Auðvitað á að hafa eftirlit með frjálsíþróttafólki eins og öllu öðru íþróttafólki, enda er ólögleg notkunn lyfja í íþróttum algjörlega óþolandi. Aftur á móti held ég að heilmikið sé gert til að koma í veg fyrir lyfjamisnotkun, þó auðvitað megi alltaf gera betur, enda veit ég til þess að afreksíþróttamenn séu hræddir við að prófa nýjar tegundir af fæðubótaefnum af hræðslu við að í þeim séu einhver ólögleg efni.