Þessi er æðislegur og er ég alltaf beðin um uppskriftina ef ég hef hann á boðstólum.

4-6 brauðsneiðar
1 stór rauð paprika
1 dós grænn aspas
1-12 fetaoststeningar í kryddolíu (ég hef alltaf meira)
12 svartar ólífur, steinlausar (ég hef alltaf meira)
50g rifinn ostur
2 msk. ferskt basilikum, smátt saxað
1 1/2dl rjómi
1 dl léttmjólk
gráðostur eftir smekk

Rífið brauðið niður í eldfast mót. Saxið papriku og aspas og skerið ólífur í sneiðar. Dreifið paprikunni og aspasnum, fetaosti og ólífum yfir brauðið. Skerið gráðost í litla bita og dreifið yfir. Þar ofan á er settur rifinn ostur. Saxið basilikum og dreifið yfir ostinn. Blandið saman rjóma og mjólk og hellið yfir réttinn. Bakið við 200°c í u.þ.b. 30 mín. eða þar til hann hefur fengið fallegan lit.

Skemmtilegur í saumaklúbbinn!!
Sá sem margt veit talar fátt