Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Erlendir ríkisborgarar

í Deiglan fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Þetta er vitaskuld hið skelfilegasta mál. Fyrirsögn blaðsins þar sem stóð ,,12 útlendingar handteknir" og svo kom fyrir neðan í tenglum við nauðungartilraun og líkamsárás og þjóðerni viðkomandi manna tilgreint. Það er nokkuð til í því sem greinarhöfundur segir, að þessi lönd séu frumstæð, amk að sumra mati. Áflog á meðal þeirra þarna í Eystrarsaltsríkjunum eru hreinlega bara vottur um karlmennsku, að láta ekki vaða yfir sig. Margir þessarra manna sem hingað koma eru fyrrverandi hermenn og...

Re: Bubbi Lögin Mín

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Fínasti diskur og sammála þér með að diskurinn er fínn í rólegheitum heimavið. Mæli ekki með því að hlusta á hann við akstur, maður gæti bara dáleiðst og ekið útaf.

link

í Forsíða (gamla) fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þetta er án bestu atriða með Borat. “It is a shame that you can not have in one of this.. eeh a deer and then a jew and say; you can hunt a jew” Hvílík snilldar lína og maðurinn er sjálfur gyðingur.

Re: Ohh, enn ein Muse greinin

í Rokk fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Öndvegis pistill hjá þér. Bravó. Alltaf gaman að lesa meir um þessa fínu hljómsveit.

Re: Þinn allra fyrsti character?

í Blizzard leikir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Human priest.

Re: Jack Bruce

í Jazz og blús fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Fínasta grein. Gaman að lesa um manninn.

Re: musiciansfriend

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þú getur svo sem reynt að semja við þá úti um að senda heim til Íslands, aldrei að vita ef þú lendir á einhverjum léttum og skemmtilegum afgreiðslumanni.

Re: musiciansfriend

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Fyrir það fyrsta þá senda þeir ekki til Íslands. Í öðru lagi þá er kaninn voðalega aftarlega á merinni hvað erlend greiðslukort varðar og taka oftast aðeins við ávísunum í gegnum banka. Ég pantaði mér bandalausan Rogue-bassa og skildi ekkert afhverju pöntunin fór aldrei af stað. Svo loks eftir mánuð þá mannaði ég mig upp í það að hringja út og þá kom allt í ljós. Þannig líklegast þarftu að fara í þinn viðskiptabanka með reikningsupplýsingar frá musiciansfriend.com sem þú færð hjá þeim og...

Re: Besta leiðin til að ná level 60.

í Blizzard leikir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þetta er ansi flott. Hvílík tilviljun.

Re: Kennarar sem kenna Coolistic

í Skóli fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Fyrirsögnin vafðist aðeins fyrir mér. Ég taldi Coolistic vera einhverskonar nýmóðins lífsstílsnám. Nú, eftir að ég rak augun í nafn notanda þá var sem guðdómleg ljós skyni ofan úr loftinu en þó glöggvaði ég mig á því fyrir rest að það var aðeins loftljósið. Ljómandi gott annars.

Re: Kanabisefni

í Heilsa fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hvað með rétt minn til að búa í siðmenntuðu þjóðfélagi þar sem rónalýður er almennt ekki upphafður? Haha, skemmtileg setning. Til helvítis með allt þetta andskotans dóp. Fólk nú til dags er svo upptekið af réttindum sínum að það gleymir skyldum sínum. Fávitar.

Re: Þunglyndi, óánægja í skóla og einmanaleiki

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Tek eftir einu að þú vilt að hlutirnir gangi upp eftir þínu höfði, ég vil þetta nám og ekkert annað. Hvílík dásemd ef það væri hægt. Lífið út í gegn er oftast nær ekkert annað en endalaus barátta við það sem manni finnst leiðinlegt og vildi helst forðast og vera laus við. Það eru þó þessir leiðinlegu hlutir sem móta okkur og herða okkur sem einstaklinga, að mínu mati. Þessi mikli einmannleiki er engan veginn eðlilegur eins og þú gerir þér væntanlega grein fyrir. Hafiru ekki þegar leitað þér...

Re: Welcome to Iceland we are as stupit as you think.

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já, því það er svo frábært. Það væri kannski hægt ef allir jarðarbúar væru heiðarlegt og gott fólk. Raunin er önnur svo við höldum okkar landamærum takk fyrir.

Re: Welcome to Iceland we are as stupit as you think.

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Leit aðeins nánar á málið. Skv reglugerð þá eru pakistanar ekki undanþegnir vegabréfsáritun. Þetta blað þarna í Pakistan hefur bara verið að bulla eitthvað. Kannski einhverjir glæpamenn eða bara misskilningur. Líttu á reglugerðina undir viðauka 3 (mj0g neðarlega) http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/053-2003

Re: Welcome to Iceland we are as stupit as you think.

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég hef nú ekkert heyrt af þessu og voðalega sem mér finnst þessi frétt stutt og snubbótt. Skv Útlendingastofnun þá eru Pakistanar ekki á undanþágu frá vegabréfsáritun sjá hér : http://utl.is/aritanir/hverjir-thurfa-ekki-aritun-til-landsins/ eeeeeeeeeeeen listinn gæti svo sem verið úreltur. Þessar reglur kæmu ekki aðeins til að gilda um Ísland eitt og sér heldur yfir allt Schengen svæðið sem eru ein 15 ríki þ.e. vestur Evrópa utan Bretlands og Írlands. Verð að skoða þetta atriði nánar.

Re: hvar varstu 9/11

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég var í vinnuni. Útvarpið var í gangi, stillt á Rás 2, og ég heyrði Óla Palla tala eitthvað um WTC. Velti því ekkert frekar fyrir mér. Rölti upp í verslun (já ég vann í verslun) og sá þá á sjónvörpunum sem voru til sölu einhvern fréttamann hjá CNN að tala um WTC. Ég hugsaði með mér, hvað eru þeir nú að tala um atburðinn þarna 1993? Nei… ég lít aðeins betur á skjáinn og sá reyk stíga upp af öðrum turninum. Örfáum mínútum síðar er ég horfði bergnuminn á skjáinn sá ég seinni vélinni flogið inn...

Re: Lítið eitt um gítarplokk

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Úrvals pistlingur hjá þér.

Re: Hársídd?

í Metall fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þó ég sé rokkari þá er ég bara með stutt hár.

Re: Þið trúið þessu ekki en...

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Síðast þegar ég vissi og leit á skjáinn þá stóð 4.557 stig.. hvernig svo sem ég eignaðist þau.

Re: Langar að kaupa alla DaoC expansions+leikinn

í MMORPG fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Já sorry… hélt það stæði 28. júlí en ekki 28. janúar við korkinn. Forget what I said before :p

Re: Langar að kaupa alla DaoC expansions+leikinn

í MMORPG fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég á allan pakkann og skal glaður selja þér hann fyrir sanngjarnt verð.

Re: Áramót N-Kóreu

í Deiglan fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Var þessi grein ekki hérna um daginn eða þá sem korkur? Finnst hún eitthvað voðalega kunnuleg. Hvað um það. Varðandi efnið að þá treysti ég frekar Kananum og v-Evrópuþjóðum til þess að halda kjarnavopnum heldur en þeim þarna í N-Kóreu. Skítt með það þó Kaninn hafi brúkað vopnin, þeir eru samt betri gæsluaðilar. Kaninn er meingallaður en hann er þó margfalt betri en þetta einræðisríki sem níðist á þegnum sínum og heldur þeim föngnum í fáfræði og einangrun frá umheiminum. Jájá margur Kaninn er...

Re: Nauðganir, fólkið og dómskerfið.

í Deiglan fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Vissulega er það furðulegt ef refsihámark fyrir ákveðið brot er kannski 10 ár en þó er aldrei farið hærra en í 3-4. Fleirra kemur til. Til er hin svonefnda meðalhófsregla sem í raun stýrir öllu og þýðir: Að beita ekki harðari úrræðum en þörf er á hverju sinni. Þá kemur annað til. Hvað er það sem er tekið til refsihækkunar og hvað til refsilækknunar. Sé t.d. um að ræða fyrsta brot þá er tekið tillit til þess. Hafi viðkomandi sótt meðferð við einhverju (fíkn, ofbeldishneigð eða hverju sem er)...

Re: Mon Mothma

í Sci-Fi fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ljómandi pistill.

Re: Nauðganir, fólkið og dómskerfið.

í Deiglan fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Þú meinar. Svona fyrir forvitnissakir… hvar býrðu þar sem lögreglan er svona léleg?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok