Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hélt að heiti þessa flokks væri Alþingi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Ég sagði ekki orð um að banna þér að tala. En ég hef alveg fullt frelsi til þess að nöldra og mótmæla í hvert skipti sem þú “tekur þér lyklaborð í hönd”.

Re: humj

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Og hvað með það? Kall í góðum búningi er miklu eðlilegri heldur en einhver þríviddarteikning.

Re: Hélt að heiti þessa flokks væri Alþingi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Ég má alveg nota málfrelsi mitt til þess að berjast gegn málstað sem ég er á móti, draga úr áhrifum hans og umfangi. Ég er orðinn leiður á þessu og er greinilega ekki einn um það. Af hverju ætti ég að þegja um það? Ef þetta heldur áfram mikið lengur verður hann sennilega (vonandi) púaður niður. Ætli það sé ekki einhver gúrkutíð í stjórnmálaumræðu á Íslandi. Ég bý ekki á landinu eins og svo að ég get ekki fylgst mikið með því sem er efst á baugi, en í haust hefur það náttúrulega flest bliknað...

Re: Hélt að heiti þessa flokks væri Alþingi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Sennilega af því að þú ert alltaf að skrifa nýjar greinar þar sem þú talar um innflytjendamál, vandamál fjölþjóðasamfélagsins o.s.frv. Það er greinilegt á skrifum þínum að þetta er mesta hitamál þitt og þessa flokks þíns. Ég er sammála greinarhöfundi. Ég er orðinn hundleiður á endalausum greinum um þennan flokk sem er ekki einu sinni flokkur, sem eru í engu samræmi við vægi hans í þjóðfélaginu, sem er lítið sem ekkert.

Re: Skilaboð frá Schopenhauer.

í Heimspeki fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Vá löng grein að lesa á tölvuskjá, en ég gerði það samt:) Skrifaðir þú hana upp, eða eru einhverjir textar Schopenhauers aðgengilegir á netinu? Ég er að flestu leyti sammála þessu. Schopenhauer verður seint ofmetinn fyrir framlag sitt. En ég er ekki svo viss um að frábærar hugmyndir geti orðið til úr tómi, ef við værum ekki með eyru og myndum ekki lesa. Við þurfum kannski ekki að finna upp hjólið aftur og aftur. Þá nær mannkynið aldrei að þróast áfram. En við verðum að lesa alla texta með...

Re: Alien - Aliens, hvor er betri?

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Eru þær báðar betri? Þetta eru í rauninni svo ólíkar myndir að það er varla hægt að bera þær saman. Ég held samt alltaf meira upp á Alien.

Re: Alien - Aliens, hvor er betri?

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Mér fannst Alien best. Ég held mikið upp á Ridley Scott og er ekki mikið fyrir svona Hollywood hasar. Honum tókst að gera snilldarmyndir úr bæði Alien og Blade Runner, dökkt og drungalegt andrúmsloft og bara kúl. Leikmyndin spilar líka mikla rullu en hún er náttúrulega snilld, H.R. Giger fékk einna mest að njóta sín í þessari mynd en síðan hefur þetta verið að þynnast út. Leikurinn er góður, sagan spúkí og ekki yfirdrifin eins og vill gerast í Hollywood.

Re: Hvað er arkitektúr?

í Bókmenntir og listir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Hehe, bíddu bara þangað til ég sný aftur eftir nám, með terrorisma í formi arkitektúrs! Neinei, ég held að við viljum allir vel :) Það var Robert Venturi sem sagði “less is a bore” í bókinni Complexity & Contradiction. Verst að hann reyndist svo vera boðberi gamalla tíma í arkitektúr (pomo sögustíll). Orð hans eiga samt alveg jafn vel við í dag, þó að menn vilji helst gleyma arkitektúrnum hans. Ég held að einhver hafi svo sagt: “more is more”. Philip Johnson sagði svo: “I am a whore”. En það...

Re: Fjölþjóðasamfélag

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Eru gamlar kerlingar með internetaðgang?

Re: The Million Dollar Hotel

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Mér fannst það bara asnalegt að vera að eyða tíma í að skrifa um þessa mynd, ef maður hefur sama álit og 95% af þjóðinni. “Word on the street” er að þetta sé hundleiðinleg mynd. Óþarfi að tönnlast á því sem allir vita hvort sem er. Hins vegar er til fólk sem hafði gaman af þessari mynd og ég hélt að greinarhöfundur væri einn af þeim þegar ég sá fyrirsögnina. Svo voru allir með barnaleg kúk og piss komment, ég sagði ekki orð um að þeir væru heimskulegir, og svo segir þú að mitt komment væri...

Re: The Million Dollar Hotel

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Megi handleggur vaxa úr rassgatinu á þér. Gáfulegra?

Re: The Million Dollar Hotel

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Oh, það er klisjan að segja að þetta sé leiðinleg mynd. Hún fékk alls staðar lélega dóma og það er common álit hjá Snæland-videó-liði og popphórum að finnast hún leiðinleg. En mér fannst þetta hins vegar mjög athyglisverð mynd, og væri ekki hissa ef hún yrði nokkuð vel metin költ mynd í tímans rás. Mér leiddist ekki sekúndu. En maður verður náttúrulega að hafa attention-span yfir meðal Mtv sjónvarpssjúkling. Óheppnir þið að vera svona ofsalega venjulegir að kunna ekki að meta skemmtilega...

Re: One Flew Over the Cuckoo's Nest

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Og hvað? Lastu aftan á hulstrið og skrifaðir upp aftur hérna? Nákvæmlega hvað á þessi grein að segja sem er ekki aðgengilegt öllum á hvaða videóleigu sem er? Það vantar eitthvað meira, eitthvað persónulegt mat.

Re: Hvað er arkitektúr?

í Bókmenntir og listir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Já ég er sammála þér með “köflóttu” húsin. Því miður virðist það vera að koma aftur að einhverju leyti. Það er einhver skuggaleg endurvakning á Mies van der Rohe í gangi (“less is more”). Rem Koolhas er Le Corbusier okkar tíma. Hann er guð í flestum arkitektaskólum, það er selt inn á fyrirlestrana hans eins og rokktónleika og færri komast að en vilja. En sumar af þessum módernísku byggingum hafa ekkert gildi. Þetta eru lélegar eftirhermur af Corbusier og Mies van der Rohe, sem vantar allan...

Re: Fjölþjóðasamfélag

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Nei, það er búið að tuða um þetta mál fram og aftur í marga mánuði hérna. Ég er búinn að koma með fullt af rökum sem ég nenni ekki að tíunda fyrir fólki eins og þér.

Re: Fjölþjóðasamfélag

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
geiri2, Þú ert ekki þessi virði að eyða öllum þeim fúkyrðum sem mér dettur í hug. Nonnabiti er einn mesti viðbjóður sem ég hef upp í mig látið. Það hefði nú verið nær að nefna Hlöllabáta en þennan viðbjóð. Þó að ÞÚ viljir borða Nonnabita upp á hvern dag þýðir það ekki að allir aðrir Íslendingar vilji það. Menningin er stöðugt að verða fjölbreyttari með bættum samgöngum og upplýsingatækni. Við viljum hafa frelsi til að velja um allt mögulegt. Prófaðu að borða Nonnabita á hverjum degi í ár og...

Re: adam og eva, guð og kynferði

í Heimspeki fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Æi greyið mitt. Kynntu þér málflutning femínista aðeins betur. Tungumálið er ekki alveg saklaust heldur mótað af karlaveldi í gegnum þúsundir ára. Þetta hlýtur nú að vera eitthvað grín, eða þú ert mjög ungur, eða hefur ekki hugsað þessa hugsun til enda. Ég held að ég sé nú þegar búinn að eyða of miklu púðri í þetta svo ég hætti hé

Re: Er Guð í raun og veru til?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Æi þetta er þreytt umræða, en afsakanleg sökum ungs aldurs. Greinilegt þroskamerki hjá upprennandi ungum manni að efast um tilveru guðs. Lestu Nietzsche, Freud og Schopenhauer. Ég sökkti mér í það á sínum tíma og var alveg sannfærður um að guð væri ekki til, þ.e.a.s. guð kristinna manna. En auðvitað er boðskapur Krists rosalega góð heilræði, sérstaklega ef fólk hefur ekki gáfur eða tíma, eða af einhverjum ástæðum veltir ekki fyrir sér siðferðislegum málum á persónulegan hátt með gagnrýninni...

Re: Fjölþjóðasamfélag

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
geiri2 er sorglegur og dæmir sjálfan sig með eigin skrifum. Reyndar er það rétt að Ítalir eiga ekki heiður af pizzum á Íslandi, heldur eru þær frumkvæði Íslendinga og bandarískra stórfyrirtækja að þakka. Í öðrum Norðurlöndum er þessu öðruvísi háttað, þar sem ítalir og menn af arabískum uppruna sjá að mestu um matsölustaði, sem eru huggulegir litlir veitingastaðir í stað tröllvaxinna risakeðja sem sjá um markaðinn hér. Ég sakna t.d. mjög mikið kebab-staðanna sem eru víðs vegar um öll...

Re: Fjölþjóðasamfélag

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Heyr, heyr!!

Re: Atvinnuhorfur í vef og margmiðlunargeiranum?

í Vefsíðugerð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Halló, fær maður engin komment þegar maður hittir naglann á höfuðið? Er ekki mikið til í þessu hjá mér? Vita kannski margir upp á sig skömmina? Það verður mikilvægt að vinnuveitendur viti að menn hafi tamið sér vinnubrögð atvinnumanna, og þá skiptir próf/gráða máli. Það verður ekki nóg að hönnuðir hafi auga fyrir litum og forritarar kunni hrafl í html. Að kunna að raða saman litum og formum dugar rétt til þess að komast inn í nám í hönnun, námið kennir miklu meira, aðferðafræði og vísindaleg...

Re: Anti-rasisma öfgar???

í Deiglan fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Mér finnst að við getum sagt það sem okkur sýnist, svo lengi sem það skaðar ekki beint aðra einstaklinga. Ég get alveg sagt: “rasismi er heimska”. Mér finnst það og ég hef frelsi til að tjá mig. Ég get líka hvatt til ofbeldis gegn rasistum, alveg eins og þeir geta hvatt til ofbeldis gegn öðrum kynþáttum (a.m.k. í Bandaríkjunum, ekki hér sbr. nýlegt mál). Það er til nokkuð sem heitir málfrelsi. En um leið og þetta er komið í lög er verið að kúga skoðun inn á þjóðina, sem hún hefur kannski...

Re: Rómversk list...

í Bókmenntir og listir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Auðvitað var til Rómversk list. Voru þeir ekki bara að vinna úr hugmyndum Grikkja, setja saman á nýjan hátt það sem þeir þekktu fyrir, og fá út “ferska” útkomu. Voru þeir ekki bara post-hellenistar líkt og póst-módernistar? Eru póst-módernistar ekki listamenn líka?

Re: Hvað er arkitektúr?

í Bókmenntir og listir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Hmm, athyglisverð pæling…hvaða rétt hafa listaverk til að vera varðveitt? Eru léleg listaverk varðveitt? Er þeim ekki einmitt hent eða málað yfir þau aftur? Þetta má tala um í sambandi við arkitektúr líka. Hvaða rétt hefur vond bygging til þess að vera varðveitt? Þetta er hugmynd sem framsæknir arkitektar í Hollandi hafa verið að viðra. <a href=http://www.pritzkerprize.com/2000annc.htm target=_blank>Rem Koolhas</a> vill rífa niður misheppnaðan módernisma og ljót afsprengi iðnbyltingarinnar...

Re: Atvinnuhorfur í vef og margmiðlunargeiranum?

í Vefsíðugerð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Sökum prentvillna set ég þetta aftur: Ég sé fram á, að þeir sem eru með góða menntun og/eða mjög hæfileikaríkir sitja eftir. Hinir drop-outarnir sem kræktu sér í þægilegt og einfalt starf af því að þeir nenntu ekki að fara á sjóinn, snúa aftur til síns heima. Meiri áhersla verður e.t.v. lögð á hlutverkaskiptingu. Grafík og hugmyndafræði verður í höndum sérfræðinga með menntun eða mikla hæfileika í hönnun, tölvunarfræðingar og verkfræðingar sjá um verklega útfærslu smáatriða. Þetta verður...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok