Sælt veri fólkið! Ég á frænkur sem eru mjög skondnar, þær eru systur og sú eldri er 5 ára en sú yngri er 4 ára. Um daginn vorum við þrjár á leiðinni í sund saman og þá mættum við bíl sem mér fannst keyra heldur of hratt. Ég fer eitthvað að bísnast yfir bílstjórnaum við sjálfan mig og þá heyrist frá þeirri eldri í aftursætinu: Já hann keyrir rosa hratt þessi! Löggann verður bara að taka hann og gefa honum sogt! Ég: Segt? Sú eldri: Já, segt. Ég veit alveg hvað segt er. Ég: Já, ég veit það...