Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Vantar ráð

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Gefðu honum kvöldmatinn eins snemma og þú getur, kl. 5 eða 6 og taktu svo matinn af honum. Gefðu honum líka að drekka á ákveðnum tímum, með matnum, kannski aftur kl. 8 og svo ekki eftir það. Það er oft sagt að dýr þurfi alltaf að hafa aðgang að vatni en það er ekki alveg rétt. Þau þurfa ekkert að þamba vatn alla nóttina frekar en við. Þá ertu búinn að koma í veg fyrir þann möguleika að hann geri þetta af því hann sé alveg í spreng. Búr hugmyndin er líka góð. Hundurinn ætti að hafa kassa þar...

Re: Þrífættur Kisi

í Kettir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég held að hann muni spjara sig ágætlega með 3 lappir. Maður hefur nú séð annað eins á Animal Planet. Það virðist ekki hægja mikið á þessum ferfættu vinum okkar að missa eina löpp. Hins vegar fatta ég ekki af hverju hann þarf endilega að vera útiköttur. Ég tók að mér eina heimilislausa fyrir tæpum 3 mánuðum sem var búin að vera á útigangi og hún er alveg ánægð að vera inni. Það er bara svo miklu hættulegra fyrir þá að vera úti. Mín situr bara útí glugga (flugnanet fyrir) og viðrar sig. Í...

Re: Galinn Gaukur!

í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Spyrðu dýralækni eða í gæludýrabúð, sérstaklega ef það er búð sem sérhæfir sig í fuglum.

Re: Hjálp

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þig langar að ríða honum, þá skaltu bara endilega gera það. Skiptir það einhverju máli hvort hann er að nota þig? Ert þú ekki alveg eins að nota hann? Þú átt heldur ekkert að láta hann komast upp með að spyrja þig hvern þú ert að hitta. Það er bara þitt mál. Þú getur bara sagt honum að honum komi það ekkert við. Ekki ert þú að spyrja hvað hann er að gera? Nú ef hann hefur áhuga, þá sættir hann sig illa við að honum komi það ekki við hverjum fleirum þú ert með og þá kannski er hann til í...

Re: eru sumir hér....

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Bróðir minn og hans fyrrverandi voru vinir og hún var oft að hringja í hann til að kjafta. Þau eiga reyndar barn saman en samskiptin voru miklu meiri en bara út af því. Kærastan hans tók þessu alla vega mjög illa. Kannski líka af því fyrrverandi var ekki með kall. Hún hefur kannski haldið að fyrrverandi ætlaði að næla í hann aftur.

Re: vinna um jólin

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég verð líklega ekki að vinna um jólin en meðan ég var í fastri vinnu var maður yfirleitt í fríi á aðfangadag og gamlársdag. Það á að heita vinnudagur til hádegis en mörg fyrirtæki eru farin að hafa lokað. Náttúrulega annað mál ef þú ert að vinna í verslun. Tala nú ekki um sjúkrastofnanir eða slíkt.

Re: Barnaefni á Stöð 2...?

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þýðendur eru oft frekar illa launaðir og oft ekkert menntaðir. T.d. veit ég til þess að menntaskólakrakkar hafi verið að vinna við þýðingar. Hins vegar hefði manni fundist að viðkomandi hefði átt að vita þetta eða alla vega fletta því upp. Kannski metnaðurinn ekki sérlega mikill hjá þýðandanum eða bara gróðinn minni eftir því sem hann tekur lengri tíma í þetta.

Re: Hvar lærði fólk að skrifa? Í skóla??

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það bara stingur í augun að lesa greinar sem eru með mjög lélegri stafsetningu en mér finnst eiginlega verra þegar fólk setur illa upp. Þá er ég að tala um þegar allt er í belg og biðu, engin greinarskil eða punktar o.s.frv. Mamma mín skrifar svoleiðis og það er rosalegt erfiði að lesa bréfin frá henni. Sú villa sem fer mest í taugarnar á mér á ensku er þegar fólk skrifar “would of” í staðinn fyrir “would have”. Ég veit ekki af hverju. Bara pirrar mig rosalega. Það er engin sérstök villa á...

Re: Usenet - Fjársjóður af skjölum og upplýsingum

í Grafísk hönnun fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég var með fría þjónustu á isl.is og þar fékk ég aðgang að nntp.isnet.is Gæti verið að það hafi verið mistök en mér fannst þetta alla vega mjög góður fréttaþjónn. Alla vega betri en vortex sem ég var hjá áður.

Re: Nokia símar bila mest!

í Farsímar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst það ekkert mæla Hátækni bót þó það sé mikið að gera hjá þeim. Ef það er svona mikið að gera, þá geta þeir bara ráðið fleira fólk og stækkað við sig í húsnæði.

Re: Nokia símar bila mest!

í Farsímar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þeir taka fram hlutfall í greininni, ekki bara fjölda. Ef þeir selja 20.250 Nokia síma og 7.330 þurfa að fara í viðgerð innan hálfs árs, þá er það 36% eða aðeins meira en þriðji hver sími. Hins vegar segja þeir ekki hvað hlutfallið er hjá öðrum símum, bara að það sé hæst hjá Nokia.

