Patrik Berger virðist vera klár í slaginn. Hann skoraði tvö mörk í 4-1 sigri varaliðs Liverpool á Sheffield Wednesday í kvöld - bæði mörkin að sjálfsögðu með vinstri fótar skotum af löngu færi. Lið Liverpool hafði mikla yfirburði, enda margir aðalliðsmenn í liðinu. Auk Bergers léku Pegguy Arphexad, Gregory Vignal, Djimi Traore, Igor Biscan, Gary McAllister, Danny Murphy, Vegard Heggem og Bernhard Diomede með liði kvöldsins. En Berger stal senunni og átti stórleik, mataði samherja sína á...