Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Eins og Harry Potter

í Sorp fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er svo sem ekkert nýtt að krakkar hermi eftir myndum. Það voru t.d. ansi margir sem reyndu að fljúga á blómaskeiði Súpermann myndanna. Ég þekki t.d. einn sem flaug ofan af eldhúsborði og handleggsbrotnaði.

Re: Mötuneyti

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Svoleiðis var þegar ég var í barnaskóla, það er að allir þurftu að fara út í frímínútunum nema stundum leyft að vera inni þeim sem voru með kvef og svo var nestistími inni í stofunni þegar kennarinn las uppúr bók og allir átu nestið sitt. Þegar ég var í gaggó var yfirleitt ekki farið út í frímínútum heldur verið inní sal og þar var sjoppa sem var hægt að kaupa eitthvað í. Held samt ekki nammi, kannski kókómjólk og snúð. Annars man ég það ekki.

Re: Stærð á letri...

í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er líka hægt að fara í “View” -> “Text Size” í Internet Explorer og breyta þar.

Re: Endurskinsmerki

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er víst algengast að það sé keyrt á fólk þegar það labbar yfir götu þannig að ef fólk nennir ekki að vera með hangandi endurskinsmerki á hvorri hlið, þau eru reyndar langbest en slást utan í allt og eiga til að krækja sér í hluti sem þú gengur framhjá, þá er lítið mál að líma smá bút neðarlega á ermarnar. Allt í lagi að setja á bakið líka en maður á að ganga á móti umferð þar sem er ekki gangstétt þannig að það er frekar ólíklegt að það verði keyrt aftan á þig gangandi ef þú ferð rétt að.

Re: Puttasog

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það gerði mínum tönnum alla vega ekkert illt þó ég sygi puttana. Fólk hefur oft spurt mig hvað ég hafi verið lengi með spengur en ég var það aldrei. Skiptir það annars nokkru máli þó barnatennurnar skekkist?

Re: Dýra Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Vá, 130 þús. í bílatryggingu? Varstu í 0% bónus?

Re: Puttasog

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Leyfðu honum þetta bara. Hann hættir ábyggilega sjálfur áður en hann fermist. Ég saug sjálfur á mér puttana sem krakki og það þýddi víst ekkert að bjóða mér snuð. Alla vega var ég oft með mjög nagaða og ljóta putta þegar ég var 4-5 ára en ég hætti þessu alla vega áður en ég byrjaði í skóla. Það voru ekki gerðar neinar ráðstafanir til að láta mig hætta því.

Re: The Practice

í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Sammála. Það er alveg hægt að skrifa um þetta á yfiráhugamálinu <a href="http://www.hugi.is/sjonvarp">http://www.hugi.is/sjonvarp</a> Svo sem ágætir þættir en hvað á að tala um?

Re: Amen

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það sem mér finnst óþolandi er þegar fólk segir “Amen” í daglegu tali til að tákna að það sé sammála einhverju. Já, eða á spjallþráðum. Annars man ég ekki til þess að ég hafi einhvern tímann verið í aðstöðu til að neita minnihlutahópum um eitthvað og hef því ekki lent í þessu. Hins vegar man ég til að nokkrar skólasystur mínar í menntó voru mjög anti-rasista og helst svo að þær urðu að sofa hjá hverjum einasta hörundsdökkum manni sem þær hittu. Það finnst mér nú einum of. Dökkt fólk er bara...

Re: Kynja mismunur

í Lífsstíll (gamli) fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er alveg sammála þér með hórustimpilinn en það eru ekkert síður stelpur sem kalla aðrar stelpur druslur. Jafnvel bara meira um það. Í sambandi við fötin, þá segja lögin að þú verðir að hylja nekt þína, mátt t.d. ekki ganga nakin niður Laugaveginn. Skólar geta svo sett hvaða reglur sem þeim sýnist og sama með fyrirtæki. Ef þú ert t.d. að vinna á skrifstofu og mætir í skítugum vinnugalla með olíu og málingarblettum, þá myndu þeir næstum örugglega senda þig heim að skipta um föt. Sama ef þú...

Re: Kynja mismunur

í Lífsstíll (gamli) fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Karlar blaðra nú alveg eins mikið og konur á vinnustöðum en hins vegar er annað sem spilar inní og það er að konur eru oftast með meiri ábyrgð á heimilinu og börnunum og þurfa þess vegna frekar að hlaupa úr vinnu ef eitthvað kemur uppá, fara heim á slaginu þó það sé mikið að gera og vera heima hjá veikum börnum. Það segir sig bara sjálft að ef yfirmaðurinn er með starfsmann sem þarf að hlaupa úr vinnu með engum fyrirvara og fer alltaf heim á slaginu þá borgar hann þessum starfsmanni minna....

Re: Efnislítil föt...

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst föt stelpna alveg nógu siðsamleg meðan ekki sést í geirvörtur eða varir (að neðan). Ef þessar stelpur eru að æfa sig fyrir glæstan starfsferil sem súludansmeyjar, þá verður nú að líta fram hjá ýmsu :)

Re: ææ greiið sænski kallinn!!!!!

í Sorp fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Já, einmitt, eins og gæjinn sofi bara sem fastast meðan tittlingurinn á honum fuðrar upp. Þvílíkt rugl.

Re: Hætta í áfanga.

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég þekki stelpu sem gat ekki þýsku en fór síðan að vinna í Þýskalandi eitt sumarið og gat tekið stöðupróf á eftir og klárað alla þýskuna í einu.

Re: Tyrkir???

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þeir eru ábyggilega jafn misjafnir og þeir eru margir en hafðu í huga að Halim Al er tyrki.

Re: Dýra Ísland

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvaðan hefurðu það að öll hin norðurlöndin bjóði uppá skólastyrk? Ég athugaði þetta einhvern tímann og norðmenn og svíar voru bara með námslán alveg eins og við. Meira að segja á lakari kjörum, styttri endurgreiðslutími og hærri vextir.

Re: Ingibjörg Sólrún lætur ljós sitt skína.

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þú þarft líklega tvo ábyrgðarmenn, helst sem eru fasteignaeigendur sjálfir. Til að geta fengið lánað meira af íbúðarverðinu er líka gott að fá lánað veð ef þú getur. Þú getur meira að segja bara keypt einhverja ósamþykkta holu. Þegar þú ert búinn að borga nóg til að eiga eitthvað í henni geturðu bara selt hana og keypt eitthvað betra.

Re: Hvenær er tími fyrir annað barn?

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mín systkini eru 17, 16, 12 og 3 árum eldri en ég. Vissulega voru þau eldri löngu orðin fullorðin þegar ég byrja að muna eftir mér en mér finnst að eftir að ég varð fullorðinn hafi ég kynnst þeim á annan hátt. Sá sem er 3 árum eldri var líka góður leikfélagi. Hins vegar léku eldri bræður okkar sér aldrei saman þegar þeir voru litlir. Þannig séð skiptir aldursmunur á milli systkina alls ekki það miklu máli að fólk eigi að láta hann stjórna sínum barneignum. Mér finnst t.d. alveg hrikalegt...

Re: rautt

í Gæludýr fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þvílíkt okur. Var hann búinn að vera þar eitthvað lengi? Ég veit ekki hvað kostar að fá kött í Kattholti, kannski ekkert. Hringdu bara og tékkaðu á því.

Re: Moona Lögguna!

í Sorp fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Já, það er munur að vera ekki orðinn sakhæfur eða þannig. Því miður var ég svo vitlaus þegar ég var krakki að ég vissi ekki að maður yrði ekki sakhæfur fyrr en 15. Annars hefði ég líklega gert miklu meira af mér. Hins vegar finnst mér ekkert rosalega sniðugt að kasta einhverju í bíla, getur t.d. valdið slysi og það er ekki eitthvað sem maður vill hafa á samviskunni að maður hafi valdið því að einhver dó eða örkumlaðist vegna þess að maður gerði eitthvað rugl þegar maður var krakki.

Re: Eins og Harry Potter

í Sorp fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég sá það í einhverri dýralífsmynd að flestir snákar eru heyrnarlausir eða heyra mjög lítið.

Re: Líkpartaskriður í Brasilíu

í Sorp fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Attack of the zombies eða hvað? :)

Re: Raunasaga framhaldsskólanema

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hlýtur að vera einn af þeim sem eru enn með bekkjakerfi. MR? MS? Ég veit að það er mikið snobb í MR. T.d. komst ein frænka mín inní hann eftir að hún var búin að fá neitun með því að amma hennar hringdi og sagði þeim að pabbi hennar væri læknir. Svarið í símanum var bara “Ó, fyrirgefðu, hljóta að vera mistök, auðvitað kemst hún inn”. Ég hef líka heyrt af krökkum sem hafa verið þar að ákveðnum tossum hefur verið “bjargað” frá falli ef þeir eiga rétta foreldra. Annars er það mjög algengt enn í...

Re: Er hann að nota mig eða ekki.

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það gæti verið að hann væri að nota þig en það gæti líka verið að hann væri bara að gera sér upp erindi til að hringja. Prófaðu að segja honum næst að tölvan sé í viðgerð en spurðu hvort hann nenni í bíó. Ef ekki, þá er hann líklega bara að nota þig.

Re: jólasveinar 1 og 8

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég hef heyrt að þeir hafi verið álitnir 9 fyrir norðan og 13 fyrir sunnan. Það voru líka minna þekktir jólasveinar eins og Faldafeykir sem þýtur um til að sjá pilsin á kellingunum fljúga upp á mið læri. Hann hlýtur hafa fengið hjartaáfall eða eitthvað þegar pilsin styttust. Annars rænir Stúfur einhverju eða Kertasníkir, sníkir hann ekki bara?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok