Yfirleitt kemst ég í jólaskap þegar byrjar að snjóa, jafnvel þó það sé i september. Hins vegar var undantekning á því þegar ég var í HÍ og var á fullu í prófalestri. Þá var kannski síðasta prófið 21. des og lokaball um kvöldið. Svo svaf maður allan 22. enda úrvinda og fattaði svo ekki fyrr en maður vaknaði á Þorláksmessu að það væru að koma jól og neyddist þá til að rjúka út og kaupa allt. Fyrir utan háskólaárin, þá hef ég oft keypt jólagjafir snemma, t.d. í nóvember ef ég hef séð eitthvað...