Þetta er skemmtileg kennitala en hann á ábyggilega eftir að lenda í því að fólk trúir honum ekki. -Hver er kennitalan þín? -Núll einn, núll einn, núll einn.. -Jæja góði, bara brandarakall Ég þekki t.d. mann sem heitir Jón Jónsson og þegar hann er spurður að nafni þá segir fólk oft bara “Jæja góði”. Ég þekki annan sem er alnafni frægs skálds og hann fær að heyra þetta líka t.d. ef hann er að panta eitthvað í gegnum síma. Fólk trúir honum ekki.