Ég varð ekkert smá reið þegar ég horfði á þáttinn í dag (sem sé þriðjudag). Hvað er í gangi hérna? Vill Susan að Karl missi læknaleyfið? Það er alla vegana ekki hægt að ásaka Karl fyrir að elska ekki Susan því að í einu skiptin sem hann hefur brotið eyðinn er þegar hann er að tala við Susan. Ég varð rosalega reið þegar hún setti bréfið í póstkassann! Ég meina Sky hefur engum sagt nema Karl hvernig málið er og svo fer Susan að kjafta þessu, maður hefði þó haldið að Susan af öllum ætti að vera vitrari.

Mér er alveg sama þó að þetta muni kannski fá hana Rachel frekjudós til þess að anda aðeins og sjá það sem allir aðrir sjá, Susan átti samt ekki að gera það sem hún gerði! Susan var bara að blanda sér í málefni sem er á milli Sky, Dylan og Gadda! Susan hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér en hún hegðaði sér MJÖG illa í dag og ég veit ekki hvort ég fyrirgefi henni þessa hegðun í bráð?

Hvað finnst ykkur svo um þetta?

Kveðja
Silungu