Vá maður! Ég held að ég hafi sjaldan grátið eins yfir sjónvarpsþætti eins og núna áðan! Þetta tók sko á!

Endirinn var alla vegana góður og það er gott! Ég hefði náttúrulega bara alls ekki hætt að gráta ef endirinn hefði verið slæmur! Ég var samt alveg að deyja þegar Ryan var að kveðja húsið! Vá hvað sú sena tók á. Tala nú ekki um þegar Summer og Seth voru að kveðjast.

En núna er bara að bíða eftir að þessi sería komi í verslanir og þá getur maður alltaf horft á hana alveg eins og með hinar ;)

Núna erum við búin að kveðja vini okkar frá Newport Beach í sjónvarpinu en sem betur fer er alltaf hægt að “heimsækja” þá með því að skella DVD með þeim í tækið ;)

Kveðja
Silungu