Liverpool virðast eiga erfitt með að klára leiki sína gegn lakari liðum deildarinnar. Þeir misstu af upplögðu færi til að skjótast upp í fjórða sætið eftir 1-1 jafntefli gegn Derby á Sunnudaginn.

Deon Burton kom Derby yfir strax á 9. mínútu leiksins og það var svo á 52. mín sem Michael Owen jafnaði metin.

Þórður Guðjónsson var á meðal varamanna Derby. Hann kom inná á 82. mín og fékk úr litlu að moða.