Ég held að ég hafi skilið þig rétt, potent, að þú sért að tala um tilgang lífsins, þ.e. allra lífvera hversu stórar sem smáar þær séu. Það er ekki verið að tala um tilgang einstaklingsins eða einstakra hluta. (Ef tilgangur einstaklingsins er t.d. að hjálpa öðrum, hvað eru þá allir hinir að gera hér?) Ég er sammála þér í því að tilgangur lífsins sé að viðhalda lífi. Það er því tilgangur hverrar lífveru að viðhalda því lífi sem að hún hefur. Hver tegund reynir að viðhalda tegundinni o.s.fr. Ég...