Jæja gott fólk nú er maður að ná sér niður eftir allan æsinginn í gær, þvílíkt kvöld! Fyrst vil ég segja öllum að það er ekki við skjá einn að sakast með útsendinguna, það var ákvörðun sem ég þurfti að taka á síðustu stundu, Skjár einn ætlar samt að sýna þetta, það var allt tekið upp. ÍSÍ og menntamálaráðuneytið hótuðu öllu illu og ef þetta hefði verið sýnt hefðu þeir látið það allt bitna á boxinu og þeir sögðu reyndar eftir þetta í gær að þeir vildu banna boxið aftur. Þvílikir vitleysingar sem þetta eru, þið skuluð frekjar kveikja í ÍSÍ en skjá einum, skjárinn var að aðstoða okkur við að láta þetta gerast.

Ég bið þá afsökunar sem biðu eftir bardögunum á skjánum en þeir verða sýndir og ég gat ekki tekið sénsinn á að hafa það í beinni, ég er í nógu miklum vandræðum með þá núna, trúið mér.

En við verðum aftur með mót og ég þakka ykkur öllum kærlega fyrir frábæran stuðning með þetta allt, takk, takk og aftur takk.