugsa um eigið skinn. Geta keypt efnið ódýrara, og því meira af því t.d.” Einmitt ekki. Ég hef alls engan áhuga á því að reykja kannabisefni, hvort sem er hass eða marijúana (reyndi það nokkrum sinnum þegar í var í Danmörku og Hollandi og var lítið hrifinn og hef raunar ekki séð ástæðu til að gera það aftur), ég hef engan sérstakan áhuga á að selja það heldur. Ég hef samt ekkert sérstakt á móti því að fólk fái að ráða því sjálft...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok