Okey ég verð að viðurkenna að þegar ég sá þessa þætti síðast (þegar þeir voru sýndir fyrst hér á landi) þá hataði ég Donnu, hún einfaldlega fór í mínar fínustu taugar. Þegar þessir þættir byrjuðu svo aftur í fyrra kom þessi tilfinning aftur ég bara þoldi ekki að horfa á þessa manneskju á skjánum! En ég hins vegar dýrka David og hann er æðislegur! Hérna í den og í fyrra skildi ég ekkert í því hvers vegna þau voru alltaf látin vera saman? En núna var ég að horfa á þáttinn í dag þar sem þau voru að reyna að leika eftir nýjum reglum og það var ekki alveg að ganga hjá þeim. Svo núna er ég alveg komin í Donnu og David liðið og skil ekkert hvers vegna David er með þessari gellu sem hann er með þegar hann elskar augljóslega Donnu ennþá! Eins þessi Noha gaur sem var greinilega með Donnu (hef misst af mörgum þáttum svo ég veit ekkert hvað gerist á milli þeirra nema að þau hættu greinilega saman). En alla vegna þessi Noha gaur hvað er málið með hann aftur? Ég man það ekki (frá því hérna í den).

En alla vegna núna bíð ég rosalega spent eftir því að David hætti með þessari gellu sem hann er með, hún er svo sem ágæt en hún er ekki sú sem hann elskar. Svo ég bíð spent. Ég hélt að ég ætti aldrei eftir að segja þetta enda hataði ég alltaf Donnu en núna þegar ég er orðin eldri er ég orðin mikill stuðningsmaður hennar. Það er svo skrítið hvað maður getur breyst :)

En hvað finnst ykkur? Á David að vera með Donnu eða hinni (sem ég man ekki hvað heitir)?