Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: "Öðruvísi" fólk

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Já vá, þeir hljóta að vera að reyna að gera alla öfuga ;) Nei annars, líklega er þetta bara tilviljun. Sagt er að 10% fólks sé samkynhneigt þannig að 1 af hverjum 10 sem þú sérð í sjónvarpi ætti skv. því að vera samkynhneigður. Taldir þú nokkuð hvað þú sást marga í imbanum þessa helgi sem voru streit? :) Anna Kristjáns er hins vegar náttúrulega bara eins og hún er og jú, líklega bara tilviljun að hún var í imbanum sömu helgina og hinir þættirnir.

Re: Fólkið

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Skil ekki hvað þú þarft að fá tips. Færðu ekki borgað fyrir að vinna þarna? Það er allt öðruvísi erlendis því þjónar þar fá yfirleitt mjög lágt fastakaup vegna þess að það er litið svo á að tipsin séu hluti af laununum. Má segja að hluti af launum þeirra sé árangurstengdur.

Re: Óásættanleg þjónusta í Tæknibæ

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég held að Neytendasamtökin geri ekkert í svona málum nema maður sé félagi. Annars held ég ekki að þú hafir skilarétt nema geta sýnt frammá að hluturinn sé gallaður. Í versta falli hefðu þeir geta neitað þér algjörlega um að skila. Þeir bara góðir að láta þig þó hafa innlegg upp á 85%.

Re: Enn ein hugmynd

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Kannski óþarfi að hafa uppskriftir þar sem það er hægt að nálgast þær á http://www.hugi.is/matargerd/ en jólalagakubburinn er góð hugmynd. Fólk þarf að kunna textana til að geta sungið þá með krökkunum sínum.

Re: sorglegt

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þú verður bara að vona að hún verði skárri. Pabbi minn er líka alki og stundum var hann það drukkinn á aðfangadagskvöld að hann svaf bara af sér að opna gjafirnar. Í mesta lagi hægt að ýta við honum og láta hann opna eina og eina til málamynda. Svo bara fékk kallinn nóg og hætti eftir 20 ára drykkju og hefur ekki smakkað dropa í 4 ár. Ástandið á heimilinu er náttúrulega allt annað vegna þess að þegar einn aðilinn er útúrdrukkinn þá hefur það náttúrulega slæm áhrif á hina líka og þegar...

Re: Anna Kristjáns

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hann fyrir aðgerð, hún eftir aðgerð.

Re: fríhöfnin

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Systir mín lenti í því að það opnaðist body lotion flaska í ferðatöskunni hennar og þegar tollurinn opnaði þá sögðu þeir bara oj og lokuðu aftur :)

Re: afgreiðslufólk sem heldur á kortinu meðan posi fær heimild

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Vákort eru kort sem kortafyrirtækin vilja fá úr umferð, gæti hafa týnst eða verið stolið, eigandi búinn að misnota eða kortið útrunnið.

Re: Lögregluáreiti!

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nei, ég hef ekki einu sinni séð fjallalöggu á hesti. Held að þær séu bara á svona venjulegum löggubílum :)

Re: Waris Dirie, flagð undir fögru skinni ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Flestum finnst ekki tiltökumál hvernig komið var fram við þá sem börn fyrr en þeir komast að því að þeir hafi verið órétti beittir. Barn sem hefur t.d. verið misnotað og heldur að öll börn séu misnotuð af því pabbi sagði það, það skilur ekki hvað því hefur verið gert fyrr en það kemst að því að pabbi var að ljúga. Sama með umskurnina. Í þeirra landi var þetta veruleikinn og ekkert til að tala um en eftir því sem hún er lengur í vestrænum heimi og kemst að því að þetta er ekki sjálfsagður...

Re: Lögregluáreiti!

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Einu sinni þegar ég var krakki kom löggan og bankaði uppá hjá foreldrum mínum. Ég og pabbi höfðum farið út að labba með hundinn kvöldið áður og það hafði verið brotist inní bíl og löggan hafði rakið okkar spor í snjónum frá bílnum og heim. Við höfðum náttúrulega ekkert séð, líklegast hefur verið brotist inní bílinn áður en snjóaði og við farið út að labba eftir að snjóaði en við töluðum bara við þá í smástund og þeir fóru. Ekkert yfir því að kvarta. Hins vegar finnst mér fáránlegt ef löggan...

Re: Waris Dirie, flagð undir fögru skinni ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það eiga nú ýmsir við drykkjuvandamál að stríða, Davíð Oddsson og Bermúdaskálin, Jón Baldvin var alltaf rallhálfur og Guðjón Þórðarson okkar ástkæri fótboltaþjálfari, beit hann ekki líka í nefið á einhverjum? Mannskepnan er breysk og mér finnst ekkert taka frá málefninu þó kellingargreyið fái sér í glas. Ég fatta ekki hvað þú ert að meina með að hún hafi ekki talað neitt um þetta við Amal Quase á sínum tíma. Ertu að meina að hún sé að ljúga einhverju? Gæti ekki bara verið að hún hafi haldið...

Re: Hvad á madur ad gera í svona ástæðu?

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þið eruð búin að prófa að tala við þjálfara og gengur ekkert þá er hann líklega bara eitthvað geðveikur og mannúðlegast að láta bara lóga honum. Þið gætuð kannski prufað annan þjálfara eða þið gætuð líka gefið hann en það er ekkert betra fyrir hann að vera sendur hús úr húsi vegna þess að enginn getur tjónkað við hann.

Re: doberman-hundar

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Tengiliðir Hundaræktarfélagsins fyrir Dobermann eru Jón Viðar Magnússon, s. 567-4563 og Stella Kristjánsdóttir s. 554-4157 Annað hvort þeirra ætti að vita eitthvað um got sem eru væntanleg.

Re: Vantar smá hjálp=)

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mig hefur alltaf langað í Golden líka. Þeir eru alveg frábærir í skapinu. Ég man eftir hundasýningu sem ég var á þar sem margir hundarnir voru búnir að vera leiðir að bíða, urrandi og fúlir. Svo komu Golden hundarnir inn og þá voru þeir bara brosandi og sátu rólegir og horfðu á eigendur sína með aðdáun :) Hins vegar býst ég við að þeir þurfi mikla hreyfingu.

Re: Whiskas

í Kettir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er ekki gott að skipta snöggt um fóður hjá kettinum. Það er mælt með því að ef þú breytir um fóður að blanda smá af nýja í gamla og svo alltaf meira og meira þangað til það er bara nýja. Breytingin á að taka nokkra daga. Bara hafa það í huga að þegar þú gefur kettinum að éta, þá tékkar þú hvort fóðrið sé að verða búið og þá hefur þú tíma til að kaupa meira áður en það klárast.

Re: Lögregluáreiti!

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég bý í Kanada og ég hef bara varla séð löggu hvað þá meira. Reyndar fór ég á kaffihús fyrir nokkru og sá þá 2 löggur inni :) Einn félagi minn var líka að vinna á kleinuhringjasjoppu og sagði að þeir kæmu stundum þangað með sírenurnar á :) Annars er í mörgum löndum sekt við að ganga á móti rauðu ljósi, það er ef það er einhver lögga nálægt sem sér til þín :)

Re: Lögregluáreiti!

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þeir hefðu nú átt að byrja á því að tékka hvort tegundin á símanum passaði. Ekkert gagn af að nefna nafn og númer þar sem þú hefðir getað verið búinn að setja annað SIM kort í hann. Hins vegar eru löggur náttúrulega ekki þekktar fyrir að vera sérlega gáfaðar :)

Re: Soldið sem hefur legið mér á hjarta...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Í stjórnarskránni segir: 75. gr. [Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess. Í lögum skal kveða á um rétt manna til að semja um starfskjör sín og önnur réttindi tengd vinnu.]1) Er ekki spurningin hvort almannahagsmunir virkilega hafi eitthvað að gera með einkadansa eða ekki? Ég sé alla vega ekki að það hafi neitt að gera með hagsmuni almennings nema fyrir þann almenning sem kaupir slíka þjónustu og...

Re: ljós í blokk !

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst að fólk eigi að ráða því hvernig ljós það hefur. Ekki viltu að allir séu skyldaðir til að hafa eins gardínur líka? Fólk hefur sitt persónulega mat á því hvað er flott og sumir halda ekki einu sinni uppá jólin. Ég er í lítilli blokk og ég er ekkert með skreytt hjá mér en ég get séð blokkina við hliðina. Þar er einn með hvíta seríu og hvítt hreindýr á svölunum en annar með rauða seríu og tveir ekki neitt. Í blokkinni á móti sést innum gluggana að einn er búinn að skreyta jólatréð....

Re: Skreytingar á heimilinu fyrir jólin

í Heimilið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég hef ekki lagt í vana að skreyta hjá mér en oft hjálpa ég foreldrunum að finna jólaskrautið þeirra ef ég er í heimsókn en þau byrja aldrei fyrr en 1. sunnudag í aðventu þó jólasokkurinn komi stundum upp fyrr eða um leið og jólakort byrja að berast. Núna eru fyrstu jólin síðan ég flutti út þannig að ég hef verið að spá í hvort ég ætti að skreyta eitthvað en býst ekki við að ég nenni því. Ég sendi ekki jólakort þannig að ég fæ mjög fá.

Re: Dómur kveðinn í Winonu Ryder málinu

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Enda var hún ekki saklaus :D Hins vegar hafa fjölmiðlamenn sagt að uppá frægð hennar og frama að gera, þá sé betra fyrir hana að játa þetta bara og segjast vera leið yfir þessu og hún hafi bara átt við vandamál að stríða og eitthvað svoleiðis. Það gengur víst ekki í Bandaríkjunum að þræta bara fyrir eitthvað svona og halda að það hverfi.

Re: ESB, heimsveldi í fæðingu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Já, ég held við eigum nóg með að borga undir rassgatið á okkar eigin bóndadurgum :) Annars þyrfti að reikna út hvað við myndum græða á ESB ef eitthvað svo hægt væri að sjá hvort það væri eitthvað meira en við værum að borga. Og hafa í huga að ríkustu löndin í Evrópu eru öll komin í ESB nú þegar þannig að gjöld á okkur hlytu að hækka eftir því sem fleiri ríki eru tekin inn sem eru öll fátækari en við.

Re: Kynþáttahatur

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og þarf ekki langt að fara. Bróðir minn flutti frá Kópavogi uppí Mosó fyrir nokkuð mörgum árum og ætlaði að ganga til liðs við björgunarsveitina þar, enda mikill útivistargarpur sem hikar ekki við að labba yfir jökla á skíðum sér til gagns og gamans (alla vega á sínum yngri árum þó hann sé farinn að róast í dag) en hann fékk ekki inngöngu og komst að því seinna að allir í björgunarsveitinni þeirra voru einhverjar fáar fjölskyldur og allir ættaðir úr Mosó.

Re: Kynþáttahatur

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst útvörpun í útvarpi allt í lagi en ef þetta er svona hátalaragarg yfir allt hverfið þá ætti svo sannarlega að banna það eins og annan hávaða. Mér finnst að ætti líka að banna kirkjuklukkur, a.m.k. fyrir hádegi. Óþolandi hávaði.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok