Ég fékk sendingu frá Flugumferðar stjórninni.
Þessi sending var A4 gerð af AIP, eða nýa gerðin af AIP.
Nú er ég búin að sitja fyrir framan tölvuna, og hlustað á rólega musik (Rammstein og þannig), í einn klukkutíma og baslast við að setja þetta saman, þá loksins get ég spurt.

Afhverju A4? ég meina, ef ég þarf að leita af einhverju í AIP-innu á meðan ég er að fljúga, þá kemst þetta varla fyrir. Það má endilega einhver skýra þetta út fyrir mig.

Afhverju er það betra að hafa AIP-ið 2x stærri og þyngri en A5 útgáfan?

Kveðja
Jóhannes Sigurðsson