Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu Á síðunni http://www.islamweb.net/english/ sem tengd er við eitt ráðuneyti Qatar má sjá gríðarlegan rasisma gegn gyðingum. Á síðunni má finna illræmda grein um gyðinga sem bera heitið “Jewish Control of the Mass Media in Britain” en í henni er t.d. helför gyðinga sem er sannaður atburður dreginn í efa. Í greininni er einnig gefið í skyn að gyðingar stjórni fjölmiðlum í Bretlandi og leyfi aðeins þeim sem sér eru sammála að koma fram. Greinin segir einnig að gyðingar séu ólýðræðislegir og noti lagasetningar og fleira í þeim dúr til þess að hafa betur gegn andstæðingum sínum. Þvílík fásinna! ég veit ekki betur en að í öllum löndum þar sem gyðingar búa ríki lýðræði og vegnar þessum löndum oftar en ekki ágætlega og ekki hægt að segja annað en að gyðingarnir auðgi tilveruna í þessum löndum jafnt á við aðra kynstofna.

Í grein þessari er vitnað í einhvern þátt þar sem aðeins þeir sem voru á móti gyðingahatri rökræddu um þetta hatur. Greinarhöfundur þessarar síðu telur það hins vegar vera samsæri gyðinga að hafa ekki leyft gyðingahatara sem neitar helförinni að koma í þennan þátt og ljúga að fólki um þann hræðilega atburð sem helförin er. Ég sjálfur er persónulega hlynntur málfrelsi en ég er ekki hlynntur lygum eins og þessa lygi um að helförin hafi ekki gerst og því er ég sammála því að leyfa ekki slíkum mönnum að tala því að menn mega ekki ljúga upp á náunga sinn en það er einmitt það sem menn sem neita helförinni gera. Reyndar get ég ekki skilið afhverju fólk er að reyna að gera lítið úr þjóðernishreinsunum Adolf Hitlers á saklausu fólki. Dagbækur Önnu Frank lýsa betur en allt annað þeim hryllingi sem gyðingar máttu þola í helförinni og af völdum nasistaflokksins sem þá var við völd í Þýskalandi.

Í þessari grein er líka sagt að gyðingahatur sé bara eitthvað orð sem gyðingar hafi búið til og noti það í áróðursskyni. Maðurinn sem skrifaði þessa grein vill meina að fyrir gyðingana sé lýðræði innihaldslaust orð og þeir séu helstu óvinir slíkra samfélaga.

Gyðingar hafa í gegnum aldirnar alltaf verið fyrirlitnir og fólk litið niður á þá þrátt fyrir ótrúlegan árangur margra þeirra í lífinu og oftar en ekki hafa gyðingar verið manna bestir í því að skapa bestu fyrirtækin og ganga vel í lífinu á allan hátt. Fólk hefur einfaldlega í gegnum aldirnar öfundað gyðinga af því að sama er hvar gyðingar koma niður fæti því alltaf virðist þeim vegna vel t.d. lögðu þeir manna mest til Þýska samfélagsins áður en nasistar komust til valda og var þeim hreinlega refsað grimmilega fyrir það af rasistum sem hötuðu þá staðreynd að öðrum gengi betur en þeim í lífinu. Í dag þegar gyðingar eru orðnir á meðal valdamestu manna í Bandaríkjunum þá virðist gyðingahatur rísa upp og þegar gyðingar, jafnvel í sínu eigin heimalandi koma í friði, sæta þeir ofsóknum. Þrátt fyrir sorglegasta atburð allra tíma, sjálfa helförina þar sem reynt var að útrýma gyðingum og tókst að útrýma 2/3 hlutum af þeim og eyðileggja líf þeirra sem komust af að mestu leyti þá hafa gyðingar enn og aftur unnið sig upp í samfélaginu og velgengni þeirra ætti því að vera okkur öllum gleðiefni og jafnvel er framgengi gyðinga í heiminum öðru fólki fordæmi. Gyðingar eru gott dæmi þess að vilji er allt sem þarf og að jafnvel þótt að náungar gyðingana hafi komið hræðilega fram við þá, þá hafa gyðingarnir beint eða óbeint ákveðið að líta framhjá fyrrum ofsóknum á hendur sér í því skyni að elska náunga sinn og fyrirgefa honum samkvæmt boðskap trúarrits þeirra.

Allir menn ættu að leggja hatur sitt gegn gyðingum niður enda er hér um svo heimskulegan og illkvittnislegan áróður að ræða að maður er gráti nær að lesa svona grein eins og á þessari heimasíðu þar sem illmenni sem þykjast vera múslimar reka. Gyðingarnir eiga svo sannarlega inni hjá okkur að við komum vel fram við þá um ókomna framtíð og lifum í bróðerni með þeim eins lengi og drottinn leyfir.