Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thortho
thortho Notandi frá fornöld 46 ára karlmaður
358 stig
All we need is just a little patience.

Re: Stjörnuskoðun fyrir byrjendur

í Geimvísindi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Er eitthvað til í því sem ég hef heyrt, að það sé hægt að þekkja reikistjörnur frá öðrum stjörnum á því, að reikistjörnur blika eða tindra ekki eins mikið og aðrar stjörnur?

Re: Kenning um afmæli!

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
En hvers vegna ekki annað hvort að grípa fleiri tækifæri, eða þá að gleðjast yfir þeim sem hafa verið nýtt, frekar en að svekkja sig á þessum fjöldamörgu (og yfirleitt er ansi mikið af þeim - alltof mikið, jafnvel á einum degi) sem eru ekki gripin? Mér sýnist það a.m.k. vera mun praktískari hugsunarháttur - hvort sem er á afmælisdegi eða venjulegum degi.

Þorsteinn.

Re: Samlagning hraða

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta er væntanlega afstætt við sjónarhól, afstætt við hvað við teljum vera fastan punkt. Ef við segjum Jörðina vera fasta punktinn, og maður gengur rösklega eftir gangi á t.d. lest sem fer á 100 km hraða, þá er maður væntanlega á 105 km hraða (á klst.). Miði maður hins vegar við lestina, þá er maður á 5 km/klst. Hins vegar, þá er Jörðin alls ekki fastur punktur. Ég man ekki hve hratt hún snýst um sjálfan sig eða umhverfis sólina, en það er ansi hratt, gott ef það slagar ekki uppí 5-6000...

Re: Vísindasiðfræði

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það má náttúrulega koma fram, að þetta slagorð er alls ekki mitt, heldur vel þekkt, a.m.k. á frönsku: “L'art pour l'art”. Gott ef þetta var ekki svar listamanna við þeirri kröfu að listin ætti að vera hagnýt á einhvern hátt: Að hún auðgi mannlífið, veki einhverjar tilfinningar, og þar fram eftir götunum.

Re: Reykingar og vinna

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég væri til í að fá að stofna fyrirtæki þar sem starfsmenn væru skyldugir til að reykja (nema ég, auðvitað). Ég væri líka til að læra annað hvort esperantó eða latínu og vera vel talandi á öðru hvoru málinu, stofna síðan verslun og tala einungis við viðskiptavini á því máli - og eiga nógu mikinn pening fyrir, svo ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að ég fái enga kúnna.

Re: Svar til ykkra allra

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Skinner: Þar sem hún er ekki sjáanleg, þá ættiru varla að trúa því að hún sé til nema þú kærir þig um. Það má auðvitað segja þetta um margt annað. Ég hef aldrei séð Cæsar - hvers vegna ætti ég þá að trúa því að hann sé til? Ég hef heldur ekki séð nein atóm: Hvers vegna ætti ég að trúa því að þau séu til? Og svo framvegis og framvegis. Þetta verður samt skýrast með tilfinningar og skynjun. Þú getur sagst vera glaður og látið eins og þú sért glaður - en hvers vegna ætti ég að trúa þér? Ég get...

Re: Reykingar og vinna

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta fer auðvitað eftir vinnustöðum. Sumir staðir leyfa þetta, aðrir ekki. Á þeim stöðum þar sem ég hef unnið og menn fá að bregða sér frá til að fá sér eina sígarettu öðru hvoru, þá fá þeir sem reykja ekki álíka tíma. En þar sem reykingar hafa ekki verið leyfðar, þar hefur enginn fengið að reykja, nema þá í (a) matarhléum, (b) þegar það er lítið að gera, og menn eru hvort eð er bara að hangsa, eða © með samþykki samstarfsmanna eða yfirmanns. Annars minnir mig endilega að fólk eigi að fá um...

Re: Kjánaleg fíkniefnaumræða

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Fender: “Bill Gates reykti mikið hass á yngir árum…kannski datt honum í hug þetta snilldar ”gluggakerfi“´eftir að hann reykti hippa.” Ehem - var það ekki Apple-gaurinn sem fann upp á þessu gluggakerfi? Ekki að það komi greininni sjálfri nokkuð við - biðst afsökunar á því.

Re: Svar til ykkra allra

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Eins og sála okkra sjálfra hlýtur að vera yfirskilvitleg þar sem hún yrði alltaf að rannsaka sjálfa sig, þú getur ekki bæði staðið inní húsinu og skoðað það að utan.” Sálin er semsagt fyrir utan okkur? Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að sálin væri (meira og minna) fyrir innan. Nú veit ég alveg að þetta er aðeins samlíking - en ég bara verð að játa að mér þykir hún ekki alveg passa. Og já, það má alveg vera að sálin lifi áfram (ég væri svosem alveg til í það, þótt ég myndi frekar vilja...

Re: Svar til ykkra allra

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Ég held persónlega að við sem einstaklingar skiptum sára litlu máli…” Þannig að þér væri alveg sama þótt einhver einstaklingur, nákominn þér, yrði fjarlægður úr veruleikanum? Eða, betur orðað (með engri vísun í þær tilfinningar sem þú kannt að bera til einhverra): Ef hvert og eitt okkar skiptir sáralitlu máli, má þá ekki grisja okkur eins og tré í skógi?

Re: Svar til ykkra allra

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
“Og að auki, ef við höfum sál hvar er hún?” Mætti ekki alveg eins spyrja “Ef við höfum líf, hvar er það?” (reyndar dálítið undarleg aðferð til að segjast lifa, en ég held að hún gangi alveg upp)? Eða jafnvel bara spyrja “Ef við höfum blóð, hvar er það þá?” Blóðið er bara í okkur, út um allt í okkur. Það er ekki hægt að benda á einhvern einn stað og segja “Hérna er blóðið,” heldur getum við í besta falli bent á einhvern einn stað og sagt “Hérna er blóð”. En blóðið er út um allt í líkamanum....

Re: Bob Dylan mistúlkun?

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Talandi um kóveringar, þá þykja mér þær einungis eiga rétt á sér þegar verið er að votta viðeigandi tónlistarmanni/mönnum virðingu. Það er t.d. ekkert að því að tólf hljómsveitir og tónlistarmenn taki sig saman, taki upp og gefi út plötu þar sem hver og ein/n spilar eins og eitt lag með Black Sabbath, og látið er fylgja með nokkur orð um B.S., hvaða áhrif þeir hafa haft og svo framvegis. En það er sorglegt þegar grúppur taka eitthvað lag og ætla að meika það á því, eins og virðist allt of...

Re: Miðlar (2/2)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hefur þú semsagt farið til hvers einasta miðils sem starfar í dag og komist að þeirri raun, að hver einn og einasti þeirra svindlar? Ekki alhæfa nema þú hafir rannsakað hvert einasta tilfelli. Þetta er grunnregla.

Re: Westbro Babtist Church???

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Æ, fyrir nokkru síðan var einhver húmoristinn (lacitilop, kallaðist hann) að baula um hvað samkynhneigðir væru ógeðslegir og svo framvegis, og vísaði á þetta rusl sem sönnun á því að svo væri. Það er skrýtið að það sé ekki hægt að taka tengil út aftur.

Þorsteinn.

Re: Eitt líf er ekkert líf

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og ég gleymdi auðvitað að nefna það sem átti að vera aðalpunkturinn hjá mér: Mikið hefði ég verið til í að vera svona klár þegar ég var sextán ára. Eða núna, jafnvel.

Re: Eitt líf er ekkert líf

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og jú; við erum nefnilega (a.m.k. að hluta til) efnið sem við erum úr (þó svo að það breytist um það og svo framvegis). Ef efnið væri ekki hluti af mér, hver er þá að skrifa þetta? Það væri þá bara einhver hrúga af kolefni, vatni og kalki auk annarra efna, sem hefur myndað þetta form, sem hefði ekkert með mig og mitt sjálf að gera. Og ef ég myndi nú hitta þig og kyssa - nei, það væri ekki ég sem kyssti og ekki þú sem værir kysstur, heldur bara tvær kjötklessur að snertast. Og það jafnvel...

Re: Vísindasiðfræði

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þakka þér fyrir. Það er náttúrulega ágætis spurning, hvort að það gildi e.t.v. það sama um listamenn og vísindamenn: Hvort maður geti sagt “vísindin vísindanna vegna”, alveg eins og menn segja “listin listarinnar vegna”? Það er kannske ekki svo galið… Vísindi eru eins konar listgrein, og listir eru hálfgerð vísindi. Ekki satt? Annars með Grikkina; mig minnir að vísindin hafi ekki lent í þessum flokk. En myndlist og höggmyndalist töldust til handverka; kveðskapur og tónlist var hins vegar “ekta” list.

Re: Skemmtistað fyrir homma á Íslandi.....

í Djammið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Æ já, þú ert orðinn 19. Sorrý. En miðað við eigin reglur, þá eru þeir fáir sem ættu að gera það.

Þorsteinn.

Re: Jarðfesting - hvað dregur þig niður til jarðar

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er fyndið, já, þegar fólk heldur því fram að sjálfselska og eiginhagsmunagæsla sé undantekningarlaust eitthvað rangt, eitthvað sem eigi að forðast. Hins vegar skil ég ekki þessa setningu: “ … vegna þess að sjálfselsk gjörð er ekki til!” Á hún að hljóma svona, eða vantar einhvers staðar “ekki” í hana? Og manni líður ekki alltaf vel þótt maður vinni góðverk. Stundum, en ekki alltaf.

Re: Hver borgar?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Engann. En það kemur málinu ekki við, því eins og komið hefur fram, þá sýndist mér octavo vera að tala um stybbuna (þ.e. vondu lyktina) en ekki skaðlegri áhrif reykinga. Ég minnist raunar á þau síðar í því svari sem þú ert að svara. En raunar þekki ég engan sem ég veit til að hafi dáið vegna reykinga, hvorki beint né óbeint.

Re: Skemmtistað fyrir homma á Íslandi.....

í Djammið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Tæknilega séð, þá máttu ekki djamma. Þetta veistu vel. Það er annars ekki að þú megir ekki fara á skemmtistaði; skemmtistaðirnir mega bara ekki taka við þér. Hins vegar má fólk alveg gera greinarmun á gríni og alvöru … Þetta sem ég segi um aldur og slíkt er ekki til þess að taka alvarlega. Og raunar ætti ekki að taka neitt sem nokkur maður segir eða skrifar OF alvarlega.

Þorsteinn.

Re: Jarðfesting - hvað dregur þig niður til jarðar

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Úff, hvað menn eru eitthvað viðkvæmir. Það má ekki einu sinni segja “Mig minnir endilega að þessu sé farið á hinn veginn: Ekki að maður eigi að elska sjálfan sig eins og aðra; maður á að elska aðra eins og sjálfan sig,” og þá eru menn komnir í fýlu, fara að uppnefna fólk, gera þeim upp skoðanir, draga ályktanir (af afar hæpnum forsendum) um siðferðisþroska og ég veit ekki hvað og hvað … Jæja, það er þó gaman að þú skulir halda að ég hafi alltaf rétt fyrir mér. Eina sem ég gerði var að nefna...

Re: Jarðfesting - hvað dregur þig niður til jarðar

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta er ekki það sama, þetta er ekki eins og samlagning eða margföldun. Þetta er mun líkara frádrætti eða deilingu; 2-4 er ekki það sama og 4-2, og 5/20 er ekki jafnt og 20/5. Það er ekki gefið að manni sé annt um aðra. Ef maður á að hugsa eins vel um sjálfan sig og aðra, en er ekkert annt um aðra, þá er manni ekki annt um sig, heldur. Hins vegar eru flestir sjálfselskir, þykir vænt um sig og svo framvegis (og það er ekkert athugavert við það). Og ef maður á að hugsa um aðra jafnvel og...

Re: Eitt líf er ekkert líf

í Heimspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta er flottar pælingar og vel skrifað hjá þér. En mér sýnist ekkert af því sem þú segir leiða af neinu öðru. “Mannsandinn er svo miklu meira, það að við vitum að við séum til, sú staðreynd, þessi vitund, hefur mannsandann upp úr raunveruleikanum. Það er ekkert náttúrulegt við það að geta skilið og skynjað og í framhaldinu skilið að maður skilji og skynjað að maður skynji, það er tvímælalaust yfirnáttúrulegt.” Alls ekki. Í fyrsta lagi er ekkert til sem má með réttu kalla “yfirnáttúrulegt”:...

Re: Jarðfesting - hvað dregur þig niður til jarðar

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mig minnir endilega að þessu sé farið á hinn veginn: Ekki að maður eigi að elska sjálfan sig eins og aðra; maður á að elska aðra eins og sjálfan sig. Annars sagði ég þetta nú bara meira í gríni en alvöru, út frá þeirri setningu þinni að þér sýndist sem allar lífsnautnir væru flokkaðar sem syndir í þeim bókum sem þú hafðir lesið. Og Gunni er klikk (eins og Steinríkur/Obelix hefði sagt).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok