Komdí sleik  -  Ókeypis sýningaraðstaða á netinu! Langar að benda ykkur ljósmyndurum á að ég var að opna
vefgallerí fyrir myndlist, hönnun, ljósmyndun og þar frameftir
götunum.
Þar geta allir haft eigin síðu með 1 til 5 verki (myndum), smá
texta um sjálfan sig, mynd af sjálfum sér(ef þú vilt) og netfang
og eða link inn á heimasíðu viðkomandi.
Er að fara að setja inn fyrsta “hollið” og því ekki að vera með
því þetta verður algerlega ókeypis á meðan ég er að koma
þessu í gagnið og safna inn listamönnum.
Þetta verður auglýst markvisst þegar nógu margir eru komnir
inn þannig að engin hefur neinu að tapa.

veffangið er www.sleik.is og hægt er að skrá sig með því að
senda póst á bjarni@argus.is
bjadddniHELL