Þetta er rétt með gervifrjóvgunina. Það hafa ekki aðgang að henni nema pör af gagnstæðu kyni, þ.e.a.s. karlmaður og kona. Ég hef heyrt að sæðið sem er notað hér sé gjafasæði frá Danmörku þar sem markaðurinn er of lítill hér á landi til að halda einhverju slíku uppi. Hins vegar hef ég líka heyrt að lesbíur hafi samið við menn, jafnvel homma, að lána sér sæði sem þær tæknifrjóvga sig með sjálfar og eignast þannig börn. Ekki eins og þetta sé eitthvað flókið mál að koma þessu á réttan stað....