Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Sigur Rós

í Tilveran fyrir 19 árum
Þetta garnagaul er mér óskiljanlegt. Kannski er ég bara svona mikill frummaður og tónlistargáfur mínar ekki nógu þroskaðar en… svei því að þetta geti talist tónlist. Kannski er ég líka bara svona gamann - inn í mér.

Re: Helv**** Bregðulinkar!

í Tilveran fyrir 19 árum
Hvaða hvaða. Þó svo að hjartað slái nokkur aukaslög. Það er bara hressandi. Kemur blóðinu af stað þar sem maður situr nú svo lengi hreyfingarlaus fyrir framan tölvuna. Annars skil ég þig alveg og veit hvað þú átt við. En er ekki um að gera að brosa bara að vitleysunni og hrekkja einhvern í staðinn?

Re: Af hverju hlusta ég á jazz?

í Jazz og blús fyrir 19 árum
Ætli áhugi á jazz hafi ekki komið frá einum vini mínum. Hann er mikill músík-gúrú og hefur eflaust alltaf hlustað á aðra tónlist heldur en jafnaldrar hans og það sem er að jafnaði í gangi í samfélaginu. Heyrði fyrst Take Five með Brubeck hjá honum og varð líka svona hrifnn af laginu. Þá kom All Blues með Miles Davis og ekki var hrifningin síðri, enda fór ég fljótlega og keypti mér disk með kallinum. Svo kynntist ég síðar Jimmy Smith, hann er töff. Áhugavert að lesa um þessa miklu...

Re: Húsnæðismarkaðurinn, vangaveltur um þróun síðustu ára og framtíðina

í Deiglan fyrir 19 árum
Það hlýtur að eiga að greiða manni 24 millur fyrir að búa þarna.

Re: Samþykkt um kattahald í Reykjavík 2005

í Kettir fyrir 19 árum
Ljómandi. Um að gera að ýta við eigendum katta og gera öðrum, sem kemur málið við, grein fyrir þeirri ábyrgð og skyldum sem þeir þurfa að fara eftir.

Re: ATH!

í Tilveran fyrir 19 árum
Þetta er svona svolítið þrettán þrjátíu og sjö…

Re: Samoyed sleðahundar.

í Hundar fyrir 19 árum
Gullfalleg dýr. Áhugaverð skepna.

Re: Brannon Braga, einn af höfundum Star Trek á landinu!

í Sci-Fi fyrir 19 árum
Fróðlegt. Verð reyndar að vinna alla helgina en ég vona að það verði góð mæting. Reyndar er ég trúaður einstaklingur (samt ekki Gunnar í Krossinum týpa) en þetta er samt áhugavert. Samansafn af fólki sem getur hugsað út fyrir mengið er eitthvað eftirtektarvert.

Re: Fj***ans klaufaskapur!

í Tilveran fyrir 19 árum
Vinsamlegast sendu tilkynningu til Ríkisútvarpsins í hvert sinn sem þú sest undir stýri, svona til að vara fólk við.

Re: kranavatn

í Tilveran fyrir 19 árum
Ástæðan fyrir því er kannski sú að vatnið sem er veitt inn krana landsmanna er lítið sem ekkert hreinsað. Þ.a.l. er mikið um örverur og óhreinindi í vatninu (sem eflaust gefa því þennan ágæta keim). Hreinleiki vatnsins er óumdeilanlegur hvað varðar lítið magn af eiturefnum o.s.frv.

Re: Heimskt fólk

í Tilveran fyrir 19 árum
en okkur finnst það samt svo rangt að kvarta yfir henni. Ef hún bætir sig ekki á næstu dögum gerum við það samt líklegast. Iss. Maður gefur svona hyski engin grið. Annars þá hefur þetta eflaust mjög lítið að gera með heimsku. Manneskjan er bara löt! Letihaugur í sérflokki. Eins og ástandið er í dag þá kemst fólk upp með ótrúlegustu hluti og er ekki rekið þar sem það vantar oft sárlega starfsfólk. Vonum þó að hún bæti ráð sitt áður en til þess kemur. Hver veit, kannski munu samskipti þín við...

Re: Auglýsinginn frá orkuveitunni..hvað er málið????

í Deiglan fyrir 19 árum
Alltaf jafn gleðilegt að sjá skattfé almennings og öðrum tekjum sólundað í jafn tilgangslausa hluti og alltof langar sjónvarpsauglýsingar. Apar!

Re: Roger Waters tónleikarnir

í Gullöldin fyrir 19 árum
Þessir tónleikar voru mikið sjónarspil og Roger fór ekkert leynt með skoðanir sínar sem greinilega samrýmdust mörgum þarna inni. Myndskeiðin sem voru sýnd voru afar flott juku innlifunina hjá mér. Hann fær sko stjörnu í kladdann Roger kallinn og allir hinir líka. Eina lagið sem ég saknaði helst var Hey You en það er nú Gilmore lag svo ég afsaka að það skuli ekki hafa verið leikið. Frábærir tónleikar - ógleymanleg stund.

Re: Roger Waters

í Tilveran fyrir 19 árum
Hreint út sagt magnaðir tónleikar, þeim mun ég aldrei gleyma. Burtséð frá tónlistinni þá var þetta svo flott fyrir augað, ekki aðeins eyrun. Bravó Roger, Nick & co.

Re: Aðvörun til karlmanna

í Húmor fyrir 19 árum
Þar kom sannleikurinn fram í sinni hreinustu mynd. Þakka þér fyrir gott og þarft framtak. Innleggið mun þó engu breyta um bjórvenjur mínar.

Re: Þýskaland - Kosta Ríka

í Stórmót fyrir 19 árum
Töff hjá Herr Frings.

Re: Þýskaland - Kosta Ríka

í Stórmót fyrir 19 árum
Ég horfi afar sjalfan á fótbolta en HM og EM eru undantekning. Byrjunarleikurinn með mínum mönnum, Þjóðverjum, var ansi skemmtilegur. Mörkin sem Þjóðverjar fengu á sig voru skelfileg. Maður getur svo sem fyrirgefið að maðurinn sleppi í gegn einu sinni en ekki í annað sinn. Stálið stóð sig vel en svo hreinlega sáu Kosta Ríka menn glufur hér og þar og nýttu sér þær óspart. Þetta hefði geta farið verr fyrir Þýskaland. Gutes glück Deutschland!

Re: Ég er atvinnulaus:/

í Tilveran fyrir 19 árum
Vændi. Já. Það gefur vel í aðra hendi. Jafnvel báðar. Maður verður að bera sig eftir björginni.

Re: Spurnig

í Tilveran fyrir 19 árum
Mæli nú gegn því… en þú ræður.

Re: Spurnig

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Nákvæmlega.

Re: Spurnig

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég biðst forláts að hafa ekki skrifað franskt orð rétt þar sem ég er nú sprenglærður í frönsku. Irréversible er það skrifað. Slepptu kommuni og þá færðu enska orðið.

Re: TölvuFÍKN!!!!!!!!

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Fer eftir aldri. Gætir lagst í dagdrykkju þó það sé vart gáfulegt. Stundað líkamsrækt, lyfta, hlaupa, bardagaíþróttir eitthvað. Þó held ég að fyrst og fremst þá verðiru að hitta annað fólk, maður getur svo sem spjallað við vini og kunningja á MSN en það er bara gott að ákveðnu marki. Maður er manns gaman eins og hann sagði hérna um árið. Farðu út úr húsi, ágætis byrjun það. Ef þú telur þig virkilega stríða við tölvufíkn þá legg ég til að þú ræðir málið við foreldra, einhvern ráðgjafa og ætti...

Re: Spurnig

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ef þú ert að leita að mynd og vilt líða illa við að horfa á hana þá er Irriversible kandídat. Sá þá mynd einu sinni og óska þess að hafa aldrei séð hana.

Re: Besti bjórinn - íslenskur

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
En hvað er þetta? “Það er sem maður geti ekki ritað álit á nokkrum hlut hérna án þess að biðjast afsökunar á því fyrirfram svo maður fái ekki móðursjúkt lið grenjandi og hrópandi að manni fúkyrðum”. Ástandið á huga í dag er orðið nær þannig ef einhver svarar öðrum á annan veg svo hann sé ósammála þá uppsker viðkomandi nær alltaf fúkyrði og upphefjast miklar viðræður hvor sé meiri afturkreistingur. Sé það núna að svo er ekki í þínu tilviki. Ástandið er orðið svo slæmt hérna að ég veigra mér...

Re: Undarenna Vs. Léttmjólk. ?

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Segi eins og Jón Gnarr mælti í Fóstbræðrum hér um árið: Nýmjólk eða enga mjólk.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok