Þú ert hafið, golan hlý
hlærð og róar minn huga
Hér er komin hamingja ný
hættur allar tekst þér að buga

Ég veit að þú munt ekki særa mig
en ég mun samt vera varkár
Ég sjálf skal aldrei særa þig
Slíkt skapar aðeins leiðindafár

Ég sakna þín, elsku maðurinn minn
Má ég nú hjá þér vera?
Sterkur er stæltur armur þinn
Sál þína vil ég bera

Ég vil segja þér öll mín leyndarmál
í draumum þínum vil ég dvelja
Skyggnstu inn í mína leyndu sál
svo hún muni mig ekki lengur kvelja
Ég finn til, þess vegna er ég