Ég tók svona heimspekipróf þegar ég var í menntaskóla og komst að því að það dugar ekki, ef þú ætlar að fá háa einkunn, að svara bara beint upp úr efninu þó að þú kunnir það mjög vel. Ég gerði það á haustprófinu og fékk vægast sagt lága einkunn. En á vorprófinu tók ég mig til og bullaði alveg fullt í kringum það sem ég vissi, sem var ekkert meira en fyrir áramót, skrifaði allavegana þrjár eða fjórar arkir og var með þeim hæstu í bekknum. Þannig að mín (heim)speki er að bulla bara nógu mikið…