Ég horfði, eins og fleiri, á þáttinn í gær, og fór að velta því fyrir mér hvað í ósköpunum kom fyrir Deb! Ég meina, þótt að Ameríkanar séu grátgjarnir með eindæmum þá var nú full mikið af því góða þegar hún skældi þarna úr sér augun…. Þetta er bara leikur sem þau ákváðu að taka þátt í, þannig að vera kosinn fyrstur í burtu getur varla komið manni svo mikið í opna skjöldu. Það hlýtur að hafa verið eitthvað meira,þ.e. að fjölmiðlarnir í Bandaríkjunum hafi sagt eitthvað ljótt um hana...