Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Heim um jólin!

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er í Kanada og dettur ekki einu sinni til hugar að fara heim um jólin enda hef ég ekkert efni á því. Flugleiðir segist geta selt mér far frá Minneapolis á tæp 300 þús. Að vísu Saga class, líklega allt fullt. Ég samt bara held ekki :) Cheaptickets getur komið mér alla leið fyrir 197 þús en reyndar er það í gegnum 2 millilendingar.

Re: óásættanleg þjónusta

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það liggur við að það sé ekki hægt að treysta neinum lengur. Um að gera að fá svona hluti bara skriflega. Annars hefði ég nú haldið að lögfræðingurinn ætti að geta gert eitthvað. Mér finnst alla vega ekki eðlilegt að það sé hægt að fara 100% fram yfir það sem um var talað.

Re: Köld umræða, eða galli í kerfinu ?

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hommagreinin var líka mjög köld þegar hún datt þarna inn, megnið af henni er frá í september nema kannski eitt svar. Hvort eitt nýtt svar er nóg til að hún detti inn á heitar er annað mál en ég hefði haldið ekki.

Re: Jólagjafaauglýsingar

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég hef aldrei gefið nema foreldrum mínum, systkinum og ömmum. Ömmurnar eru dánar og ég hætti að gefa systkinunum í ár þar sem það er orðið frekar yfirborðskennt, maður er bara að gefa þeim konfekt eða eitthvað sem þau éta ábyggilega nóg af. Eða það er verið að spyrja “hvað viltu fá?” og maður veit fyrirfram hvað er í öllum pökkunum sem maður fær. Maður gæti þá alveg eins sagt þeim að skiptast á þúsundköllum. Eða vera rausnarlegur og skiptast á fimmþúsundköllum :D Ég hef aldrei lagt í vana...

Re: Miðlar (2/2)frá Elo8

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Bróðir minn fór einu sinni til miðils á svona slæmum degi, hann sá ekki neitt og gaf honum annan tíma. Stelpa sem ég þekki lenti í sama, miðillinn sá ekki neitt en steypti þá bara og rukkaði hana samt fyrir tímann. Sumir stunda það að láta miðlana sanna sig með því að gefa þeim engar upplýsingar en miðlarnir segja að þeir geti ekki miðlað ef fólkið lokar á þá. Þess vegna held ég að það sé spurning hvort miðlarnir séu virkilega að miðla frá látnum ættingjum eða hvort þeir séu bara að miðla...

Re: Hugleiðingar - Hvernig ég varð norn

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef þú opnar þig fyrir því þá áttu að geta séð glefsur úr fyrri lífum. Ég geri þetta stundum mér til gamans þó ég trúi reyndar ekki 100% á þetta.

Re: Um hestinn á keflavíkurflugvelli

í Hestar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ætli það sé ekki bara eins og var með hundana hérna einu sinni. Ráðandi öfl sáu bara enga þörf fyrir að Íslendingar þyrftu að eiga fleiri tegundir. Líklega segja ráðandi öfl núna að Íslendingar þurfi bara Íslenska hesta enda eru þeir náttúrulega langbestir myndi Guðni landbúnaðar líklega segja.

Re: Hugleiðingar - Hvernig ég varð norn

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég held að við eigum fortíð í fyrri lífum og ég held að okkur sé ekki ætlað það í þetta skipti. Fyrir utan það að hún stundar heavy sadó-masó og ég ekki þannig að það passar ekki alveg :)

Re: Hugleiðingar - Hvernig ég varð norn

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þessi er nú ekki í dópi og hún galdrar ekki á fólk enda segir hún að það komi þrefalt til baka. Hún er mjög góð í lækningagöldrum og svoleiðis. Hins vegar eru ástamálin hjá henni alltaf í rugli og hún alltaf að leita að þeim eina rétta en getur aldrei séð sjálf að sumir þessir gaurar sem hún er að eltast við eru ekki hann og langt í frá. Hún ætti frekar að eltast við mig :D Nei, annars. Ég efast um að ég myndi meika það :)

Re: það er búið að sannfæra mig!

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvaðan hefurðu það að þau séu mun styttra í skólanum á daginn? Ég surfaði smá og fann tölur yfir klukkustundir á ári sem 10 ára börn í Evrópu þurfa að sitja í tímum. Af öllum Evrópusambands- og EFTA ríkjunum eru bara Finnar með færri tíma á ári en við eða 656 en við með 703. Meðaltalið er 829 og Holland á metið með 1000. Ef þeir eiga að ná að vera fleiri tíma í skólanum, þá hljóta þeir að vera jafn lengi á dag en bara fleiri daga á ári.

Re: Mjááá

í Kettir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég og einn félagi minn ætluðum einu sinni að eiga kött sem við fundum. Þetta var gamall gulbröndóttur villifress sem vantaði á annað eyrað og við ætluðum að byrja á því að þvo honum. Við fórum með hann inní jeppa sem bróðir minn átti og sóttum vatn í bala og þvoðum kettinum sem tók þessari meðferð furðu vel. Hins vegar eftir því sem kötturinn blotnaði meira fékk ég því meira ofnæmi fyrir honum og endaði með að þurfa að flýja af hólmi og hætta við þessa ráðagerð. Hins vegar lagaðist ég af...

Re: "long distance"

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þið gætuð haft símasex ;) Annars þekki ég það eina til svona langlínusambanda að ég þekki par sem voru 2 vetur í sitthvoru landinu í skóla og þau töluðu aldrei saman á netinu beint heldur sendu bara tölvupóst.

Re: Hjálp...

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Manneskjan á greinilega við all-illileg geðræn vandamál að stríða og þó það sé ljótt að segja það þá held ég að það væri best fyrir þig að gleyma henni. Ef þú vilt reyna að halda í hana, þá verður þú að koma henni í meðferð hjá geðlækni og það sem fyrst. Það er ekkert sem þú getur gert sjálfur til að “laga” hana.

Re: Útlistun á tollgjöldum?

í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hafðu það á hreinu líka hvað tollurinn leggst ofan á. Ég held að hann leggist nefnilega ofan á heildargjaldið, þ.e. verðið + flutningskostnaðinn líka og svo leggist VSK ofan á allt saman.

Re: Hugleiðingar - Hvernig ég varð norn

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Gott hjá þér að gera bara það sem þig langar til. Ég þekki líka konu sem segist vera norn. Ég hélt fyrst bara að hún væri eitthvað að grínast en svo er nú ekki. Ég hef séð sumt af því sem hún getur gert og fannst það bara flott. Hins vegar hefur hún alveg sína galla eins og annað fólk og hún er ekki sérlega góð í að sjá út sitt eigið líf þó hún geti séð hluti hjá öðrum.

Re: Lærðu að galdra

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Og muna að galdra aldrei ólukku yfir þá sem þér líkar illa við vegna þess að þá færðu það þrefalt til baka :)

Re: Dagur í lífi leikjatölvufíkils...

í Leikjatölvur fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Góður! Til hamingju með vélina líka :) Ég hef sjálfur stundum átt erfitt með að standast svona skyndihugdettur þegar ég hef ætlað að gera eitthvað allt annað, t.d. kaupa jólagjafir eða já, bara kannski sokka eða eitthvað þannig að ég skil þetta mjög vel. Fín grein annars. Maður fór bara með ykkur. Annars gef ég mér yfirleitt alltaf jólagjöf en ég er ekki búinn að ákveða hvað það á að vera þessi jól. Á reyndar engan pening :-/

Re: Um hestinn á keflavíkurflugvelli

í Hestar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég býst nú við að eigandi hestsins hafi verið með hann tryggðan þannig að þetta er ekki peningaspursmál. Ef hesturinn hefði slasað sig í látununum, þá sé ég ekki að hægt hefði verið annað en að lóga honum hvort sem þeir yrðu að taka hræið með sér eða hvað. Hins vegar sé ég ekki hvaða gagn hefði verið í því að skilja hann eftir. Þeir hefðu þá bara þurft að fljúga burt með hann seinna. Mér finnst alveg rétt sem þeir gerðu að bara gefa honum róandi og halda áfram.

Re: það er búið að sannfæra mig!

í Skóli fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég myndi nú ekki líkja skólanum við þrælabúðir. Þið þurfið ekki að vera þar allan sólarhringinn og kennararnir berja ykkur ekki eða mega það ekki a.m.k. auk þess sem þér er frjálst að hætta eftir skylduna. Ég held ekki að krakkar í öðrum löndum fái neitt meira frí. Þó frænka þín fái lengra páskafrí og lengra jólafrí, þá er hún líklega lengur í skólanum fram á sumar. Það alla vega segir hjá skiptinemasamtökunum að skólinn í Þýskalandi sé ekki búinn fyrr en í endaðan júní. Líklega byrjar hann...

Re: Ofurhugalegspurning...

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Láti minna á sér bera? Ég hélt að hún væri bara hætt. Held að hún hafi meira að segja tilkynnt það með stæl.

Re: Sýn svo SANNARLEGA ekki að standa sig!

í Box fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Einhver hlýtur að hafa tekið þá ákvörðun að sýna ekki þennan bardaga og ég giska á að það hafi verið Bubbi kallinn. Eða kannski var hann bara orðinn sybbinn en ef kallinn getur ekki haldið sér vakandi til að klára dagskrána, þá er nú kominn tími á nýjan þul. Bubbi er líka algjör rugludallur og lýsingarnar eru oft útí hött. Hann minnir mig á kellingu sem ég þekki sem hoppar og klappar yfir sjónvarpinu (þá er ég ekki að tala um íþróttaviðburði heldur sápuóperur) :) Mér finnst hann alla vega...

Re: Sýn svo SANNARLEGA ekki að standa sig!

í Box fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Klitschko var að taka McCline niður í 10 lotu og hann stóð upp á 9 í talningunni en þá hringdi bjallan. Bardaginn var samt stöðvaður að beiðni hornsins hans sem sagði hann ófæran um að halda áfram. Mér fannst Klitschko halda honum frá sér með stungunni allan tímann. McCline gat lítið gert, kannski ekki tilbúinn að taka mikla sénsa. Vinstri krókur tók hann niður. Skv. þulunum hitti Klitschko 183 höggum sem var 42% en McCline hitti 61 sem var 20%. Klitschko var verulega yfir hjá þeim á stigum.

Re: Sýn svo SANNARLEGA ekki að standa sig!

í Box fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Sögðu þeir ekkert af hverju þeir köttuðu? Voru þeir orðnir eitthvað syfjaðir eða hvað?

Re: Sýn svo SANNARLEGA ekki að standa sig!

í Box fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Já, sorglegt. Ég ætlaði að horfa á Mayweather en gleymdi því og kom bara núna inní Klitschko í 3. lotu. Ég er svona að horfa með öðru auganu. Á ég að láta þig vita hvernig fer? :)

Re: Ofurhugalegspurning...

í Tilveran fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er með 7433 stig og þar af flokkast 4387 undir “Önnur stig” sem ég hef ekki hugmynd um hvaðan koma. Ég hef skrifað mjög fáar greinar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok