Forliðir Hvernig má fullyrða að forliðanotkun sé ljót? Ég er ekki sammála - mér finnst hún mjög oft ljóði til bóta og gera hrynjandina hljómfegurri. Ég greip af handahófi bókina Ljóð frá liðnu sumri eftir Davíð Stefánsson. Ljóðin Sorg, Húsmóðir, Að Skálholti, Föðurtún, Á vesturleið, Til hvers?, Við Hreindýravatn og eflaust fleiri í þeirri bók hafa að geyma forlið í upphafi hverrar einustu línu. Þá er afar algengt að forliðurinn “og” sé notaður í upphafi setningar. Ég veit ekki með þig, en ég...