Í Bandaríkjunum getur allt gerst, og nú geta íbúar landsins státað sig af því að þar hafi tvíburar fæðst- á sitthvorri öldinni. Aaron og Luke Hegenberger fæddust með átta mínútu millibili á South Shore spítalanum, í Weymouth, Massachussetts. Aaron fæddist sjö mínútum fyrir miðnætti 31. des 2000 en Luke fyrstu mínútu nýrrar aldar, 2001. Luke er jafnvel talin vera fyrsta barn hjónanna Johns og Debru Hegenberger. Þótt drengirnir hafi fæðst fimm vikum fyrir tímann líður þeim einstaklega vel sagði talsmaður sjúkrahússins Scott Pickard og þeir hafa fengið heilan helling af heimsóknum.

tekið af nulleinn.is