Allt bú Ég var að horfa á einhverja erlenda stöð um daginn þar sem framleiðandi Friends var í viðtali. Þar sem hún sagði að eftir næstu seríu myndu þeir hætta að gera þættina og það sem hún kallaði closure myndi vera í endan. Þetta væri orðið dýrt og búið að ganga lengi. Þau væru á toppnum og vildu hætta. Og ég verðað segja að ég mun sakna Friends MJÖG nikið en mér finnst þetta vera rétt ákvörðun. Þetta hefði orðið jafn þunnt og Beverly Hills varð alltaf það sama að gerast og allir búnir að vera með öllum. En ég hef ekki séð nein viðtöl við leikaranna.

Aftur á móti langar mig að gera undirskrifalista til þess að halda þeim gangandi.

Svona er maður klófinn.

Segið mér hvað ykkur finnst..