Ég skil ekki, jonr segir að gæði myndana snúist ekki um pixlana heldur liti, truflanir og annað. Vissulega snúast gæðin meðal annars um litina, truflanir og fleira en ég á bágt með að trúa því að pixlarnir hafi ekkert með gæðin að gera. Ef við höfum tvær vélar, önnur með 1 miljón pixla og hin með 6 miljón pixla, óháð lit og öðru þá hlýtur þessi með 6 milljón að gefa betri mynd. Er þetta rangur misskilnnigur hjá mér? kveðja Orninn