Sæl veriði. Ég var að velta fyrir mér hvort þið getið hjálpað mér aðeins..Þannig er mál með vexti að ég er frekar feiminn að tjá alvarlegar tilfinnigar við stelpu. Þessi stelpa er mikill partý stelpa en það er ég ekki alveg..Ég hef þekkt hana vel og verið með henni í bekk í einhver ca. 5 ár. og ég veit sitthvað um hana og sumt segir hún mér frekar en vinkonum sínum. Hún er alltaf að tala um að hún sé hrifin að eihverjum strákum sem eru 3 árum eldri og er með þeim allar helgar og stundum að drekka, sjálfur er ég reyklaus og drekk ekki. Vandinn er bara sá, að ég er búinn að vera hrifinn að henni í ca. 1 ár en ég hef aldrei haft kjarkinn í að gera neitt.Ég lít ekkert illa út eða neitt þannig, það er ekki það sem ég er hræddur við. Heldur það að hún er meira fyrir eldri strákana, samt neita ég að sætta mig við það og þar sem hún er ekki með neinum finnst mér tími kominn á að stappa í mig stálinu og gera eitthvað í málinu. Er eitthvað sem lesendum dettur í hug sem ég get gert til að heilla hana? Ég er nú frekar óreyndur í þessum málum og er enn hreinn sveinn. Þannig að ef þið hafið eitthvað gagnlegt að segja annað en að safna stigum, þá plz segið það.
P.S: Þetta með að ég er hreinn sveinn er vegna þess að ég bíð eftir þeirri réttu og mér finnst að þetta sé hún og ég held það.
Kveðja, Draugsi