Hæ, hæ öll sömul. Ég er að velta einu fyrir mér, hvort að það sé svo að hægt sé að komast á sjéns í stórmörkuðum? Ég hef pínulitla sögu að segja, kannski algjör della, en ég læt hana bara vaða. Ég var að versla í Fjarðarkaupum um daginn, það var talsverður slatti af liði í búðinni, ok, allt í lagi með það. Nema hvað að ég tek fljótlega eftir geysilega sætri ljóshærðri dömu sem að er að versla þarna, hún var svo sæt, með sítt ljóst hár, há grönn og alveg eins og elskan hún Bridget Fonda! Ok, þarna stikaði hún um á pinnahælum og í þröngum flottum gallabuxum. En svo tók ég eftir því að hún var líka farin að horfa á mig, og þegar ég fór innar í búðina þá fylgdi hún í humátt eftir og ég fann augnaráð hennar hvíla á mér og svo litum við í augun hvert á öðru örsnöggt. Hún leit undan en skaut svo þessum ísbláu og sexý augum á mig öðru hverju.Ég tók eftir því að hún var með hring og ég hugasaði sem svo að það væri í lagi að horfa! Nú, jæa þegar að við fórum á sinn hvorn kassann og hún var með mikið minna af vörum en ég, þá reiknaði ég með að hún færi bara út á undan, en þá stóð hún og las innkaupamiðann alveg þanngað til að ég lagði af stað með kerruna út, þá setti gellan á fulla ferð og keyrði utan í kerruna hjá mér og baðst afsökunar og brosti svo sexý að ég hélt að hnén myndu brotna undan mér! Svo fórum við út og í sinn hvern bílinn, en þetta var mjög skrýtin upplifun, hafa einhver fleiri lennt í þessu líku og eru jafnvel kannski einhver sambönd sem hafa myndast svona? Kv september.