Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Gamall CS-ari snýr aftur - allt breytt.

í Half-Life fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Skemmtilegt og vel ígrundað svar hjá þér.

Re: Endless Dark

í Metall fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Spila þessir ungu herramenn e-k nýmóðins framúrstefnu jazz?

Re: Ljósmyndakeppni - Áramótin

í Ljósmyndun fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ekki það að ég muni taka þátt en það verður gaman að sjá myndirnar. Alltaf skemmtilegt myndefni blessuð áramótin.

Re: Hvaðan kemur allt þetta heimska fólk?

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég held þú verðir bara að sætta þig við ástandið því veistu hvað… síðasta fíflið er ekki enn fætt þ.a.l. mun þetta engan endi taka.

Re: víííí

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Til lukku með daginn.

Re: Eddy boy dæmdur fyrir nauðgun á 13 og 14 ára stúlkum!

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Jújú, vissulega. Miðað við það sem ég hef kynnst af réttar- og refsivörslukerfinu þá tel ég það hverfandi líkur að menn séu dæmdir saklausir í fangelsi á þessu landi. Eflaust hafa komið upp slík tilvik en þau eru líklega afar fá í seinni tíð. Þá hljóta einnig önnur atriði en orð stúlkunnar og hans þarna hvað hann nú heitir að vera notuð til sönnunarfærslu. En svo eru oft nauðganir þannig að oftast nær eru það nær eingöngu orð gegn orði. Þá er það afar mikilvægt að hægt sé að meta framburð...

Re: Eddy boy dæmdur fyrir nauðgun á 13 og 14 ára stúlkum!

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Vitaskuld. Ef það á að dæma mann fyrir nauðgun á annað borð skal hann barasta dæmdur rækilega. Ætti að hafa lægri refsingu þar sem sönnunin var ekki alveg nógu góð en svona samt nógu skítsæmileg? “Jæja slettum hálfu ári á kvikindið og látum gott heita fyrst sannanirnar voru ekki betri”. Annars finnst mér þrjú ár frekar skítleg fyrir sálarlíf 13 ára barns.

Re: Hljóðsprengjur

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Horfðu á málið svona og einnig með tíðaranda þess tíma sem var þá: Við erum hér, Bandaríkjamenn, og hugleiðum innrás inn í Japan. Vandinn við það er að nánast hvert eitt og einasta mannsbarn verður óvinur okkar, allir munu berjast. Þetta verk mun þarfnast hundruð þúsunda hermanna. Fjandans vesen og margir þeirra munu deyja. Við eigum sprengju sem mun stúta Japönum og spara okkur bandarísk líf. Til fjandans með þá. Sprengjum þá og verndum okkar eigið fólk. Þeir eru hvort eð er óvinurinn. — Ég...

Re: Dúndurfréttir!

í Gullöldin fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Fór á nefnda hljómleika sl. þriðjudagskvöld. Öndvegis skemmtun. Hreint afbragð.

Re: Uppáhalds

í Gullöldin fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hvurslags spurning er þetta eiginlega? Þetta er eins og að láta mann gera upp á milli barnanna manns. En í fullri alvöru þá er þetta ansi strembið… nefna eina. Tvær koma helst til greina, Zeppelin og Floyd. Þar sem ég hef hlustað lengur á Zeppelin vel ég þá. Nei, Pink Floyd!

Re: Dúndurfréttir

í Gullöldin fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Búinn að tryggja mér miða á þriðjudagskvöld. Bæði settin. Minna má það ekki vera.

Re: Dark Side Of The Moon

í Gullöldin fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Eins og einhver orðaði það þá er þetta eins og að hlusta á eitt lag, bara í lengra lagi. Ef ég tek stök lög út þá eru það Money og Time. Hin verða að koma í röð annars fara þau alveg í rusl. Maður dettur alveg inn í þessa plötu. Hún er svona semi-hættuleg í umferðinni t.d. Ég dáleiðist alveg af tónlistinni.

Re: Löreglofbeldi

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hey hey… ekki þessa umræðu í þessum búning. Morð er nokkuð þegar einhver tekur líf annars manns af yfirlögðu ráði, eða á lagamáli af ásetningi. Þetta á hótelinu er hörmulegur atburður og við skulum bíða eftir niðurstöðum áður en við getum komið með svona fullyrðingar.

Re: Löreglofbeldi

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hvað áttu við með lögregluofbeldi í fyrirsögninni en svo er korkurinn um hugmynd að vopna hluta lögreglunnar. Kemur ofbeldi bara ekki nokkurn einasta hlut við. Ég er persónulega ekki hrifinn af skotvopnum en við verðum samt að átta okkur á því að glæponarnir eiga alveg byssur. Hvenær og þá í hvaða mæli ætti lögreglan að vopnast, þegar fyrsta löggan verður drepin í vinnunni?

Re: Borat og Ali G - Endurrisið áhugamál og 4 nýjir stjórnendur

í Borat, Ali G og Bruno fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Jagshemash. High Five! “Do you think Tony Blair takes of his clothes and put his hrum into another man's anus?” “My sister was voted nuber four best sex in mouth by Almaty chamber of commerce” Þessi maður er snillingur.

Re: Hún hatar kvenfólk

í Tilveran fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Já… annað hvort er vinkona þín mjög sérlunduð eða á við einhver vandamál að stríða. Ég giska á hið síðarnefnda. Virkilega áhugavert. Þú ert þó ekki að tala sum sjálfa þig er það - varla.

Re: T5 warlock

í Blizzard leikir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Helvíti svalt bara… gæti líka litið vel út á undead…

Re: Magnari....

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Já experimenta… smá afbökun á enska orðinu experiment / experience…. gera tilraunir… prófa þig áfram… leika þér…. what ever….

Re: Magnari....

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Það er ekki óalgengt að jazzarar nota Fender Bassmann (bassamagnari frá Fender) fyrir gítarana sína, hef séð það nokkrum sinnum. Þannig ef þú ert til í að experimenta þá er það alveg í lagi að prófa bassamagnara við gítar.

Re: Hugleiðingar um nýjan bassa

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Þakka þér. Er einmitt að leita að græju í kringum 50-60k. Á fyrir Fender Jazz Bass Special (japanskur frá '84-87) sem er alveg hreint ágætur en var að spá í meiri rokk bassa… mind you ekkert deathmetaldót… t.d. gott rokk á við Queens of the Stone Age… reyndar notar Nick Oliveri Fender P-bass en það má lengi vel finna fleirri skemmtileg hljóðfæri.

Re: Lélegar þýðingar í Sjónvarpi og kvikmyndum

í Sjónvarpsefni fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mér finnst það reyndar nokkuð fyndið. Líkt og þegar talað er um “The three Stooges” þá er allt eins hægt að nota íslenskuna “Bakkabræður”. Það gengur nokkurn veginn upp, báðir hópar manna með eindæmum vitlausir. Það verður samt að fara varlega í að staðfæra svona efni. Sirrý finnst mér sleppa þar sem hún á nú að vera Oprah þessa ágæta lands…. hvað sem sem fólki finnst um það aftur á móti er annar handleggur.

Re: Lélegar þýðingar í Sjónvarpi og kvikmyndum

í Sjónvarpsefni fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Sammála þessu. Það er, eins og þú bendir á, engu líkara en þýðendur hafi ekki hugmynd um framvindu efnisins í myndinni eða þá nokkra einustu þekkingu á því sem myndefnið fjallar um. Því verður maður oft vitni að gífurlegum villum, bæði málfars og menningarlegum. Þá mislukkast jafnan beinar þýðingar á “frösum”. Man nú ekki eftir neinu gullkorni í augnablikinu en þessar þýðingar eru oft kostulegar. Vona að það séu samt einhverjir þýðendur sem standi sig í stykkinu. Ætli þýðendur sitji einir...

Re: Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Þessi korkur er bara ágætur þrátt fyrir greinina. Myndin er snilld og þá meina ég það sem fellst í orðinu: Framúrskarandi afbragð - amk mitt mat. Þetta er mynd sem ég mun klárlega sjá aftur og aftur.

Re: Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Engar áhyggjur, hann gengur ekkert of langt. Hann fer aftur á móti svo langt út fyrir allt almennt siðgæði að það er nær ólýsanlegt. Þessi mynd er snilld.

Re: Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Jagshemash. My name Borat. I like you. I like sex, is niice. Í fullri alvöru þá er þessi mynd einhver sú fyndnasta sem hefur verið gerð. Ruglið í henni er endalaust og óborganlegt. Maður kannast svo sem við gömul og góð atriði en þau eru engu síðri og bara sum hver fyndnari ef eitthvað er. Ég hef einnig lesið nokkur comment um myndina á imdb og það er hin besta skemmtun. Þar kom m.a. einn gaur og bölvaði Cohen fyrir gyðingahatur og ég veit ekki hvað. Þvílík snilld. “look, the jews have...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok