Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

salvar
salvar Notandi frá fornöld 248 stig
Áhugamál: Box, Bardagaíþróttir

verslun fyrir Bardagalistafólk (24 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég skrifaði smá klausu út af umræðum sem hafa verið varðandi sölu á vörum fyrir bardagalistir hér á netinu og annarsstaðar. Þegar að við byrjuðum að flytja inn þessar vörur (contact sport/fitnesssport Faxafeni 8) var eiginlega einginn að reyna að þjóna þessum íþróttum. Þegar að við byrjuðum innflutninginn þurftum við að smygla boxvörum í úttroðnum íþróttatöskum til landsins svo að þeir sem stunduðu hnefaleika gætu fengið búnað til að stunda hnefaleika sem þá voru bannaðir, eftir það höfum...

Bardagakvöld dauðans 8 júní í Amsterdam (5 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það verður eitthvert allsvakalegasta bardagakvöld sem sést hefur 8. júní í sumar á Amsterdam arena (heimavelli Ajax). Það verður kept í freefight, muay thai og boxi (proboxi), þarna eru flestir þeir allra hörðustu úr evrópu og það er gert ráð fyrir um 20.000 manns á svæðið, ég veit að það seldist upp á VIP svæðið fyrir meira en hálfu ári. Mig hlakkar eiginlega mest til að sjá Igor Vovchancyn á móti Bob Schrijber vini mínum og svo Jerrel Venetiaan (úr Vos gym) á móti Rodney Faverusv(team...

Íþróttasamband sumra íþróttagreina? (4 álit)

í Box fyrir 21 árum, 1 mánuði
vegna frétta um afsögn formanns hnefaleikanefndar ÍSÍ verð ég að senda frá mér eftirfarandi grein. Hnefaleikafélag Reykjavíkur stóð ekki fyrir muay thai og freefight bardögum sem fóru fram í Laugardalshöll þann 8.mars síðastliðin heldur var það félag áhugafólks um blandaðar bardagíþróttir sem bauð upp á bardagana eftir að dagskrá Hnefaleikafélagsins lauk og var það margkynnt fyrir áhorfendum að dagskrá Hnefaleikafélagsins væri lokið. Félag áhugafólks um blandaðar bardagíþróttir er akki aðili...

opin æfing í m.m.a. og tæboxi (8 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Opin Thai box/m.m.a.(mixed fight) æfing með fyrrverandi heimsmeistaranum í kickboxi Brian Talraek Brian Talarek varð heimsmeistari atvinnumanna í kickboxi 1997, hann hefur æft mikið með Gracie fjölskyldunni og hefur einnig skipulagt vikingfight keppnirnar í Danmörku. Brian kemur til landsins með einn af sínum mönnum Thomas Frederiksen keppti í freefight (m.m.a) í laugardalshöll 8. mars. Brian verður með opna æfingu í húsnæði HR, Faxafeni 8, þriðjudaginn 11. mars, klukkan 19:30. Það kostar...

8.mars þakkar fyrir (6 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Jæja gott fólk nú er maður að ná sér niður eftir allan æsinginn í gær, þvílíkt kvöld! Fyrst vil ég segja öllum að það er ekki við skjá einn að sakast með útsendinguna, það var ákvörðun sem ég þurfti að taka á síðustu stundu, Skjár einn ætlar samt að sýna þetta, það var allt tekið upp. ÍSÍ og menntamálaráðuneytið hótuðu öllu illu og ef þetta hefði verið sýnt hefðu þeir látið það allt bitna á boxinu og þeir sögðu reyndar eftir þetta í gær að þeir vildu banna boxið aftur. Þvílikir vitleysingar...

Island Danmörk 8, mars (10 álit)

í Box fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég ákvað að henda inn smá uppfærslu á Ísland – Danmörk í Laugardaldhöll 8. mars. Laugardagurinn 8. mars 2003 verður ritaður í sögubækur því þann dag mun fara fram fyrsta keppni í hnefaleikum sem haldin hefur verið hérlendis síðan 1956. Danskir hnefaleikarar fá heiðurinn af því að vera þeir fyrstu til að sækja okkur heim og berjast fyrstu bardagana við Íslensku strákana. Ari Þór Ársælsson meiddist á æfingu síðastliðinn föstudag og getur væntanlega ekki keppt svo ekki er búið að velja mann í...

Loksins alvöri bardagakvöld 8.mars í höllinni! (49 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Eins og ég lofaði hér á netinu ekki alls fyrir löngu fara nú allir sannir áhugamenn um bardagalistir að fá eitthvað að horfa á hér á klakanum. Þaðð 8. mars mun verða bardagakvöld af bestu gerð, Bob Schijber kemur hér til að kynna freefight, Bob hefur 130 bardaga á bakinu í kickboxi og freefight auk þess sem hann hefur keppt í cagefight, vale tudo, tekið þátt í pride og öllum tegundum af bardagakeppnum. Bob kemur með konunni sinni Irmu sem hefur sjálf barist tugi bardaga (hún er alltaf í...

Ísland komið inn í AIBA (8 álit)

í Box fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ísland er komið inn í AIBA sem er alþjóða samband áhugahnefaleikamanna. Þetta þýðir að í framtíðinni getum við tekið þátt í erlendum mótum, bardagar sem munu fara fram á Íslandi munu vera skráðir á ferislkrá og í keppnisbækur o.s.f.v Semsagt boxið á íslandi er ekki lengur neitt frat, við erum orðin alvöruþáttakendur :)

Bubbi á móti Kickboxi! (26 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
“Háttvirtum” Bubba Morthens barst til eyrna að fyrirhuguð væri kickbox keppni sem partur af stóru boxmóti sem fyrirhugað er í Reykjavík í byrjun mars, Bubbi sem hefur það meðal annars fyrir atvinnu að lýsa atvinnumannaboxi þar sem menn er barðir út og suður norður og niður (ekki það að ég vilji ekki atvinnubox mér finnst að það eigi að lögleiða það) byrjar á því að hringja í Íþróttasamband Íslands og væla út af þessu. Hver er ástæðan? jú, ekki er átlunin að sýna mótið á sýn, þetta er...

Úrslit í Janúarmóti HR (7 álit)

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Nú er nýlokið janúarmóti HR og tóku þar þátt boxarar frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur, Sporthúsinu Kópavogi, Ræktini Seltjarnarnesi og hnefaleikafélagi Guðmundar Arasonar. Þar sem ég var sjálfur sað képpa er ég ekki með öll úrslit á hreinu og bið þá sem geta bætt þeim viðureignum við sem upp á vantar að senda upplýsingar um þær inn. Marta VS Anna - Marta sigraði á stigum Roland VS Doddy - Doddy sigraði, tæknilegt rothögg Simbi VS Daníel - Simbi sigraði, tæknilegt rothögg Heiðar VS Sæmundur -...

Á æfingu með Ernesto Hoost (15 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég kom frá Hollandi á þriðjudag þar sem ég (og Sigurjón Gunnsteinsson) féngum tækifæri á að fara á lokaða æfingu hjá Vos gym í Amsterdam. Vos gym er eitt alþekktasta kickbox gym í heiminum og þar fer fremstur í flokki jafningja Ernesto Hoost eða “Mr perferct”. Ernesto var heimsmeistari í Savate, heimsmeistari í Thaiboxi og hvorki meira né mina en 3 sinnum hefur hann sigrað k1 keppnina í japan, Ernesto er nálægt því að vera dýrkaður sem guð í japan og ekki af ástæðulausu að hann fékk...

Hvenær eigum við að halda fyrsta Íslandsmótið? (4 álit)

í Box fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mig langaði nú eiginlega bara að kasta fram spurningunni um það hvenær mannskapurinn sér fyrir sér að við getum haldið fyrsta Íslandsmótið? Persónulega get ég alveg séð fyrir mér apríl-maí eða ekki fyrr en október, finnst að þá verðum við kominn með nægilega marga keppnisfæra boxara. Væri samt flott að fá eitthver smærri mót þangað til svo að menn geti byrjað að slípast til. Hvað segið þið?????????????

Freefight (28 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég hef mikið verið í Hollandi undanfarin ár og fylgst þar með sporti sem kallast freefight. Þar er barist í hring með þunna hanska opnum fyrir fingur, það má bæði beita höggum, sporkum og glímutökum. Þetta er blanda þar sem allar bardagaíþróttir koma saman í eina, það er vægast sagt frábært að fylgjast með þessu sporti.(þetta er ekki alveg jafn brútal og það hljómar því það eru reglur þótt þær séu ekki margar blaðsíður t.d. má ekki sparka í höfuð liggjandi manns, ekki slá með olnboga eða...

Réttir þyngdarflokkar í áhugamannahnefaleikum (4 álit)

í Box fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Flokkur karlar konur Léttfluguvigt að 48 kg að 45 kg Fluguvigt – 51 – – 48 – Bantamvigt – 54 – – 51 – Fjaðurvigt – 57 – – 54 – Léttvigt – 60 – – 57 – Léttveltivigt – 63.5 – – 60 – Veltivigt – 67 – – 63 – Léttmillivigt – 71 – – 67 – Millivigt – 75 – – 68 – Léttþungavigt – 81 – – 71 – Þungavigt – 91 – – 81 – Yfirþungavigt yfir 91 – yfir 81 – Þetta eru þyngdarflokkar í áhugamannhnefaleikum, fengið frá Hnefaleikanefnd ÍSÍ.

EABA býður ísland velkomið í boxheiminn (2 álit)

í Box fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ICELAND TO BE THE NEXT MEMBER IN THE BIG BOXING FAMILY Some weeks ago we have received by the EABA Office copy of the following message: To whom it may concern: As you might know boxing has been illegal for the last 46 years but after a hard battle we have finally been able to deliver a knockout blow to the prejudice that surrounded the sport here in Iceland and on the 11th of February boxing was made legal again. We have a lot of young talented boxers who have been practicing for the last...

stig og reglur í áhugamannhnefaleikum (0 álit)

í Box fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það er augljóst að margir þekkja ekki stigakerfið í áhugamannhnefaleikum og þar eru meðtaldir þeir Bubbi og Ómar, næst mæli ég með að þeir kynni sér reglurnar áður en þeir lýsa áhugamannahnefaleikum. Þetta er reyndar ekki mikil furða þar sem fæstir hafa nokkurntíman fengið að sjá áhugamannahnefaleika hér á landi. Í mjög stuttu máli er gefið stig fyrir hreint högg sem nær í skrokk eða höfuð, ekki er gefið stig fyrir högg sem lenda á hönskunum eða ná ekki í gegnum vörnina. Boxari getur slegið...

Engin hnefaleikakeppni í laugardalshöll 16. nóv (48 álit)

í Box fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Enginn hnefaleikakeppni í Laugardalshöll 16. nóvember næstkomandi Vegna villandi auglýsinga frá Hnefaleikafélagi Reykjaness ( B.A.G.), rangfærslna og útbreidds misskilnings varðandi fyrirhugaða hnefaleikasýningu í Laugardalshöll þann 16. nóv næstkomandi,vill Hnefaleikafélag Reykjavíkur koma eftirfarandi á framfæri. Ekki er um keppni að ræða, heldur sýningu þar sem Hnefaleikafélag Reykjanes er ekki með leyfi frá Hnefaleikanefnd Ísí til að halda keppni í hnefaleikum. Ekki er um neina...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok