Jæja, þá fer að koma að litlu jólunum hjá okkur feðgunum! Ég vildi ekkert vera að senda pakkana hans, frá okkar fjölskyldu, með honum til mömmu sinnar, þannig að á fös. þá verða litlu jólin hjá okkur, og við rífum upp allavegana 5 pakka!!! Það verður geðveikt. Alveg eins og hjá krusidull, þá opnar hann pakkana með því að rífa smá og setja það til hliðar. (Jólasveinninn pakkaði inn skó-pökkunum). Það verður frábært hjá okkur. Mig hlakkar rosalega til… og ég veit að hann á eftir að fíla þetta. Þetta eru búin að vera þægilega stutt jól. Jólin eru bara ekki eins fyrir manni þegar maður er farinn að eldast svona :( Ég fór samt sem áður í 5-ára fílínginn minn þegar ég var að opna pakkana mína. Þægilegt að geta haldið soldið í barnið í sér…
Children…
Gromit