Ég þarf ekki á neinum degi að halda sem er búinn til að af verslunarfólki til að taka af mér peninga. Ég þarf engan sérstakan dag til að sýna einhverjum að ég elski hann. Þetta er bara asnaleg amerísk hefð sem á ekki rétt á sér á Íslandi, við höfum bónda – og konudag. Þessi dagur er hvort eð er bara gerður fyrir pör! Ljómandi fín lína þetta og hjartanlega sammála henni. Ekki munu þessir fégráðugu kaupahéðnar fá ryðgaðan fimmeyring með gati í kassa sína frá mér í tilefni af þessum óhroða sem...
Alveg er mér það óskiljanlegt að fólk skuli ekki trúa á Vísindakirkjuna og þær kenningar sem henni fylgja… ég meina…. svo er ritað í bókinni góðu (þeirra bók) að dag einn muni Marsbúi koma svífandi á himninum, akandi um á eimreið….. Haldiði að það sé barasta hægt að skálda svona?? Þetta er sannleikur, hann lengi lifi! Tom Cruise er næstu Messías 4real!1 Ye!
Ef þú vilt vera öruggur um töff en jafnframt klassískt hljóðfæri þá er það Fender. Precision bass er hentugri í harðara rokk á meðan jazz bassinn er góður í meiri vídd af tónlist. Þó nota tónlistarmenn þessar tvær útgáfur í flestri tónlist. T.d. notar spaðinn.. man ekki hvað hann heitir, í Audioslave, jazz bassa þegar fólk hefði frekar haldið að hann mundi nota precision bassa. Ég spila sjálfur á Fender Precision og hef spilað á jazz bassa. Í auglablikinu finnst mér precsion skemmtilegri en...
Þau okkar sem njótum þeirra forréttinda að vera örvhent höfum hlotið náð æðri máttarvalda og á hinsta degi munum við rísa upp gegn kúgurum okkar (rétthentum) og ríkja yfir gjörvallri heimsbyggðinni. Okkar er mátturinn og dýrðin, örvhent! E.s. Annars þá er þetta öllu jafna bara spaug um tal með fötlun í tengslum við örvhendu. Svo er líka gaman að geta kallað einhvern örvhygðan.
Betra hefði verið að rita orðið ,,bifreið“ í stað ,,bíll” því það er jú skelfileg dönskusletta. Bara smá leiðréttingarspaug. Hjartanlega sammála pistlinum.
Var nú aldrei með fast nick… flakkaði á milli nokkurra. Nickið fór eiginlega bara eftir skapi dagsins. Núna ætla ég að reyna að halda mig við Graveslime… flaug það einhverra hluta í hug. Svo var ég meira í DoD í seinni tíð, ansi langt síðan ég var í CS. Vill nú svo skemmtilega til að til er öndvegis íslensk hljómsveit með þessu ágæta nafni - svona fyrir þá sem ekki vissu.
Jú portið er fyrir aftan hjá mér og stemmir við það sem ég fann hérna á hugi.is/hl Fann svo sem einn breskan noob friendly server. Held ég muni bara hafa gaman af því að byrja í CS aftur.
Jújú, kominn með leikinn en gengur eitthvað hálf erfiðlega að fá þjónana til að virka… kannski eitthvað stillingaratriði. Komst samt inn á einhverja servera erlendis en ekki Simnet serverana. Þarf maður kannski að vera áskrifandi hjá Símanum? Er hjá Voda.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..