Ég get ómögulega gert upp á milli og nefnt einhvern einn sem er í uppáhaldi. Af gömlu risunum dáist ég alltaf mest að Leonardo da Vinci (klisja?), sérstaklega teikningunum og skyssubókunum hans. Hann var bara svo fjölhæfur og mikill snillingur, frumkvöðull á öllum sviðum með hendurnar í myndlist, skúlptúr, arkitektúr, tónlist og vísindum. Hann var algjör gullgerðarmaður, náði þessu fullkomna jafnvægi milli villtrar sköpunargleði og rökhugsunar. Ég man að þegar ég var að lesa listasögu kunni...