Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Svindl í Sims 3 (3 álit)

í The Sims fyrir 11 árum, 5 mánuðum
Ég veit að ég er nokkuð bjartsýn að einhver lesi þetta þar sem það hefur enginn skrifað nett á þessa síðu í marga mánuði. En ég bara læt vaða og vona að einhver þarna úti geti svarað mér :) Ég var að velta fyrir mér hvort það væri ekki til svindl í Sims 3 sem væri þess eðlis að það er hægt að breyta útliti simsanna sem maður er búin að búa til eða tölvan hefur búið til? Vona að einhver sjái þetta og svari mér Silungur

Nágrannar að hætta? (11 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Ég var að skoða netið um daginn og á vafri mínu kom ég inn á síðu sem var sett saman af stuðningsmönnum Nágranna. Af lestrinum að dæma hefur BBC ákveðið að hætta með Nágranna eða alla vegana búið að hugleiða það. Hefur einhver heyrt af þessu hér? Ef einhver hefur meiri fréttir af þessu veit hann þá hvað við eigum langt eftir? Ég vona samt að það verði ekki úr þessu þar sem Nágrannar eru gamalgróinn þáttur sem væri slæmt að missa!

Max? (15 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ég varð ekkert smá spent í gær þegar þátturinn endaði og Max var bara kominn aftur!!! Hins vegar leistist þessi þáttur í dag aðeins öðruvísi en ég hafði þorað að vona. Haldið þið að Max hafi alltaf lifað tvöföldu lífi? Sjálf er ég ekki lengur viss um hverju ég á að trúa um hann og hlakka ég því mikið til að fylgjast með næstu dögum. Vonandi kemur Max bara heim og allt leisist á farsælan hátt.

Fiðrildi :| (9 álit)

í The Sims fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvernig í himnunum ég losna við þessi fiðrildi!?! Ég hreinlega hata að bygga hús með fiðrildi á lóðinni! Maður getur ekki eyt þeim þó maður geri move_objects on og þó ég biðji fólkið um að fanga þau þá nær það aldrei öllum. Svo er maður að byggja hús, setja gangstétt eða eitthvað og þá er það ekki hægt vegna þess að fiðrildin eru fyrir! Veit einhver svarið við þessu?

Gifting? (13 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Sko á föstudaginn þegar þátturinn endaði þar sem Paul virtist hafa mist málið var ég alveg viss um að þátturinn í dag myndi byrja á því að Paul segði nei. Svo hrekkur gaurinn í gang eftir að allir í kirkjunni voru farnir að halda að eitthvað væri að honum og segir já. Nú já, ég var þá búin að sætta mig við þetta allt og þau þetta ekkert smá ánægð með þetta allt (þar að segja brúðhjónin). Hvað gerir hann svo um leið og þau eru orðin ein? Jú hann segir konunni sinni að hann sé drullusokkur...

Hræðilegt! (16 álit)

í Börnin okkar fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Sæl veriði. Núna áðan var verið að segja frá því í útvarpsfréttunum að móðir litlu stúlkunnar sem hvarf í Portúgal í sumar væri hugsanlega talin sek. Allir sem hafa fylgst eitthvað með þessu máli öllu vita að þetta er mikill harmleikur frá upphafi til enda. Það er náttúrulega alltaf mjög sorglegt þegar börn hverfa svona og maður finnur alltaf til með fjölskyldunum sem þurfa að lenda í svona hörmungum. En núna er lögregglan farin að halda að móðirin og jafnvel faðirinn hafi átt þátt í þessu...

Reykjavík ekki á Íslandi? (16 álit)

í Börnin okkar fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Núna um daginn var ég að horfa á einhverja bandaríska fjölskyldumynd í sjónvarpinu með tveimur frændum mínum (sá yngri er alveg að verða 6 ára). Svo allt í einu spyr sá yngri: Býr þetta fólk á Íslandi eða í Reykjavík?

Sogt (3 álit)

í Börnin okkar fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Sælt veri fólkið! Ég á frænkur sem eru mjög skondnar, þær eru systur og sú eldri er 5 ára en sú yngri er 4 ára. Um daginn vorum við þrjár á leiðinni í sund saman og þá mættum við bíl sem mér fannst keyra heldur of hratt. Ég fer eitthvað að bísnast yfir bílstjórnaum við sjálfan mig og þá heyrist frá þeirri eldri í aftursætinu: Já hann keyrir rosa hratt þessi! Löggann verður bara að taka hann og gefa honum sogt! Ég: Segt? Sú eldri: Já, segt. Ég veit alveg hvað segt er. Ég: Já, ég veit það...

Myndir vs. Bækurnar (20 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Sælt veri fólkið. Ég fór í gærkvöldi á myndina um hann vin okkar Harry Potter í annað sinn síðan byrjað var að sýna hana. Í fyrra sinnið fór ég ásamt frændsystkinum mínum sem hafa bæði séð hinar myndirnar (stelpan er búin að lesa fyrstu 4 bækurnar). Þau höfðu mjög gaman af þessari mynd en þau föttuðu ekki alveg allt saman. Í gær fór ég ásamt móður minni (sem hefur séð fyrstu myndina), mákonu minni (sem hefur lesið eina bók og séð allar myndirnar) og mömmu hennar (sem hafði eins og mamma mín...

Smá hugleiðing (13 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ég er mikið búin að pæla í einu frá því að ég las 6. bókina fyrst. Í enda bókarinnar kemur fram að Harry hefur einsett sér að koma ekki aftur í skólann síðasta veturinn sinn. Ron og Hermioni ætla því einnig að hætta í skólanum og hjálpa honum. En ef ég hef skilið allar hinar bækurnar rétt þá verður maður að klára öll 7 árin til þess að ná einhverjum starfsframa í galdraheiminum (bara eins og hjá okkur). Harry hefur ákveðið að hann langi til þess að verða skignir og því hefði maður haldið að...

Ekkert smá sár! (19 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Okey ég veit vel að sápuóperur lifa og hrærast í því að hafa fólkið í þeim helst ekki of lengi hamingjusamt en ég er orðin frekar þreytt á endalausum stórvandamálum sem dinur á fólki í þessum þáttum! Til dæmis þetta með hann Max núna, af hverju þurfti hann endilega að verða til þess að Cameron dó? Var ekki nóg að hann hafði slasast eitthvað? Og ofan á allt hitt eru hann og Stef búin að vera eitthvað ósátt út af Kathy (hvernig sem þetta nafn er skrifað) mjög lengi. Ég veit ekki hvernig þetta...

Skondið (7 álit)

í Börnin okkar fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Sæl öll! Ég á mjög skonda litla 4 ára frænku sem kemur manni oft til þess að brosa ef ekki bara að hlægja. Í dag fórum við frænkurnar saman í sund í veðurblíðunni sem er ekki frá sögu færandi, en það var svolítið fyndið samtal sem fór okkar á milli sem ég bara varð að deila með ykkur ;) Ég: María ertu búin að þurka þér á milli tánna? Hún: Nei. Svo líður smá stund og þá segir hún svona meira við sig sjálfa en mig: Og mig langar ekkert til þess. Þetta er eflaust ekkert fyndið þegar maður les...

Tvær spurningar (10 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég hrofði á þáttinn í gær (hef ekki séð lengi) og þá vöknuðu upp hjá mér tvær spurningar sem ég vona að einhver hér gæti hugsanlega svarað. Sú fyrsta fjallar um Lou, er hann virkilega að missa vitið? Eða vill hann ekki segja frá einhverju sem geriðst í þessu ferðalagi? Sú seinni er um Anne (blindu stelpuna). Mér finnst einhvern vegin eins og hún sé hið rétta barn Timminsfjölskyldunnar hvað finnst ykkur? Hefur það kannski komið fram? Því að í þættinum í gær sagði Janelle við hana að hún væri...

17. júní (12 álit)

í Börnin okkar fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég á mjög hressar og yndislegar litlar frænkur sem eru systur og eru 4 og 5 ára. Við búum allar úti á landi en við vorum um helgina staddar í Reykjavík. 16. júní voru þær mjög spenntar fyrir deginum á eftir og voru alltaf að tala um 17. júní. Sú yngri var að pæla í því hvernig áhtíðarhöldin færu fram heima og komst að því að þau fjölskyldan myndu ekki missa af neinu (enda fóru þau aftur heim um kvöldið 16. júní). Þær voru greinilega búnar að vera að æfa Hæ hó og jíbbí jé í leikskólanum og...

Donna og David (28 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Okey ég verð að viðurkenna að þegar ég sá þessa þætti síðast (þegar þeir voru sýndir fyrst hér á landi) þá hataði ég Donnu, hún einfaldlega fór í mínar fínustu taugar. Þegar þessir þættir byrjuðu svo aftur í fyrra kom þessi tilfinning aftur ég bara þoldi ekki að horfa á þessa manneskju á skjánum! En ég hins vegar dýrka David og hann er æðislegur! Hérna í den og í fyrra skildi ég ekkert í því hvers vegna þau voru alltaf látin vera saman? En núna var ég að horfa á þáttinn í dag þar sem þau...

Smá spurning. (15 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Sælt veri fólkið. Þannig er mál með vegsti að ég hef nánast ekkert horft á Beverly Hills neitt að ráði síðan síðasta sumar en ég horfði á brot úr þætti núna í morgun og þá vaknaði upp hjá mér spurning sem ef til vill einhver hér gæti svarað. Ég sá atriði með Steve þar sem hann var með einhverri nýrri gellu og hjá þeim var barn. Á Steve þetta barn? Og hver er þessi gella?

Leiðinlegt sjónvarpsefni! (10 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Sæl veriði hugar. Ég verð bara að deila með ykkur uppgvötvun minni. Ég var á næturvakt í nótt (sem er ekki frásögu færandi) en þá var eina sjónvarpsefnið í sjónvarpinu Vörutorg sem ég hef nú ekki mikið horft á fyrr. Jæja þar sem ekki var um neitt annað að velja í sjónvarpinu ákvað ég að horfa á þetta en VÁ þetta var bara leiðinlegt! Það vesta við þáttinn er eflaust þáttarstjórnandinn sem hreinlega kann ekki að tala! Jú auðvitað kann hann að tala (annars hefði hann ekki fengið þetta starf) en...

Hvað drakk Karl? (18 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Okey veit einhver hvað það var sem Izzy gaf Karl að drekka?

Hvað varð um Kalla Bjarna? (23 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Sæl öll sömul. Ég sit hér við tölvuna mína og Kalli Bjarni er að syngja fyrir mig. Um leið og lagið (Aðeins einu sinni) byrjaði fór ég að hugsa til þess að ég hef ekkert heyrt um Kalla Bjarna lengi. Veit einhver hvað varð um hann? Er hann ennþá að syngja eða bara horfinn? Kveðja Silungu

Barnið (8 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Jæja, þá er það komið í ljós að það er hugsanlega eitthvað að barninu sem Sky ber undir belti. Ég vona bara að líkurnar vinni með þeim og það sé ekkert að barninu, en það eru ekki miklar líkur á því að þetta barn sé heilbrigt. Hún er að sjálfsögðu ekki búin að segja neitt um faðernið þó svo að ég hafi sent henni hugskeiti á hverjum degi núna. Dylan er alveg augljóslega hrifinn af Sky ennþá en því miður á hann aðra kærustu. Það verður því spennandi að sjá hvernig þetta leisist allt saman. Því...

Karl bjargar heiðrinum! (2 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Karl kom sá og sigraði í þessum þætti! Ég varð samt svolítið smeik um að þau myndu ná honum og lesa bréfið, það hefði bara verið hræðilegt! Svo var hann flottur þegar hann plataði hana mömmuna (man ekki hvað hún heitri).

Skamm Susan!!! (2 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég varð ekkert smá reið þegar ég horfði á þáttinn í dag (sem sé þriðjudag). Hvað er í gangi hérna? Vill Susan að Karl missi læknaleyfið? Það er alla vegana ekki hægt að ásaka Karl fyrir að elska ekki Susan því að í einu skiptin sem hann hefur brotið eyðinn er þegar hann er að tala við Susan. Ég varð rosalega reið þegar hún setti bréfið í póstkassann! Ég meina Sky hefur engum sagt nema Karl hvernig málið er og svo fer Susan að kjafta þessu, maður hefði þó haldið að Susan af öllum ætti að vera...

Hvað finnst ykkur? (5 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Hvað finnst ykkur um þetta Susan Karl mál? Sjálf er ég mjög sár yfir því að þau séu ekki saman. Mér finnst hún Rachel mjög ósanngjörn við Susan og ég vona að hún sjái að sér sem fyrst! En ég er mjög hrædd um að Karl brjóti eyðinn og segi Susan frá því að Scot eigi barnið. Þetta mál með Paul og konurnar í lífi hans er náttúrulega alveg farið úr böndunum! Hvað er maðurinn líka að hugsa? Hann býr með kærustu sinni og svo fær hann fyrverandi eiginkonu sína í heimsókn. Ég misti nú af einhverjum...

Hvenær? (3 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Sæl veriði. Núna er fyrsti mánudagurinn eftir að O.C. hætti og maður er ekki alveg að átta sig á þessu. En veit einhvern hvenær serían kemur í búðir? Ég var í BT áðan og þeir vissu það ekki svo ég ákvað bara að spyrja hér hvort að einhver vissi það. Kveðja Silungu

Allt búið :'( (11 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Vá maður! Ég held að ég hafi sjaldan grátið eins yfir sjónvarpsþætti eins og núna áðan! Þetta tók sko á! Endirinn var alla vegana góður og það er gott! Ég hefði náttúrulega bara alls ekki hætt að gráta ef endirinn hefði verið slæmur! Ég var samt alveg að deyja þegar Ryan var að kveðja húsið! Vá hvað sú sena tók á. Tala nú ekki um þegar Summer og Seth voru að kveðjast. En núna er bara að bíða eftir að þessi sería komi í verslanir og þá getur maður alltaf horft á hana alveg eins og með hinar...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok