Smurost er alltaf hægt að nota í pastasósu, spurning hvort bragðið sé þolanlegra… annars er ég sammála þér, þessi ostur er ekki eins góður og hann lítur út fyrir að vera :0) Hendir bara ostinum í pott, smá rjóma eða mjólk út í og bræðir þetta saman, hellir svo yfir pasta (getur prófað að krydda þetta líka t.d. með hvítlauk). Svo geturðu náttúrulega haldið partý og boðið upp á kex og osta, þar á meðal þennan ost ;) Kannski finnst einhverjum þetta gott :0)