Jæja dömur mínar og herrar!

Ég fékk smá hugmynd, sem mér fannst nú alveg brillíant, en það er nú ekki víst að ykkur litist eins vel á hana eins og mér…

Sko, hvernig væri ef við hérna áhugasamir kokkar, tækjum okkur til og hefðum svona þema í næstu viku: Allir að reyna að prófa sem mest af réttum og deila með okkur hinum hér á huga.

Þá er ég ekki að tala um einhverjar rosa steikur, heldur bara svona jukk úr hinu þessu, eitthvað sem kemur vel út og er auðvelt, þá getum við prófað eitthvað sem við höldum að sé gott, og fáum sniðugar hugmyndir frá hinum! :)

Jæja hverjir eru til í að vera með í tilraunareldhúsi í næstu viku?

kveðja kvkhamlet