Re: Hvar lærði fólk að skrifa? Í skóla??

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Amma mín skrifaði alltaf “firir” en ekki fyrir en hún hafði það sér til afsökunar að hún var fædd 1910 og var aldrei í skóla.

Re: Hagaskóli vann Skrekk!

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Reglurnar þurfa náttúrulega að vera á hreinu fyrir keppnina en er það samt ekki svolítið óréttlátt að sá skóli (eða foreldrar) sem hefur efni á að láta mestan pening í keppnina eigi meiri möguleika?

Re: ER

í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það má bara skrifa um ER á http://www.hugi.is/sjonvarp/ og ef það eru nógu margir sem hafa áhuga, þá fæst kannski áhugamál fyrir rest. Samt held ég ekki að það myndi gerast.

Re: Húndaskítur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Gerðu það, þá kannski fer hann að passa uppá þetta. Einn vinnufélagi minn var með svona nágranna. Hann tíndi upp allan hundaskít sem hann fann í götunni og dembdi hlassinu á dyramottuna þeirra.

Re: Raunasaga framhaldsskólanema

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hver á að fræða þig um einingar? Ef þú ert ekki viss hvað þú átt að taka, þá geturðu alltaf talað við námsráðgjafa. Annars verður maður bara að læra sjálfur að pússla saman áföngum þannig að eitthvað vit sé í :)

Re: blóðbankinn í vandræðum

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég var blóðgjafi áður en ég þurfti að byrja á þessum lyfjum og það var aldrei hringt í mig. Kannski er ég bara í svona ómerkilegum flokki :)

Re: blóðbankinn í vandræðum

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það eru mun strangari reglur um blóðgjöf á Íslandi en í N-Ameríku. Ég er í Kanada og bjó líka áður í Bandaríkjunum og þar má gefa á 8 vikna fresti og þeir eru svo blóðfátækir að þeir hringja í þig og segja þér að mæta þegar 8 vikur eru liðnar. Á Íslandi er þetta á 3 mánaða fresti. Ég mátti heldur ekki lengur gefa á Íslandi vegna lyfja sem ég þarf að taka, ekki vegna þess að þau hafi slæm áhrif á blóðið, bara efni sem aðrir hafa sem mig skortir og þarf því að taka í töfluformi. Blóðbankinn á...

Re: Dýra Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég fann eitthvað um skattinn á http://www.skm.dk/tal/engelsk/tax87-02.php3 Þar segir um tekjuskatt árið 2001: Marginal tax rates for salary income in the average municipality, including labour market contributions Total, lowest 43,70 Total, medium 49,22 Total, highest 62,92

Re: hvað er þetta?

í Heilsa fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nei, það er kallað skammdegisþunglyndi ef þú lendir alltaf í þunglyndi á veturna. Kannski eru hins vegar vinir þínir í skammdegisþunglyndi liggjandi undir sæng og nenna ekki að tala við neinn. Eða þá að þeir hafa bara svona mikið að gera.

Re: Kvart..

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta er athyglisvert. Ætli stjórnendur láti ráðast af eigin pólitískum skoðunum hvaða greinar þeir samþykkja?

Re: Villuráfandi Kanar

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Kellingargreyið sem brenndi sig á kaffinu lenti í að það helltist yfir hana og hún brenndi sig ekki “ponsu” heldur fékk hún þriðja stigs bruna og þurfti að vera á spítala í nokkra daga og fá ágrædda húð. Ástæðan var McDonalds seldi slatta heitara kaffi en aðrir veitingastaðir, nógu heitt til að 2 sekúndur á húð voru nóg til að brenna þannig að þegar þú hellir kaffi yfir fötin þín, þá nærðu ekki að rífa þig úr fötunum á svipstundu. Sérstaklega kannski ekki þar sem þetta var áttræð kona og...

Re: Vælið bara yfir harkalegum orðum...

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Fyrir nauðgun er það lágmark 1 ár, hámark 16 ár. Fyrir kynmök við barn undir 14 ára er ekkert lágmark en hámark 12 ár. Fyrir kynmök við eigið barn, stjúpbarn eða fósturbarn er aftur ekkert lágmark, hámark 10 ár ef barnið er undir 16 ára, annars 6 ár. Ég er samt ekki að fatta af hverju það er álitinn vægari glæpur að misnota sín eigin börn frekar en annarra.

Re: Þyngd refsinga í lögregluríkinu

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þú skaðaðir engan nema sjálfan þig í þetta skipti en hvað ef þú hefðir keyrt á einhvern, ja, t.d. 12 ára barn og skaðað það fyrir lífstíð?

Re: hætta á biti!

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Tíkin varði bara eiganda sinn og hefði átt að vera í fullum rétti. Ég hefði ekki leyft að henni væri lógað heldur hefði ég farið með málið fyrir dóm en það var einmitt það sem gerðist í þessu eina dæmi sem ég þekki þar sem hundur var dæmdur í rétti að bíta barn. Það fór einmitt fyrir dóm vegna þess að þau vildu ekki láta lóga hundinum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok