Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Óskarsverðlaunamyndirnar?

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Eg held ad folk se buid ad gera ser alltof miklar vaentingar til LOTR. Hefur einhver sed myndina? Hvernig getid thid vitad ad hun se svona god? Hun getur ekki ordid annad en vonbrigdi thegar folk er buid ad gera ser svona miklar vaentingar i svona langan tima

Re: Stofnun Ísraelsríkis

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 5 mánuðum
þetta virkaði ekki :)

Re: Stofnun Ísraelsríkis

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Svona gerir maður hlekk: “ hér kemur nafn linksins ” Html virkar samt ekki í öllum korkum.

Re: Hvað er arkitektúr?

í Bókmenntir og listir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Ómenntaðir listamenn þurfa samt að sanna sig áður en þeir fá nafnbótina listamaður. Þeir þurfa að fá viðurkenningu gagnrýnenda á listrænu eðli verkanna. Þangað til eru þeir áhugamenn. Le Corbusier var listmálari en fór að stunda arkitektúr og fékk viðurkenningu sem slíkur, og stendur eftir sem “guð” módernismans alræmda. Japanski arkitektinn Tadao Ando er sömuleiðis ómenntaður, en eftir að hann fór að hanna snilldararkitektúr varð hann að sjálfsögðu arkitekt. Þetta eru reyndar...

Re: Hvað er arkitektúr?

í Bókmenntir og listir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Nei ég held ekki. Kannski ef þú værir arkitekt og málverkið væri hluti af ferli sem leiddi til byggingar. Zaha Hadid hefur viðurkennt að málverkin hennar séu aðeins þáttur af hönnunarferlinu, enda eru þau ónákvæm, “twisted” og gleyma þyngdaraflinu. Lebbeus Woods gerir samt fullkláraðar myndir, en getur varla ætlast til þess að neitt af þessu sé byggt. Hann er samt menntaður arkitekt og tjáir sig með tólum arkitekta, og hann færir boðskap sem á erindi til arkitekta og borgarskipuleggenda, þó...

Re: Opið bréf til Robba Chronic.

í Hip hop fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Er ekki í lagi?? Heldurðu að aðeins 15-19 ára hlusti á hip hop? Ég var að hlusta á hiphop þegar þú varst í leikskóla vinur minn. Og er hip hop aðeins fyrir 12 ára smástráka? Hvað með listamennina sem semja tónlistina, eru þeir líka 12 ára smástrákar fastir í líkama þrítugs manns? Athugaðu að lífið er ekki búið þegar þú verður tvítugur, það er rétt að byrja, og það eru ekki allir eldri en tuttugu orðnir FM-hórur. Skemmtistaðir eru fyrir 20 og eldri. Haltu þig við menntaskólaböllin (eða...

Re: Hvað er arkitektúr?

í Bókmenntir og listir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Auðvitað þarf einhver skilyrði. Þetta eru náttúrulega ekki byggingar í hefðbundnum skilningi. Sumt eru “skýringarmyndir” (diagrams) sem seinna eru þróaðar yfir í byggingar. Zaha Hadid (fyrsta myndin) gerði svona málverk og skapaði sér orðstír fyrir þau og hafði mikil áhrif, en byrjaði ekki að byggja fyrr en tíu árum seinna. Í dag eru a.m.k. þrjár byggingar tilbúnar og nokkrar á leiðinni. Mynd nr. 2 er eftir Lebbeus Woods, en hann vill breyta heiminum og hvernig við hugsum um hann. Hann notar...

Re: American Psycho

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Þú hefur greinilega ekki nægilegan þroska til að skilja þessa mynd. Myndin á ekki að vera einhver hasar/spennu/splatter mynd fyrir óþroskaða unglinga. Þetta er mjög beitt ádeila á yfirborðsmennsku og geðklofa bandaríska viðskiptaheimsins. Hún er aldrei að reyna að vera einhver Hannibal viðbjóður. Þetta er mynd fyrir hugsandi og samfélagslega meðvitað fólk, ekki einhverja blóðþyrsta unglinga. Þið hafið greinilega flestir séð myndina á vitlausum aldri og á vitlausum forsendum, eða þá að þið...

Re: Flokkur framfarasinna - í þágu þjóðar!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Einmenning (monoculture) er einsleit menning, eins og hún var á Íslandi fyrir erlend áhrif. Þar lifa allir svipuðu lífi, hafa sömu drauma og þrár, sækja sömu kirkjuna, lesa sömu bækurnar og hlusta á sömu tónlistina. Ósköp falleg fortíðarþrá en einfeldingsleg og hefur ekkert að gera með nútímalíf. Í dag vill fólk hafa frelsi til þess að haga sínu lífi eins og það sjálft kýs, óháð venjum og hefðum. Spurðu einhvern New York búa sem býr á Manhattan hvort hann sé ekki ánægður að búa í þessari...

Re: Flokkur framfarasinna - í þágu þjóðar!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Ef þið eruð í vafa um afstöðu Ritters og “framfarasinna” gagnvart innflytjendum, skoðið þessi orð hans og myndið ykkur svo skoðun. “Ég er andvígur því að mörgum menningarstraumum sé hráum, eða allt að því hráum, stefnt saman í einu þjóðfélagi” Rasisti eða ekki? Skiptir ekki máli. Einmenningarsinni? Já.

Re: Flokkur framfarasinna - í þágu þjóðar!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Gott dæmi, New York. Þar úir og grúir af fjölbreyttri menningu frá öllum heimshornum. Ég veit ekki betur en að flestir sem búi þar finnist kostirnir meiri en ókostirnir. Fjölbreytni er af hinu góða, einsleitni ekki. Það má kannski benda þér á að við búum nú þegar við eins konar fjölmenningu, í þeim skilningi að fólk velur sér ólíkan lífstíl og tilheyrir ólíkum menningarkimum(subculture). Það eigum við að þakka opnu upplýsingaflæði til og frá öðrum heimshlutum, sem var ekki til staðar á tímum...

Re: Flokkur framfarasinna - í þágu þjóðar!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Þú talar um stuðningsmenn fjölmenningar eins og andstæðinga. Hvernig myndirðu lýsa afstöðu þinni til fjölmenningar í einni setningu? Ertu and-fjölmenningarsinni? Myndirðu setja þig á móti samfélagi þar sem margir kynþættir lifðu saman í sátt og samlyndi og fjölbreytileg menning blómstraði? Þú vilt vera varkár, en segjum sem svo að lítil sem engin vandamál myndu skapast. Væri sú framtíðarsýn eitthvað sem þú yrðir ósjálfrátt andvígur, þó að engin vandamál sköpuðust?

Re: hjálp ! (námsval)

í Grafísk hönnun fyrir 24 árum, 5 mánuðum
nr. 1, 2 og 3: Náðu þér í stúdentspróf! Þú kemst aldrei í virtan skóla erlendis nema vera með stúdentspróf, og það gott.

Re:

í Deiglan fyrir 24 árum, 5 mánuðum
“Oft ic sceolde ána úhtna gehwylce míne ceare cwíþan” Getur ekki verið að þetta sé skiljanlegra í töluðu máli, að talað mál hafi skilist? Hvernig á annars Egill Skallagríms að hafa spjallað við konunga hingað og þangað? Ég veit að hann var að öllum líkindum skáldsagnapersóna, en samt… Ég var aldrei að meina að Finnar hefðu getað talað við aðra norðurlandabúa á sínu finnó-úgríska máli. Það er vonlaust, enda tungumálið af allt öðrum stofni. Reyndar er þar dæmi um lifandi mál. Málið sker sig úr...

Re: Ólýðræðislegur einhliða áróður

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Nú hef ég ekki séð þetta blað, þar sem ég bý ekki á landinu eins og er. En eftir því sem ég fæ best skilið þá var þetta aukablað með Morgunblaðinu? Ég vil benda þér á að Morgunblaðið er ekki gefið út á “kostnað almannafés”, heldur er þetta einkarekið blað með ákveðnar pólitískar áherslur. Þér ber engin skylda til þess að vera áskrifandi að þessu blaði, þó að bróðurpartur almennings sé það. Hvaða opinbera sjóð ert þú að tala um? Áskrifendur Morgunblaðsins borga fyrir útgáfu þess, ekki...

Re: Tungumál Íslendinga er þjóðernishyggja

í Deiglan fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Þetta er nú meira ruglubullið í þér, Ruglubulli. Svíar, Norðmenn og Danir geta vel skilið hvern annan með því að tala einungis eigið tungumál. Ef þeir halda einhverju öðru fram er það hroki, leti, feimni eða heimska. Íslendingur þarf hins vegar að kunna eitthvað af þessum málum og moða úr því “skandinavísku” til þess að gera sig skiljanlegan í Skandinavíu. Finni sem talar finnska sænsku getur talað við Dana. Trúðu mér, ég hef séð það.

Re: Hvað er arkitektúr?

í Bókmenntir og listir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
<table width=700><img src=http://www.artseensoho.com/Art/PROTETCH/hadid99/hadid.jpeg align=left> <img src=http://www.comune.taormina.me.it/histaormina/img/ap138.jpg width=288 height=400> <br> <img src=http://www.azw.at/aust/soft_structures/lynn/lynn3pic.jpg align=left> <img src=http://www.archilab.org/public/2000/catalog/naga/naga17g.jpg><br> <img src=http://www.unstudio.com/html/proj/hoogov/08.jpg height=225 width=300 align=left> <img src=http://sunsite.dk/cgfa/piranesi/pirane10.jpg...

Re:

í Deiglan fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Mér finnst þessi grein alveg eiga rétt á sér. Þessi hreintungustefna tilheyrir rómantískri þjóðernishyggju sem átti sinn þátt í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, en þolir alveg gagnrýni í dag. Í nútímanum er ekki lengur mikilvægt að gera sem mest úr sérkenni hverrar þjóðar, brýnasta verkefni framtíðarinnar er að koma á bættum samskiptum á milli þjóða og auknum gagnkvæmum skilningi. Upplýsingasamfélagið dregur heiminn saman í lítið þorp, okkur bjóðast óteljandi tækifæri alls staðar í heiminum,...

Re: Fáum þetta á hreint

í Deiglan fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Við erum náttúrulega flestir aldir upp á eyju. Ætli það eigi ekki sinn þátt í fáfræði og rasisma kynslóðanna á undan okkur. Þá var bara kennd ein kristinfræði og fólk hafði ekki aðgang að öllum þeim upplýsingum sem við höfum aðgang að.

Re: Gyðingar sæta ofsóknum í eigin heimalandi!

í Deiglan fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Er Vilmar risinn upp? Þetta er ekki lengur svara vert.

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Ok, ég viðurkenni að þetta var kannski fullmikil einföldun á flóknu máli. Þú segir að þeir sem taki upp gyðingatrú séu virtari en hinir? Ég hélt þvert á móti að það væru einhverjar takmarkanir á þeim, þeir mættu ekki gerast rabbínar eða e-ð þvíumlíkt. En ég hafði rétt fyrir mér að það er alls ekki algengt. Lítur þú á gyðinga sem kynþátt eða trúflokk? Í sambandi við Davíð… það var ansi athyglisverður þáttur á BBC um Davíðssálmana. Þar var m.a. talað við presta í Eþíópíu og rastafaria frá...

Re: Frjáls Palestína !!

í Deiglan fyrir 24 árum, 5 mánuðum
góð grein

Re: Que sais-je?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 6 mánuðum
“…þeim sem hafa áhuga á að lesa greinina alla er bent á heimasíðu mína.” hvar er heimasíðan þín?

Re: Icerave endurhlustaður

í Raftónlist fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta var frábær diskur. Ég hlustaði alltaf á upptöku af honum á kassettu, og sem betur fer vantaði Pís of keik og Íslenska tóna. Hvað eru menn að setja út á þetta? Þetta er barn síns tíma. Mind in Motion voru gríðarlega efnilegir, synd að þeir skyldu ekki hafa gefið út meira. Reyndar var eitt lag undir þeirra nafni á Núll og nix disknum (annar diskur sem þið ættuð að grafa upp), en þeir gáfu aldrei út heila 12", hvað þá breiðskífu. Bjarki og Birkir, sem voru held ég báðir í Mind in Motion...

Re: ég veit allt

í Heimspeki fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Er hann ekki bara pirraður á að það skuli vera til heilt áhugamál þar sem fólk talar eitthvað tungumál sem hann skilur ekki? Hann heldur kannski að það sé heimspeki ef hann reynir að segja eitthvað sem enginn skilur?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok